Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 12

Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 200512 STAKKUR SKRIFAR Aftur til fortíðar! Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Smáauglýsingar Óskum eftir bílskúr eða hent- ugu geymsluhúsnæði til leigu. Uppl. hjá Auði og Snorra í síma 456 3526 eða 893 3526. Til sölu er VW Golf, vínrauður, árg. 99, sjálfskiptur, ekinn 111 þús. km. Verð kr. 900 þús. Eng- in skipti. Upplýsingar í síma 899 0717. Til sölu eða leigu er lítið einbýl- ishús í Hnífsdal. Upplýsingar í síma 896 3387. Til sölu er vel með farinn Daih- atsu Cuore. Vetrardekk á felg- um fylgja. Uppl. í síma 893 1949. Til leigu er einstaklingsíbúð á jarðhæð að Túngötu 18 frá og með 3. ágúst. Uppl. gefur Indriði í síma 863 3160. Til sölu er Subaru Legacy árg. 1998, ekinn 100 þús. km. Sjálf- skiptur með skíðaboga. Uppl. í síma 456 4174. Til leigu er 2ja herb. íbúð á eyr- inni á Ísafirði. Uppl. í síma 690 2202 og 456 3041. Til sölu eru heyrúllur. Verð kr. 2.500.- pr. stk. Upplýsingar í síma 895 4115. Til sölu er Silver Cross barna- vagn með bátalagi, hvítur og dökkblár. Uppl. í síma 865 6464. Sveitarfélög hafa sameinast af miklum krafti síðustu ár. Margir telja að ekki sé nóg að gert. Fyrir því liggja margar ástæður. Hagkvæmni stærðarinnar er ein. Þjónusta sveitarfélaganna verður bæði meiri og flóknari. Við bætist að kröfur íbúanna aukast að mun með hverju árinu. All nokkrir telja að sameining sé ekki til góðs og betra sé að sveitarfélög séu áfram mörg og smá. Fyrir því má vafalaust færa ýmis rök. En þegar grannt er skoðað kemur í ljós að nútíminn kallar á önnur vinnubrögð en tíðkuðust á 19. öld og langt fram á hina nýliðnu. Hreppstjórar leysa ekki lengur framfærsluvanda með því að halda undirboð á fátæklingum og sá hreppir hnossið, framfærslu þurfalingsins er í hlut á, sem býðst til að taka minnst fyrir að sjá til þess að hann skrimti. Ef það væri svo einfalt mætti halda áfram með sveitarfélög nokkurra tuga manna. En það geng- ur ekki lengur. Nú vilja Svarfdælingar kljúfa sig frá Dalvíkurbyggð. Að sumu leyti er það gaman. Þá sést að til er fólk sem hefur mikla sjálfsvitund og löngum til sjálfstæðis fyrir sig og sitt samfélag. Allt mun þetta sprottið af því að sveitarstjórn samþykkti að sameina skóla byggðarlagsins. Sú ákvörðun átti við fullkomlega skiljanleg rök að styðjast, fjárhagsleg jafnt og sam- félagsleg. Er börnum greiði gerður að mismuna þeim í tækifærum varð- andi skólagöngu og félagsþroska? Sem fyrr segir verður samfélag fólks á Íslandi æ flóknara. Grunnskólar hafa ef til vill ekki staðið sig sem skyldi að búa nemendur sína undir þá baráttu sem bíður þeirra þegar til alvörunnar kemur. Ljóst er að stríðið við fíkniefni stendur enn og engar líkur á því að það sé að vinnast og Ísland verði fíkniefnalaust í bráð. Aftur að efninu. Sveitarfélögin vildu fá til sín grunnskólann og það hefur heyrst kveinað undan þunga hans síðan þau tóku yfir. Ljóst má einnig vera að ríkisvaldið greiðir um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til þeirra sem höllum fæti standa. Því verður vart trúað að þingmenn láti undan þrýstingi fámennra sveitarfélaga og heimili með lögum að aftur- kalla sameiningu sveitarfélaga. Ætla þingmenn að kaupa sér atkvæði fárra kjósenda á kostnað skattgreiðenda um allt land og hverfa til for- tíðar? Því verður ekki trúað að Alþingi láti undan upphlaupi fólks er stendur vörð um mjög persónulega hagsmuni sína með þessum hætti á kostnað allra hinna. Það verður þá að borga herkostnaðinn sjálft. Reyndar er ótrúlegt að enn skuli ekki nást um það samstaða á Alþingi að ákvarða lágmarksstærð sveitarfélaga á Íslandi. En þau eru allt of mörg og flest of smá til þess að nokkurt vit sé í. Umræðan er þörf, en skynsamlegar ákvarðanir þarf. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi Samhengislausar ákvarðanir tekn- ar fram yfir markvissa byggðastefnu Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokk- sins í Norðvesturkjördæmi, segist hafa fengið mjög já- kvæð viðbrögð frá fjölmörg- um flokksmönnum og kjós- endum vegna greinar sem hann ritaði í Blaðið og bar yfirskriftina „Stjórnsýslan föl?