Bæjarins besta - 27.07.2005, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 200514
Stefnt að tvöföldum þátttak-
endafjölda á næsta púkamóti
Stóra púkamótið í knatt-
spyrnu sem haldið var á Ísa-
firði um síðustu helgi þótti tak-
ast með eindæmum vel og hef-
ur verið ákveðið að endurtaka
leikinn að ári. Jóhann Króknes
Torfason, mótsstjórnarmaður,
segir markið sett á tvöfaldan
fjölda þátttakenda að ári en
þeir voru um fimmtíu að þessu
sinni. Eins og nafnið gefur til
kynna er mótið ætlað þeim
sem með einum eða öðrum
hætti hafa komið að knatt-
spyrnuíþróttinni á Ísafirði í
gegnum tíðina. Lið Krókspúka
sigraði mótið en fast á hæla
þeim komu Eyrarpúkar.
Dokkupúkar og Bakkapúkar
ráku lestina. Leiknar voru tvær
umferðir, alls sex leikir á lið.
Þó grunnt sé á keppnishörk-
unni hjá gömlu kempunum er
tilgangur mótsins að koma
saman til að eiga góða stund
og treysta böndin. Allur ágóði
af mótshaldinu rennur til að
styrkja og efla þjálfun yngri
flokka í knattspyrnu á Ísafirði
og verður stofnaður sérstakur
sjóður í því skyni.
Jóhann segir menn hafa
verið í skýjunum eftir helgina.
„Þetta voru ógleymanlegar
stundir og geysigóð stemmn-
ing innan vallar sem utan.“
Margir þátttakenda voru að
taka fram skóna að nýju eftir
langt hlé og segir Jóhann hug
í mörgum að hefja æfingar að
nýju.
Mótið var sett við hátíðlega
athöfn á gervigrasvellinum á
Torfnesi á föstudag og síðan
var flautað til leiks. Um kvöld-
ið mættu mótsgestir ásamt
mökum til grillveislu í Tungu-
skógi þar sem Helga Sig-
mundsdóttir snaraði fram veit-
ingum. Björn Helgason stýrði
hópsöng og Rúnar Þór Péturs-
son, eða Rúnar Pétur Geirs
eins og hann er þekktur manna
á meðal á Ísafirði, sá um und-
irspilið. Á laugardag nýttu
margir tækifærið til að hita
upp á golfvellinum en knatt-
spyrnan hófst að nýju eftir há-
degið. Um kvöldið var svo
efnt til lokahófs og verðlauna-
afhendingar í Stjórnsýsluhús-
inu á Ísafirði.
Ísafjarðarbær studdi við
mótshaldið með margvísleg-
um hætti og veitti viðurkenn-
ingar til þeirra sem hafa stutt
uppbyggingu greinarinnar á
Ísafirði. Þá vildi Jóhann koma
á framfæri þökkum til styrktar-
aðila mótsins en sá helsti var
Visa-Ísland og að auki nutu
mótshaldarar tilstyrks Eim-
skipa, Íslandsbanka, Sam-
kaupa, Vífilfells og VÍS. Með-
fylgjandi myndir tók Sigurjón
J. Sigurðsson af kempunum
við leik á gervigrasvellinum á
Torfnesi. Fleiri myndir munu
birtast í svipmyndum á bb.is
innan tíðar. – kristinn@bb.is
30.PM5 6.4.2017, 09:4314