Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 15

Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 15 Atvinna Óskum eftir að ráða starfsfólk til starfa í sláturtíð. Einnig óskum við eftir að ráða mat- ráðskonu/matráð í sláturtíð. Atvinnuumsóknir er að finna á heimasíðu Norðlenska www.nordlenska.is og á skrif- stofu Norðlenska á Húsavík. Upplýsingar gefur Inga Stína í síma 840 8899 frá kl. 08:00 - 12:00 virka daga og í netfangið ingastina@nordlenska.is Atvinnutækifæri hjá Lyfju á Ísafirði Starfsmaður óskast í Lyfju á Ísafirði. Um er að ræða starf umsjónarmanns verslunar. Starfið felst í yfirumsjón með vörum í versl- un, pöntunum, móttöku og frágangi, þjón- ustu og ráðgjöf til viðskiptavina, afgreiðslu á kassa auk annarra tilfallandi verkefna. Um er að ræða fullt starf og 1-2 laugar- dagar í mánuði. Hæfniskröfur: Reynsla af verslunarstörf- um er æskileg og reynsla í apóteki er kostur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki síðar en 1. október 2005. Nánari upplýsingar gefur Jónas Þór, lyfsali Lyfju á Ísafirði í síma 456 3009 (jonas@lyfja.is) Blaðinu hefur borist eftir- farandi athugasemd frá Krist- ínu Hálfdánsdóttur vegna fréttar í þarsíðasta tölublaði Bæjarins besta sem og fréttar á bb.is fyrir stuttu: „Vegna greinar í síðasta tölublaði Bæj- arins Besta með yfirskriftinni „Mikil óánægja er meðal sumarhúsaeigenda í Tungu- skógi“ langar undirritaða að koma á framfæri athugasemd- um. Í greininni er talað um deilu skógarbúa og hætt við að þeir sem ekki þekkja til dragi þá ályktun að þetta friðsæla sum- arbústaðahverfi okkar Ísfirð- inga logi í leiðindum. Slíkt er fjarri lagi þar sem eingöngu er um að ræða deilur verktaka og eins eiganda sumarhúss í Tungudal. Virðist sem um- ræddur verktaki hafi gleymt öllum sjálfsögðum umgeng- nisreglum við eigendur lóðar sem liggur samsíða nýbygg- ingu sem hann tók að sér að byggja. Eigandi nýbyggingar- innar hefur hins vegar ekkert með deilurnar að gera og hefur reynt það sem í hans valdi stendur til málinu ljúki farsæl- lega. Það má vera að eitthvað at- hugavert hafi verið við kynn- ingu og afgreiðslu á málinu innan bæjarkerfisins, en þegar undirrituð byggði sitt sumar- hús í Birkilaut, þá voru einu skilyrðin að það væri ris á húsinu (alls ekki skúraþak), hvernig það sneri og hversu stórt voru skipti engu máli svo fremi sem það væri innan lóð- armarka. Sem sumarhúsaeigandi í Tungudal vil ég bjóða nýja íbúa velkomna og hlakka til að eiga góða nágranna sem þau eflaust verða. Jafnframt vil ég skora á báða deiluaðila að leggja sig alla fram um að ná sáttum í málinu og láta skynsemi ráða ferð. Ísafirði 19.júlí 2005, Kristín Hálfdánsdóttir. Engin leiðindi í Tunguskógi Kristín Hálfdánsdóttir skrifar Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða ritar samgönguráðherra bréf Óskað eftir stuðningi við uppbygg- ingu Markaðsskrifstofu Vestfjarða Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- þróunarfélags Vestfjarða, hef- ur ritað Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra, bréf þar sem hann óskar eftir stuðningi ráðherra ferðamála við fjár- mögnun Markaðsskrifstofu Vestfjarða. Annars vegar er óskað eftir 5 milljóna króna framlagi til markaðsstarfs og hins vegar 3,8 milljónum vegna stofnkostnaðar. Tekið er fram í bréfinu að ekki sé óskað eftir árvissum stuðningi heldur eingreiðslu til að starfsemi skrifstofunnar fari af stað með myndarlegum hætti, eins og bréfritari kemst að orði. Fram kemur í bréfinu að við- brögð sveitarfélaga og aðila í ferðaþjónustu hafi verið afar jákvæð en þegar hafi 8 af 11 sveitarfélögum samþykkt fjár- framlög til skrifstofunnar á ársgrundvelli. Þá hafi Fjórð- ungssamband Vestfirðinga og Ferðamálasamtök Vestfirð- inga heitið stuðningi sínum. Samtals leggja þessir aðila fram 9,3 milljónir á ársgrund- velli sem tryggir reksturinn með u.þ.b. einu stöðugildi og 2,5 milljóna króna sjóði til markaðsstarfs. Stofnun Markaðsskrifstofu Vestfjarða er ein af tillögunum sem settar voru fram í Vaxtar- samningi Vestfjarða og kemur fram í bréfinu að verkefnið sé hvað lengst komið í fram- kvæmd af þeim sem þar var getið. – kristinn@bb.is Skógardísirnar í Drý- as glöddu áheyrendur Íslensk sönglög voru á boðstólum hjá tríóinu Drýas sem hélt tónleika í Hömrum, sal Tónlistar- skóla Ísafjarðar á fimmtu- dagskvöld í síðustu viku. Tríóið er skipað þeim Her- dísi Önnu Jónasdóttur, sópran, Þorbjörgu Daphne Hall, sellóleikara, og Lauf- eyju Sigrúnu Haraldsdótt- ur, pínaóleikara, sem eru allar nemar við tónlistar- deild Listaháskóla Íslands. Á efnisskránni voru nokk- ur hefðbundin „síðustu lög fyrir fréttir“ sem öllum þykir ljúft að heyra en uppistaðan voru sönglög samtímatónskálda, m.a. Atla Heimis Sveinssonar, Snorra Sigfúsar Birgisson- ar og hins unga Hreiðars Inga Þorsteinssonar. Því má segja að tríóunni fylgi ferskur blær og þótti tón- leikagestum vafalítið ánægjulegt að kynnast nýrri íslenskum sönglögum sem ekki eru þjóðinni töm, enn sem komið er að minnsta kosti. Herdís Anna Jónasdóttir er fædd og uppalinn á Ísafirði og er bæjarbúum vel kunn því hún hefur margsinnis komið fram við ýmis tæki- færi í heimabæ sínum. Þá má segja að tónlistin sé henni í blóð borinn, og meira að segja sum lögin á tónleikunum, því hún er dóttir Sigríðar Ragnars- dóttur, skólastjóra Tónlist- arskóla Ísafjarðar, og Jón- asar Tómassonar, tón- skálds, sem útsetti mörg lög á efnisskránni. Að auki flutti tríóið nokkur lög eftir Hjálmar Helga Ragn- arsson, móðurbróður Her- dísar, og Hjarðmærina eftir afa hennar Ragnar H. Ragnar. Þess má geta að orðið Drýas kemur úr lat- ínu og merkir skógardís en er einnig fyrri hluti latn- eska heitisins á þjóðar- blómi Íslendinga, Holtasól- ey. Undanfarnar vikur hef- ur Drýas haldið fjölda stuttra tónleika á vegum Hins hússins víðs vegar í Reykjavík, á listasöfnum borgarinnar, í Árbæjar- safni, og víðar. – kristinn@bb.is Drýas að tónleikum loknum. Laufey Sigrún Haraldsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir og Þorbjörg Daphne Hall. 30.PM5 6.4.2017, 09:4315

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.