Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 13
Sælkerar vikunnar · Guðlaug Auðunsdóttir og Eiríkur Finnur Greipsson á Flateyri
Marineraðar gellur og saltfiskur
Sælkerar vikunnar bjóða
tvo fiskrétti. Fyrst eru það
marineraðar gellur sem bæði
henta sem forréttur og aðal-
réttur. Guðlaug og Eiríkur
mæla sérstaklega með gell-
um frá Fiskvinnslunni Kam-
bi ehf. því þær séu einstakar.
Einnig segja þau að hvítvín
og ekki síður rauðvín passi
vel með gellunum og vatnið
sé nauðsynlegt. Þá bjóða þau
líka saltfisk í ofni. Þau mæla
með sprautusöltuðum þorsk-
flökum frá Fiskvinnslunni
Kambi ehf. Flateyri, en nota
má útvatnaðan saltfiskur.
Þann rétt er unnt að hafa til-
búinn í eldföstu móti upp úr
hádeginu, geyma í ísskápn-
um og skella honum síðan í
ofninn um kvöldið þegar
gestirnir koma, eða þegar
húsráðendur vilja. Þá segja
þau að hvítvín og vatn sé
það sem fer best með þeim
rétti.
Marineraðar gellur
á grillið eða pönnuna
Gellur – sem aðalrétt
a.m.k. 200 g. á mann, sem
for-rétt um 3 til 4 gellur (eftir
stærð) á mann.
10 dl ólífuolía á hver 100 g.
af gellum
1 hvítlauksrif fyrir hvern
skammt á mann
½ tsk karríduft fyrir hvern
skammt á mann
Paprikuduft
Timian
Dill
Estragon
Pipar og salt úr kvörn (eða
grófmalað)
Grænmeti eftir smekk, með
forrétti má t.d. nota eingöngu
hrátt dökkgrænt kál.
Kartöflur ef borða á gellurn-
ar sem aðalrétt.
Egg og örlítill rjómi ef
steikja á gellurnar upp úr
eggjablöndu en það gefur hjúp
utan um gellurnar
Útbúið kryddblönduna með
því að blanda saman ólífuolí-
unni, fínsöxuðum hvítlaukn-
um og kryddinu. Þrífið gell-
urnar vel og hellið krydd-
blöndunni yfir. Hrærið vel
saman. Setjið í kæli og hrærið
í blöndunni a.m.k. einu sinni á
dag í 3 – 4 daga. Gott er að
taka gellurnar úr kælingu 4 –
6 tímum fyrir steikingu. Þrjár
leiðir má fara við að matreiða
kryddlegnu gellurnar: Þurrkið
gellurnar. Útbúið eggjablöndu
egg+rjómi+örlítið af sama
kryddi og er í kryddblöndunni.
Veltið gellunum upp úr eggja-
blöndunni og steikið á pönnu
við góðan hita. Steikið gellurn-
ar á pönnu beint upp úr krydd-
blöndunni, án þess að þerra
þær. Grillið gellurnar beint
upp úr kryddblöndunni, án
þess að þerra þær.
Ef gellurnar eiga að vera í
forrétt leggið 3 – 4 gellur á
hvern disk, berið fram með
grænmeti og/eða brauði (rist-
uðu) eftir smekk. Ef gellurnar
eiga að vera aðalréttur þá fer
það auðvitað eftir vilja hvers
og eins hvort lagt er á diska
fyrir hvern og einn, eða á fat.
Meðlæti er grænmeti (salat),
soðnar kartöflur, heitt hvít-
lauksbrauð eða jafnvel ristað
brauð, einnig getur farið mjög
vel á því að bjóða upp á hrís-
grjón og soya sósur.
Saltfiskur í ofni
Reiknið með um 200 g. af
saltfiski á mann,150 gr. fyrir
matgranna
Jómfrúar-ólífuolía.
