Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 19

Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 19 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Borgin mín · Kolbrún Elma Schmidt, starfsstúlka í Blómaturninum á Ísafirði Vestfirskar þjóðsögur · Gísli Hjartarson ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Stuttar fréttir Féll fyrir Bahamaeyjum Sjúkraflutningar „Draumaferðin mín er til Bahamaseyjanna. Alveg frá því ég sá myndina After the sunset kolféll ég fyrir Ba- hamaseyjunum. Það er eitt- hvað svo heillandi við strend- urnar og hitann. Ég hef verið að kynna mér eyjarnar á Int- ernetinu og tel þetta vera mjög fallegt land. Einnig held ég að vestræn menning hafi ekki náð tökum þar, staðirnir þar eru hráir og ósnortnir. Ég er byrjuð safna mér fyrir ferð til Bahamas en ef ég næ því ekki hygg ég á skíðaferð til Aspen. Það er mikill verð- munur á ferðunum en mig langar mest til Bahamseyj- anna. Annars er stutt í nátt- úruperlur á heimaslóðum og fer ég til Reykjaness í Djúpinu á hverju ári,“ sagði Kolbrún Elma Schmidt. Brennslan mín · Björn Jóhannesson, lögfræðingur hjá Lögsýn ehf., á Ísafirði Lög sem lifa í minningunni Þegar ég fer yfir plötu- safnið mitt og læt hugann reika koma mjög góð og eftirminnileg lög upp í hug- ann. Því miður verða mörg góð lög að vera utan við listann í þetta skipti. 1. Sacrifice – Elton John Þetta gullfallega lag er í miklu uppáhaldi hjá mér og sennilega það lag sem hef hvað oftast hlustað á síðustu árin. Plötur Elton John rata oftast í geislaspilarann hjá mér og mér er til efs að nokk- ur annar tónlistarmaður hafi sent frá sér annað eins ógrynni af góðum lögum. Þetta lag sem er að finna á plötunni Sleeping with the past sem kom út á árinu 1989, er einstaklega ljúft. 2. An innocent man – Billy Joel Hér kemur lag með öðrum snillingi á sviði tónlistarinn- ar sem einnig á ógrynni góðra laga s.s. Pianoman og Uptown girl. Ég hlusta mikið á Billy Joel og hef séð eftir því að hafa ekki skellt mér á tónleika með þeim félögum Billy Joel og Elton John. Þetta lag er að finna á samnefndri plötu. 3. Moviestar – Harpo Nú kunna einhverjir að brosa. Er hér ekki kominn gamli sænski poppsöngvarinn Harpo sem átti nokkur vinsæl lög á árunum eftir 1974. Þetta lag var feiknalega vinsæl á árinu 1975 og var á samnefnd- ri pöntu. Deildarbungubræður gáfu þetta út ári seinna undir nafninu María tískudrós. Þetta lag sem kemur mér alltaf í gott skap sama hvað á geng- ur og er ekki ósjaldan spilað þrátt fyrir að 30 ár séu liðin frá útgáfu þess. Með ólíkind- um hvað hægt er að spila þetta lag aftur og aftur. 4. Tears in heaven – Eric Clapton Snilldarverk frá meistari Clapton sem á fjölda góðra laga, s.s. My Fathers eyes, Lay- la, Wonderful tonight svo fáein lög séu nefnd. Af mörgum góð- um lögum vel ég þetta, enda tilfinningaþrungið lag og vand- aður texti, er hægt að biðja um meira. 5. The Final Count- down – Europe Hér er aðeins bætt í kraftinn. Kraftmikið lag af samnefndri plötu frá árinu 1986. Lag sem ég hlustað mikið á hér áður fyrr, en stendur ætíð fyrir sínu. 6. Fire – Bruce Springsteen Bruce Springsteen er í mikl- um metum hjá mér. Af mörgu er að taka varðandi góð lög frá honum. Fire er þó það lag sem fyrst kemur upp í hugann. Það er eitthvað dulinn kraftur í þessu lagi sem gerir það sér- stakt. 7. Hallelujah – Jeff Buckley Þetta lag er eftir Leonard Co- hen, en Jeff Buckley flytur það snilldarlega á plötunni Grace sem kom út árið 1994. Ein- staklega góður flutningur á frábæru lagi. 8. Confusion – ELO Skemmtileg lag með Elec- tric Light Orchersta sem áttu fjölda góðra laga á sínum tíma. Ég hlustaði mikið á ELO á unglingsárunum og þetta kraftmikla lag var á plötunni Discovery er kom út árið 1979. Lag sem lifir í minningunni. 9. The power of love – Jennifer Rush. Lag sem Jennifer Rush gerði vinsælt á árinu 1984. Kraft- mikið lag flutt af góðri söng- konu. Þetta lag skaut Jennifer Rush upp á stjörnuhimininn árið 1984. 