“ „Fólki finnst að menn séu komnir of langt í því að leyfa viðskiptalífinu að ráða framvindu hlutanna. Það er auðvitað ákaflega óeðlilegt að menn fari af stað með pen- ingatöskuna, setji hana fyrir framan ráðherra og spyrji hversu mikið fyrir Fiskistofu eða Hagstofuna? Menn eru komnir inn á rangar brautir. Hvort sem framlagið heitir niðurgreiðsla á húsaleigu eða greiðsla flutningskostnaðar þá er það í raun beint framlag til Ríkissjóðs sem er háð því að handhafar valdsins taki rétta ákvörðun“, segir Kristinn. Hann segir ráðherra verða að skýra frá því hverslags við- ræðum þeir standi í við KEA, hvaða stofnanir eigi að flytja til Akureyrar og hvaða pening- ar verði lagðir á móti. „Þeir verða að gera grein fyrir því svo fólk geti metið fyrir sig hvort þetta er óeðlilegt eða ekki“ Þó greinin hafi lagt út af tilboðum KEA um að kosta flutning ríkisstofnana út á land segir Kristinn málið spurningu um viss megin atriði. „Fram- kvæmd byggðastefnunnar er í vaxandi mæli farin að líkjast því að þetta séu allt einhverjar samhengislausar ákvarðanir í stað framfylgdar stefnumörk- unar.“ Nærtækasta dæmið segir Kristinn vera flutning Árna Mathiesen, sjávarútvegsráð- herra, á hluta af veiðieftirliti Fiskistofu út á land. Störfin hafi að minnstu leyti verið flutt á þá staði þar sem búið hafi verið að ákveða að flytja opin- ber störf samkvæmt þings- ályktun um byggðakjarna á landsbyggðinni. Þar var kveð- ið á um uppbyggingu opin- berrar stjórnsýslu á Miðaustur- landi, Akureyri og Ísafirði. „Höfn og Stykkishólmur til dæmis eru fínir staðir en þeir eru ekki þeir miðpunktar sem búið var að leggja niður í stefnumörkun Alþingis. Af hverju er framkvæmdin með þessum hætti? Það komu t.d. fram mótmæli frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar sem benti á að þar og á Grundarfirði er landað 40 þúsund tonnum meðan ár- lega er landað 5 þúsund tonn- um á Stykkishólmi. Það vantar ekki að Stykkishólmur er alls maklegur en það er afskaplega erfitt að verja þessa ákvörðun út frá stefnumótuninni. Hvern- ig getur það verið skynsamlegt að sinna eftirlitinu á Vestfjörð- um frá Stykkishólmi? Nema stefnan sé þannig að ráðherr- arnir ráði þessu alfarið og tengi flutninga stöðum sem þeim eru kærir. Það er náttúrlega viss stefna, ef menn bara myndu viðurkenna það“, segir Krist- inn. Manna á milli hefur verið rætt hvort að ákvarðanir um framkvæmd byggðastefnunn- ar séu teknar í einskonar lokuðum klúbbi þeirra sem sitja að kjötkötlunum og hafi ekkert með hina formlegu opinberu umræðu að gera. Sú spurning hlýtur því að vakna hvernig byggðalög geti komist í þennan klúbb. Aðspurður um þetta sjónarmið segir Kristinn að í kjölfar ákvörðunar vorið 2003 um að byggja fyrst upp opinbera þjónustu á áður nefndum þremur stöðum á landsbyggðinni, sem sjá má í áliti meirihluta iðnaðarnefndar Alþingis um mótun byggða- stefnu næstu árin, hafi iðnaðar- og viðskiptaráðherra verið falið að skilgreina hvað ætti að felast í byggðakjarna, hvaða opinbera starfsemi ætti að leggja áherslu á að efla þar og hvernig eigi að ná því mark- miði. Til dæmis hvaða sam- göngubætur þarf að ráðast í til þess að áhrif byggðakjarnanna verði sem víðtækust. „Ég kalla eftir þessari vinnu. Hvernig á að útfæra þetta, er það t.d. áhersla á vegagerð, uppbygg- ingu stofnana og aukna mennt- un? Það er forvitnilegt að skoða þá málefnalegu stefnu- mörkun sem hefur verið gerð og spyrja svo hvort menn hafi unnið í samræmi við hana“, segir Kristinn. Sem dæmi um ósamkvæmni stjórnvalda í byggðamálum nefnir hann viðbrögð við erf- iðu atvinnuástandi, annars vegar í Mývatnssveit og hins vegar á Bíldudal. „Í Mývatns- sveit var brugðist við því að kísilgúrverksmiðjunni var lokað. Þannig lagði ríkið með einum og öðrum hætti tugi milljóna í ágæta uppbyggingu á baðastöðu eða eins konar bláu lóni við Mývatn. Að auki eru settar 200 milljónir í að kaupa hlutafé í félagi sem framleiðir vörubretti. Síðan kemur Bíldudalur og þá er ekki til króna. Þá er bara sagt að þetta séu ruðningsáhrif sem séu að mörgu leyti jákvæð því það hverfi óarðbær störf. Hvernig getur ríkisstjórnin verið með svo ólíkar aðgerðir við svo sambærilegar aðstæð- ur í sitt hvoru byggðalaginu“, spyr Kristinn H. Gunnarsson. Ísafjörður er einn þriggja byggðakjarna á landsbyggðinni samkvæmt ályktun alþingis. Kirkjustarf Ísafjarðarsókn: Útimessa sunnudaginn 31. júlí kl. 14:00 í Tunguskógi, rétt innan við Bunuá. Stuttar fréttir Ófyrirséð viðhald Endurnýja þarf síupoka í reykhreinsibúnaði sorp- endurvinnslunnar Funa í botni Skutulsfjarðar og er áætlaður kostnaður um ein milljón króna. Ástæð- an er sú að dregið hefur úr virkni síubúnaðar sem tekin var í notkun fyrir rúmu ári síðan. Í samtali við bb.is sagði Víðir Ól- afsson, stöðvarstjóri Funa, ástæðuna vera þá að göt væru komin á hluta þeirra sextíu sía sem búnaðurinn samanstend- ur af. Þar sem ekki var gert ráð fyrir því í fjár- hagsáætlun að endurnýj- unar kæmi til svo fljótt var óskað eftir fjárveitingu. 30.PM5 6.4.2017, 09:4312

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.