Ein stór kartafla á mann
skornar í þunnar sneiðar
Niðurskorinn blaðlaukur,
rauðlaukur og venjulegur
laukur, magn eftir smekk
Rifinn ostur
Hvítur og/eða svartur pipar.
Um ½ l dós f. fjóra tómmat-
mauk
Sólþurrkaðir tómmatar eftir
smekk, ca. 20 –50 gr. á mann.
1 tsk tómatþykkni á mann
1/
4
til ½ rif hvítlaukur, pr. mann
Salt og pipar úr kvörn
Niðurskorið blandað græn-
meti
Fetaostur
Maukið í matvinnsluvél
tómatmauk, sólþurrkaða tóm-
ata, hvítlauk og salt pipar.
Mýkið laukinn á steikarpönnu
í ólífuolíu. Rjóðið ólífuolíu í
eldfast mót, raðið kartöflu-
sneiðunum í botninn, saltið og
piprið lítillega. Hellið ca.
helming tómmatmauksins yfir
kartöflurnar.Stráið helming
lauksins yfir maukið.
Rjóðið ólífuolíu á saltfiskinn
frá Kambi, kryddið með pipar
(gjarnan sítrónupipar). Raðið
saltfiskinum ofan á maukið.
Hellið restinni af tómmat-
maukinu yfir, síðan restinni
af lauknum og að lokum er
stráð rifnum osti yfir og ekki
spara ostinn.
Setjið í heitan ofn og bakið
við um 180°C í um 20 mín.
Passið að osturinn brenni
ekki um of, en okkur finnst
ekkert að því að hann sé
örlítið brenndur. Borið fram
í eldföstu mótinu með græn-
meti í skál blandað fetaosti.
Við skorum á Lilju Krist-
insdóttur og Aðalstein Rún-
ar Friðþjófsson á Flateyri.
Atvinna
Starfskraft vantar til verslunar- og útkeyrslu-
starfa.
Upplýsingar gefur Grétar í síma 456 4566.
Húsgagnaloftið.
Einbýlishús til sölu
Til sölu er einbýlishúsið að Miðtúni 16 á
Ísafirði. Húsið er 265m² að stærð með bíl-
skúr, byggt árið 1969. Húsið var mikið end-
urnýjað á árunum 2002 og 2003.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 895
2132.
Hlíðarvegspúkar!
Hið árlega Hlíðarvegspúkagrill verður hald-
ið laugardaginn 6. ágúst. Dagskráin hefst
kl. 17:00 og er aðgangur kr. 1.000.- fyrir full-
orðna en ókeypis fyrir börn.
Allir nýir og gamlir Hlíðarvegspúkar eru
hjartanlega velkomnir.
Nefndin.
Stefnumótin í atvinnu- og byggðamálum í Súðavík
Búist við fólksfjölgun
í Súðavík í kjölfarið
Ómar Már Jónsson, sveitar-
stjóri Súðavíkurhrepps, segist
hafa fengið mikil og góð við-
brögð í kjölfar þess að stefnu-
mótun sveitarfélagsins í at-
vinnu- og byggðamálum var
kynnt. Fólk á öllum aldri og
öllum stigum þjóðfélagsins,
jafnt stórar fjölskyldur sem ný-
útskrifað skólafólk, hafi haft
samband við hreppinn til að
grennslast fyrir um kosti bú-
setu í Súðavík. Hann segir
sýnilega fjölgun vera að eiga
sér stað í Súðavík en þegar
hafi ein fjölskylda flutt og von
sé á tveimur til viðbótar. „Samt
sem áður erum við alveg á
jörðinni gagnvart þessu og
ætlum að það taki árið að sjá
hver árangurinn af þessu átaki
verður en vísbendingarnar eru
góðar“, segir Ómar.
