Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Side 11

Bæjarins besta - 27.07.2005, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 11 hreiðrar ni á Ísafirði Zodiacinn vegna sjólags. Á meðan var Baldur sonur okkar, fjögurra mánaða, inni hjá ömmu sinni. Heldur minn- kaði nytin í móðurinni við þessa vosbúð. Mér datt ekki í hug þegar ég var að syngja skala úti í Amsterdam að ég ætti eftir að lenda í svona að- stæðum. En þegar ég flutti í Vigur gerði ég það af heilum hug, gerði það sem þurfti að gera og fannst það fullkomlega eðlilegt. Fjölskyldu minni og vinum fannst og finnst það skrýtið og svona eftir á að hyggja finnst mér það kannski líka svolítið skrýtið. En það er ekki spurning, hjartað í mér hefur stækkað við þessa reyn- slu og slær jafnvel dálítið í takt við náttúruna.“ Vildu ekki senda börnin í vist Ingunn segir, að þó það hafi eftir á að hyggja verið furðu- legt að flytja í eyjuna hafi verið afskaplega gott að búa þar. „Ég sakna þess stundum al- veg ofsalega. Þó gallarnir séu nokkrir eru kostirnir fleiri. Ein- angrunin er sama og engin nú til dags. Þangað eru ferðir dag- lega á sumrin og þrisvar í viku á veturna, tvær póst- og mjólk- urferðir og skólaferð á mánu- dögum, en vissulega geta kom- ið óveðurskaflar og er þá ófært til og frá eyjunni, stundum svo dögum skiptir.“ – Voru ykkar börn komin á skólaaldur meðan þið bjugguð í Vigur? Voru þau send í heimavist? „Börn úr Vigur hafa verið í heimavist í Súðavík eftir að skólinn í Reykjanesi lagðist af“, segir Björn, og Ingunn bætir við: „Meginástæðan fyr- ir því að við fluttum var sú, að við vildum ekki senda börnin frá okkur í heimavist og sonur okkar byrjaði í skóla síðasta haust. Upphaflega ætluðum við að búa sitt í hvoru lagi á veturna, ég á Ísafirði með börnin og Björn inni í Vigur hjá kúnum, en við kærðum okkur ekki um slíkt fyrirkomu- lag þegar á reyndi. Að sjálf- sögðu spilaði það líka inn í að búið er ekki stórt og ber varla tvær fjölskyldur.“ Lítið mál að taka á móti stórum hópum Björn segir að Salvar bróðir hans búi ennþá í eyjunni ásamt konu og börnum og ekkert far- arsnið sé á þeim. „Hann og hans kona eru þar með búskapinn. Svo er ferða- mannaþjónustan alltaf að verða fyrirferðarmeiri bú- grein.“ – Hvernig er að taka á móti þessum ferðamönnum, sér- staklega þegar skemmtiferða- skip eru á Ísafirði? Er ekki skrítið að taka á móti nokkur hundruð manns í ekki stærri eyju en Vigur? „Það hefur bara gengið merkilega vel“, segir Björn. „Meðan skipulagið er gott og umferðinni er dreift yfir dag- inn, þá er vel hægt að taka á móti þessum fjölda. Það þarf bara að passa upp á að hóparnir rekist ekki á meðan þeir eru í kaffi. Hingað til hefur það ekki verið vandamál, einfaldlega vegna þess að fólkið er ekki að fara í Vigur til þess að sötra kaffi. Það er boðið upp á kaffi í skipinu. Menn koma í eyjuna fyrst og fremst til að upplifa náttúruna, sjá og skoða fugla- lífið sem er svo sannarlega ríkulegt í Vigur.“ Fékk fyrsta launaseðilinn tæplega fertugur – Nú ertu búinn að vera bóndi síðan þú varst átján ára gamall. Hvað fórstu að gera þegar þú komst upp á land? „Fyrst fór ég, eins og svo margir Djúpmenn, að vinna við smíðar hjá Ágústi og Flosa. Mér var mjög vel tekið og þar vann ég fram á haust þegar ég fékk starf hjá Byggðasafni Vestfjarða. Þar er mjög gott að vinna, ég hef alltaf haft gaman af sögu og gömlum munum og er mikill grúskari í mér. Þarna vinn ég við ýmis- legt, svo sem skráningu muna og yfirleitt það sem til fellur. Þetta er draumastarf sem ég get hugsað mér að vinna við í framtíðinni.