10. The John Dunbar Theme – John Barry. Þetta magnaða lag er eftir John Barry og er úr myndinni Dances with Wolves. John Barry hefur samið mikið af kvikmyndatónlist og er snill- ingur á því sviði. Hann samdi m.a. tónlistina við myndirnar Out of Africa, Chaplin, Midnight Cowboy og fjölda James Bond mynda. Þetta lag er einstakt í flutningi Royal Philharmonic Or- chestra og þegar það er sett á fóninn að loknum erfiðum vinnudegi, (á nokkuð góðum styrk) má segja að þreytan líði úr manni. Á svo sannar- lega heima á topp tíu listan- um. Björn Jóhannesson. Halldór heitinn Jónmundsson, sonur hinnar frægu höfuð- kempu séra Jónmundar Halldórssonar á Stað í Grunnavík, var lengi yfirlögregluþjónn á Ísafirði. Halldór var afar stórvaxinn og sterkur mjög og sópaði að honum hvar sem hann fór. Stundum átti hann til að vera fljótfær. Þegar þessi saga gerðist annaðist lögreglan sjúkraflutninga í bænum og notaði til þess Landróverjeppa sem einnig var lögreglubíll. Eitt sinn hringdi Marzellíus Bernharðsson úr skipasmíðastöð sinni í Suðurtanganum á lögreglustöðina og bað um sjúkrabíl. Maður hafði lent í slysi í stöðinni. Halldór var við skýrslugerð og spurði: Þurfið þið að fá hann strax? Húsfyllir hjá Emilíönu Torrini Emilíana Torrini hélt tón- leika fyrir troðfullu húsi í Víkurbæ í Bolungarvík á föstudagskvöld. Geysigóð stemmning ríkti í salnum þegar söngkonan viðkunnan- lega steig á svið og var ekki annað að heyra en tónlistin félli áheyrendum vel að geði. Emilíana kom fram ásamt þriggja manna hljómsveit sem hefur leikið með henni á tónleikum víðsvegar um heim til kynningar á nýju plötunni Fishermans Woman. Tónleikarnir voru hluti af tónleikaferð Emilíönu um landið, en hún hélt aðeins fjóra tónleika á Íslandi að þessu sinni, og er langt um liðið síðan hún kom fram hér- lendis síðast. Fishermans Wo- man hefur fengið mjög góða dóma og þegar selst í rúmlega sex þúsund eintökum á Ís- landi. Þess má geta að lagið „Slow“, sem Emilíana samdi fyrir áströlsku söngkonuna Kylie Minogue, var tilnefnt til grammy-verðlauna á síð- asta ári. – thelma@bb.is Geysigóð stemmning ríkti á tónleikunum. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson. Styrkir róð- ur Kjartans Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að veita Sjálfsbjörgu, landssam- bandi fatlaðra, styrk að upphæð 50 þúsund krónur vegna ferðar Kjartans Haukssonar á árabát um- hverfis landið. Markmið ferðar Kjartans er að vekja athygli á möguleikum hreyfihamlaðra til ferða- laga. Þá vill hann safna fé í hjálparliðasjóð Sjálfs- bjargar því fatlaðir þurfi aðstoðarmenn á ferðalög- um sínum og beri því tvö- faldan ferðakostnað. Hjálparliðasjóður Sjálfs- bjargar var stofnaður árið 1997 í því skyni að standa straum af kostnaði við ferðakostnað aðstoðar- manna (hjálparliða) fatl- aðra í ferðalögum. Fjárnám- um fækkar Fjárnámum og nauðungar- sölum í umdæmi sýslu- mannsins á Ísafirði fækk- aði heldur á síðasta ári miðað við árin á undan. Fram kemur í ársskýrslu embættisins að í fyrra voru teknar til meðferðar 587 fjárnámsbeiðnir en þær voru 622 árið 2003 og 594 árið 2002. Nýjar beiðnir um nauðungarsölur á fast- eignum og skipum voru 122, en þær voru 151 árið 2003 og 145 árið áður. 7 nýjar beiðnir um nauðung- arsölur á lausafé voru teknar til meðferðar í fyrra en 14 árið 2003 og 8 árið 2002. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að veita styrk að fjárhæð kr. 520 þúsund til Félags áhuga- manna um víkingaverkefn- ið á Þingeyri. Fjármögnun styrksins var vísað til end- urskoðunar fjárhagsáætl- unar þessa árs. Þetta var ákveðið á síðasta fundi ráðsins þar sem fulltrúar félagsins gerðu grein fyrir stöðu verkefnisins, framkvæmdaáætlun og fjármögnun þess. Styrkir upp- byggingu 30.PM5 6.4.2017, 09:4319

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.