Stefnumótun Súðavíkur-
hrepps felur meðal annars í
sér að boðið verður upp á
gjaldfrjálsan leikskóla, bygg-
ingarlóðir verða afhentar án
endurgjalds og sveitarfélagið
mun greiða niður byggingar-
kostnað um 17.500 krónur á
hvern fermetra. Þá stendur
hreppurinn fyrir byggingu at-
vinnuhúsnæðis og mun bjóða
upp á styrki til ferðaþjónustu-
aðila, styrki til kaupa á mjólk-
urkvóta, afslátt af þjónustu
hafnarinnar og úthluta allt að
3 milljóna króna framlagi til
þeirra sem hefja nýjan atvinnu-
rekstur og skapa störf í sveitar-
félaginu.
Aðspurður um hversu þungt
aðgerðir sveitarfélagsins vegi
í ákvörðun þeirra sem eru á
leiðinni í Súðavík segir hann
vel mega tengja þetta tvennt
saman. „Leikskólinn var t.d.
farinn að spyrjast út og ég veit
að það voru margir farnir að
skoða þann kost að koma til
Súðavíkur. Þarna á milli er
e.t.v. ekki alveg beint orsaka-
samband en einhver áhrif má
finna frá þessu útspili okkar“,
segir Ómar.
Fyrst og fremst segir hann
fyrirspurnir beinast að at-
vinnumálum og húsnæðismál-
um í sveitarfélaginu en er viss
um áhugasamir finna farsæla
lausn þar á. Þannig segir hann
að myndi koma sér á óvart ef
ekki yrði farið að byggja í
Súðavík innan sex mánaða.
„Við erum vongóð og vitum
t.d. af einum aðila sem ætlar
að sinna sínu starfi í fjarvinn-
slu úr nýju húsunum á Lang-
eyri. Sá er í þeirri aðstöðu að
geta flutt vinnuna sína með
sér og við horfum fram á að
setja upp fleiri þannig setur.“
Að vissu leyti má því segja
með sér. Það má segja að þetta
sé ný nálgun í byggðamálum
og verður mjög áhugavert að
sjá hver niðurstaðan verður“
segir Ómar.
Óneitanlega vaknar sú
spurning þegar sveitarfélög
kynna óvenju hagstæð búsetu-
kjör, eins og í tilfelli Súðavík-
ur, hvort kostaboðið geti virk-
að tvíeggjað og í stað þess að
laða að öfluga frumkvöðla
dragi það til sín fjölskyldur
sem eru tæplega bjargálna.
Ómar segir að vissulega hafi
hann fengið símtöl frá fólki í
þannig aðstæðum. „Auðvitað
getur maður ekki farið að
draga fólk í dilka en maður
þarf að vera meðvitaður um
að aðstæður fólks eru mismun-
andi. Við greiðum ekki út
styrki til atvinnureksturs fyrr
en eftirá og leggjum ekki til
húsnæðisstyrki nema fólk sé
búið að leggja fé á móti. Þá er
það þannig með íbúðir sveitar-
félagsins að þegar losnar þá
eru þær auglýstar og óskað
eftir umsóknum. Þannig erum
við meðvituð um að sveitarfé-
lög sem eru að opna sig eins
og við erum að gera geta misst
stjórn á því“, sagði Ómar Már
Jónsson, sveitarstjóri Súðavík-
urhrepps.
– kristinn@bb.is
að Súðvíkingar séu búnir að
snúa gamalgrónum viðhorfum
í byggðamálum á hvolf. Í stað
þess að setjast niður við að
reyna að búa til atvinnu á til-
teknu sviði er reynt að skapa
ákjósanlegar búsetuaðstæður
og fá svo fólkið til að flytja
vinnuna með sér. „Þetta er
hópur sem við erum sérstak-
lega að horfa á núna fyrst um
sinn, þ.e. fjölskyldur þar sem
fyrirvinnan getur flutt vinnuna
Ómar Már Jónsson,
sveitarstjóri Súða-
víkurhrepps.
30.PM5 6.4.2017, 09:4313