“ – Var ekkert skrítið að fara í launamennsku eftir að hafa verið bóndi í tæp 20 ár? „Jú, það var stórfurðulegt. Mér fannst sérstaklega athygl- isvert að fá fyrsta launaseðil- inn minn í júní í fyrra, tæplega fertugur að aldri. Ég var lengi að venjast launavinnu og er ekki enn að fullu vanur henni. Það er ennþá skrítið að koma heim klukkan fimm og vera þá búinn að vinna, þurfa ekki að mjólka eða neitt. Svo þegar maður fer í frí, þá er maður bara í fríi og þarf ekki að hafa áhyggjur af búinu. Ég kann ágætlega við þetta nýja líf, þó að maður hafi enn taugar til landbúnaðarins. Eitt sinn bóndi, ávallt bóndi, og mig kitlar alltaf svolítið í putt- ana þegar ég sé fallegan trakt- or.“ Gestur frá Vigur Á Byggðasafni Vestfjarða eru margir mætir munir. Birni er þó eflaust einn þeirra kærari en aðrir, en það er báturinn Gestur sem Björn hefur sést sigla um Skutulsfjörð. „Hann er eitt af djásnum Byggðasafnsins“, segir Björn. „Ég ólst náttúrlega upp með þessum bát. Hann var okkar helsta samgöngutæki allt til ársins 1980 og okkur Vigrung- um afar kær. Ragnar Jakobsson frá Reykjafirði gerði upp bátinn ásamt Guðmundi bróður sín- um og Guðmundi Óla Krist- inssyni frá Dröngum. Viðgerð- in tókst með eindæmum vel, enda eru þetta listasmiðir. Annað skip og enn eldra frá Vigur þyrfti að komast í hend- ur Ragnars, en það er áttæring- urinn Vigur-Breiður sem er meira en 200 ára gamall og stendur á kambinum í Vigur. Þetta er elsta skip á Íslandi. Hann var mikið notaður í minni æsku og á búskaparár- um mínum, í síðasta skipti árið 2000 þegar fé var flutt niður frá Folafæti. Eftir að hætt var að nota hann hefur hann látið á sjá og nú þarf hann að komast í við- gerð. Vigur-Breiður er stórt og mikið skip og nýttist vel í alls kyns flutninga í meira en 200 ár. Þá var hann líka notað- ur til hákarlaveiða. Í honum eru mikil menningarverðmæti fólgin og brýn þörf að gæta þess að þau fari ekki í súginn.“ Fannst Björn bara svo sætur og skemmtilegur Ingunn er sprenglærð söng- kona. Auk náms heima á Ís- landi var hún í alls sjö ár er- lendis að læra söng. Það hefur væntanlega gert henni erfitt fyrir sem starfandi söngkonu að búa í Vigur. „Þegar ég flutti var ég að hefja minn feril, þá nýkomin heim úr námi. Ég gerði mér að sjálfsögðu grein fyrir því að búseta mín í Vigur myndi hefta mig að einhverju leyti. En ég var ástfangin og er enn og sátt við þessa ákvörðun. Björn er bara svo sætur og skemmti- legur. Ég hef komist yfir ótrúlega margt þó ég hafi búið í Vigur. Maður verður bara einbeittari fyrir vikið. Ég hef haldið mér vel við, farið í söngtíma og haldið tvenna einsöngstón- leika, sem er meira en margir kollegar mínir geta sagt, og er nú að undirbúa tónleika sem ég held næsta vetur. Ég hef tekið þátt í ýmsum uppfærsl- um hér á Ísafirði og er heppin hversu mikið menningar- og tónlistarsamfélag Ísafjörður er. Auðvitað gerði búsetan í Vigur mér erfitt fyrir og sjálf- sagt hefði ég gert meira af því að syngja hefði ég ákveðið að vera áfram í Reykjavík. En þetta var bara ákvörðun sem ég tók og þurfti þess vegna að hafa meira fyrir hlutunum.“ Ef ein hurð lokast... – Hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir ykkur eyjaskeggjana? „Það er óráðið, þannig séð, við reynum að lifa í núinu og njóta líðandi stundar“, segir Ingunn. „Við erum bæði spennt fyrir Háskólasetrinu og gætum hugsað okkur að setjast á skólabekk. Við höfum keypt okkur frábært hús hérna í Tang- agötunni og líður vel hér með börnunum okkar Baldri og Snjólaugu Ástu sem hafa eign- ast marga vini og eru orðin sannir Eyrarpúkar. Á Ísafirði er gott samfélag og við höfum kynnst mörgu góðu fólki. Vistaskiptin hafa gengið vonum framar, við erum bæði í góðu starfi, Björn við Bygg- ðasafnið og ég söngkennari við Tónlistarskólann og stjór- na auk þess Sunnukórnum. Þetta hefur allt gengið upp hjá okkur. Það var erfið ákvörðun að flytja úr eyjunni, en við höfum verið heppin. Var ekki einhver sem sagði: Ef ein hurð lokast, þá opnast einhvers staðar önnur?“ – halfdan@bb.is Bæjarstæðið í Vigur. 30.PM5 6.4.2017, 09:4311

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.