Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 16

Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 200516 Fjölþjóðlegur ævintýraheim- ur undan ströndum Vestfjarða Fjölmörg skemmtiferðaskip sigla við Íslandsstrendur á sumrin. Flest þeirra hafa við- komu í Reykjavík og á Akur- eyri en Ísafjarðarhöfn hefur einnig komið sterk inn á mark- aðinn á undangengnum árum. Margir hafa gaman af að horfa út á sjó þegar þessi glæsilegu fley liggja við ankeri eða spássera á höfninni þegar þau liggja við bryggju og ímynda sér hvernig er að sigla um heimsins höf á glæsiskipi. Enn hafa íslenskir ferðalangar ekki lagt skemmtiskipasiglingar að fótum sér nema í litlum mæli og hvílir ævintýrablær yfir þessum ferðamáta. Fulltrúar blaðsins þáðu heimboð skip- stjórans á Prinsendam sem lá við ankeri á Flateyri fyrir stuttu og fengu að skoða þetta stóra og glæsilega skip. Farið var með léttabáti skipsins frá Flateyrarhöfn eftir að öryggisvörður skipsins hafði gengið úr skugga um að mannskapurinn væri í lagi. Ör- yggisgæsla er mjög ströng í kringum skemmtiferðaskipin og þurfti að tilkynna komu gestanna, nöfn þeirra og kenni- tölur, með hæfilegum fyrirvara svo öllum formsatriðum væri fylgt. Flestir farþeganna sem tóku land á Flateyri fóru í skoðunar- ferðir, m.a. um Ísafjörð og Bol- ungarvík og út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi. Í bátnum tók blaðamaður tal af Dorris hjón- unum frá Houston í Texas. Þau létu ekki vindinn á sig fá og sögðu þessa smágolu á Íslandi ekkert mál, í Texas stæði felli- byljatíminn yfir. Þau höfðu skoðað sig um á Ísafirði og á Flateyri þar sem þau keyptu handverk. Hjónin sögðust reynd í skemmtiskipasigling- um og fara á hverju ári, helst til Evrópu. Þannig hefði ferðin að þessu sinni orðið fyrir val- Guðmundur Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðar- bæjar, og Johannes Matboer, skipstjóri á Prinsendam, rýna í kortin ásamt yfirmönnum skipsins. Texasbúarnir Barbara og Lee Dorris kipptu sér ekki upp við goluna á Íslandi. inu því Ísland var einn af áfangastöðum og hingað hefðu þau ekki komið áður. Aðspurð um aðstæður á Flateyri sögð- ust þau sækjast eftir að sjá raunverulega hluti og því væri svæðið mikil upplifun – þau hefðu nóga sól heima. Farþegarnir, sem voru flestir Bandaríkjamenn og Kanada- menn, voru þó missáttir við sólarleysið og fréttist frá starfsmanni skipsins að sumir eldri borgaranna hefðu verið „búnir að fá nóg af fersku lofti“, eins og hann orðaði það eftir bátsferðir og skoðunar- ferðir um vestfirska náttúru á þessum dumbungslega degi. Hollenski skipstjórinn Jo- hannes Mateboer tók við gest- unum í klefa sínum og sagði frá lífinu um borð. Skipið væri á hálfs mánaðar siglinu og hefði lagt af stað frá Kaup- mannahöfn en túrinn endaði í Amsterdam. Það er í eigu Hol- land-America line sem er gam- algróið skipafélag og þykir gæðamerki. Yfirmennirnir um borð eru flestir vestrænir, mik- ið til Hollendingar, en skip- verjarnir eru flestir Indónesar eða Filipseyjingar. Farþegar sem blaðamaður ræddi við sagði þjónustuna um borð til fyrirmyndar og matinn vel yfir meðallagi skemmtiferðaskipa. Skipstjórinn er með 25 ára reynslu af siglingu skemmti- ferðaskipa og virtist kunna vel við sig innan um fjöllin í Ön- undarfirði. Sá var þó ljóður á máli að há fjöllin skyggðu á gervihnattamóttakara skipsins og því lá internetsambandið niðri. Aðspurður um styrkleika Vestfjarða við móttöku skemmtiferðaskipa sagði skip- stjórinn náttúruna og umhverf- ið tvímælalaust vera sterkasta trompið. Því ættu menn að beita óspart og varast að ætla að senda of margræð skilaboð inn á markaðinn. „Sumir farþegar vilja kom- ast í sólböð en það er augljóst að fyrir þá hafið þið ekkert að bjóða. Að sama skapi vilja margir farþegar komast í versl- unarferðir en þið hafið ekkert í samkeppnina við t.d. Amster- dam eða Kaupmannahöfn á því sviði. Ísland er yfirleitt ekki fyrsti kostur fólks heldur sá staður sem reyndir ferða- menn koma á til að feta ótroðn- ar slóðir“, sagði Johannes Matboer. Aðspurður um veik- leika svæðisins sagði hann það vera veðrið. „Þrátt fyrir að menn geri sér grein fyrir að þeir séu á Íslandi kemur þreyta í farþegana þegar veðrið er þungbúið. Síðan hefur það þau áhrif að vertíðin á Íslandi er afskaplega stutt, varla tveir mánuðir. Að einhverju leiti eru þetta svipaðar aðstæður og menn eru að glíma við í sigl- ingum til Alaska. Þar hafa menn náð að lengja vertíðina upp í fimm mánuði og ég reikna með að vertíðin verði einnig teygð út á Íslandi ef eftirspurn eftir ferðum hingað eykst.“ Eftir skemmtilegar umræð- ur lóðsaði skipstjórinn gestina um skipið. Það var afskaplega sérstök upplifun á þessum af- skaplega venjulega mánudegi að ganga um sundlaugarsvæð- ið með tilheyrandi sólarstrand- arstemmningu og arka þaðan inn í spilavítið. Þá var komið við í heilsuræktinni og litið inn í næturklúbb skipsins þar sem síðdegisbingó var í gangi. Verslanir voru um borð og meira að segja listagallerí. Skipið er 12 hæðir og því var útsýnið með besta móti yfir Flateyri og Önundarfjörð. Skipstjórinn útskýrði fyrir gestunum hlutverk fjölda veit- ingasala um borð sem þjónuðu ýmsum hlutverkum, frá börum og kaffiteríum upp í fína veit- ingastaði þar sem enginn fær afgreiðslu nema vera uppábú- inn. Að lokum var haldið í brúna þar sem yfirmennirnir voru á rekistefnu um næsta áfanga- stað, Reykjavík. Einhver rugl- ingur var í gangi með bryggju- pláss í höfuðborginni og kom þá farsími Guðmundar Krist- jánssonar, hafnarstjóra Ísa- fjarðarbæjar, í góðar þarfir. Gervihnattasími skipsins var nær sambandslaus vegna skugga fjallanna og internet- sambandið úti en GSM-sam- band er með besta móti frá Flateyri. Því var hægt að hringja og fá úr málum skorið. Bryggjuplássið í Sundahöfn- inni í Reykjavík var of lítið að mati skipstjórans og lofaði um- boðsmaður skipsins að útvega betra legupláss áður en skipið kæmi á staðinn. Þá var komið að því að taka síðasta léttabátinn í land og voru menn á því að svona ferðamáta þyrfti að prufa, helst fyrr en seinna. – kristinn@bb.is Á þennan veitingastað mæta menn uppábúnir. Verið að undirbúa kvöldmat. 30.PM5 6.4.2017, 09:4316

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.