Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 20

Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk www.bb.is – daglegar fréttir á netinu Eldur kom upp í bát sem stóð á þurru landi á Suður- tanga á Ísafirði á fimmtudag. Slökkvilið Ísafjarðarbæjar var kallað út laust upp úr kl. 15 og lauk slökkvistarfi kl. 15:45. Eldsupptök eru ókunn en að sögn lögreglunnar á Ísafirði er báturinn, sem er Sómabátur, talinn vera ónýtur eða a.m.k. mjög mikið skemmdur. Málið er í rannsókn. Engin slys urðu á fólki. – thelma@bb.is Sómabátur brann Frá slökkvistarfi á fimmtudag. Báturinn er talinn ónýtur aftur brunann. Lögreglan á Ísafirði lagði hald á 123,4 grömm af ólög- legum fíkniefnum á árinu 2004. Það er umtalsvert minna magn en árið áður þegar lagt var hald á tæplega 370 grömm en á svipuðu róli og árin 2001 og 2002 þegar 126 grömm og 90 grömm voru haldlögð. Stærsti hlutinn eru kanna- bisefni eða rétt tæp 118 gr. en einnig var lagt hald á rúm 3 grömm af amfetamíni og 2,5 grömm af efni sem var ekki skilgreint. Þetta kemur fram í ársskýrslu sýslumannsem- bættisins á Ísafirði. Af upp- lýsingum þar má dæma að samsetning efnanna sé svipuð og verið hafi síðustu ár. Minna haldlagt af fíkniefnum Meðalfjöldi atvinnulausra á Vestfjörðum var 70 í júní eða 1,7% af áætluðum mannafla í fjórðungnum en 1,4% í maí. Atvinnulausum fjölgaði um 15 frá maí. Atvinnuleysi kvenna var 3,4% í júní en 2,9% í maí og atvinnuleysi karla var 0,6% í júní en 0,3% í maí Atvinnu- lausir karlar voru 15 sem er aukning um 7 meðan atvinnu- lausar konur voru 55 eða 8 fleiri en í mánuðinum á undan. Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um at- vinnuleysi í júní. Samanborið við aðra lands- hluta er atvinnuleysi á Vest- fjörðum undir landsmeðaltali sem er 2,1% og töluvert minna en á höfuðborgarsvæðinu þar sem það er 2,5% Til saman- burðar má nefna að minnsta atvinnuleysið er á Austurlandi eða 0,7% og það er mest á Norðurlandi eystra, 2,7%. Flestir atvinnulausra á Vest- fjörðum eru konur og jafngild- ir hlutfallslegt atvinnuleysi kvenna á Vestfjörðum 3,4%. Það er sama hlutfall og á höf- uðborgarsvæðinu en einungis á Norðurlandi eystra er þessi tala hærri eða 4,3%. Ef staðan er borin saman við atvinnu- ástandið fyrir ári síðan kemur í ljós að körlum á atvinnuleys- isskrá hefur fækkað um 10 en konum um tvær. Áttatíu og sex störf voru í boði hjá Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða og er það fjölgun um tvo frá mánuðinum á und- an. Ef miðað er við sama tíma í fyrra hefur orðið veruleg aukning en þá voru störf í boði 36. – kristinn@bb.is Töluvert atvinnuleysi meðal kvenna Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur óskað eftir því við iðnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að IMPRA nýsköpunarmiðstöð á Akureyri setji á stofn skrif- stofu á Vestfjörðum. Farið er fram á að skrifstofan hafi eitt stöðugildi í upphafi en starfið verði eflt í framhald- inu í samvinnu við Atvinnu- þróunarfélag Vestfjarða. Um yrði að ræða framkvæmd á tillögu úr Vaxtarsamningi Vestfjarða um eflingu ný- sköpunarstarfs í fjórðungn- um. Þá gerir Atvest tillögu um að stofnunin verði staðsett í þróunarsetri Vestfjarða á Ísa- firði en þar yrði skrifstofan í samfélagi stofnana og fyrir- tækja sem sinna rannsókn- um, menntun og þjónustu utan sem innan Vestfjarða, eins og segir í erindinu. Til- lagan úr vaxtarsamningi er svohljóðandi: „Efla ráðgjöf til að bregðast við fækkun starfa og lækkun meðallauna á Vestfjörðum. Lögð verði áhersla á að auka fjölbreytni atvinnulífs með eflingu ný- sköpunar og markaðsstarfs í nýjum og starfandi fyrirtækj- um og skapa þannig arðvæn- leg störf.“ Fram kemur í erindinu að samkvæmt ákvæðum vaxt- arsamningsins er gert ráð fyrir að Atvest hafi umsjón með framkvæmd hans. Vill að Impra setji upp skrifstofu á Vestfjörðum Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. Atvinnuþróunarfélagið leggur til að Impra setji á stofn starfsstöð í Þróunarsetri Vestfjarða á Ísafirði. Atlantsolía bauð nýverið út framkvæmdir við bensínstöð á Skeiði á Ísafirði og segir Geir Sæmundsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, að ákveðið hafi verið að hefja viðræður við verktaka eftir verslunarmannahelgi. „Þetta er eins og gengur á Íslandi, þegar komið er fram í júlí hreyfast hlutirnir hægt því það eru svo margir í sumarfrí- um“, segir Geir. Aðspurður vill Geir ekkert segja um hve- nær framkvæmdir hefjist. „Ég vil engu lofa, maður er búinn að segja svo margt um allar þær bensínstöðvar sem við er- um að byggja. Reynslan sýnir að þetta getur tafist af alls kyns orsökum og lítið hægt að gefa út fyrr en framkvæmdir eru hafnar“, sagði Geir. Félagið sótti um lóðina í ágúst á síðasta ári og var út- hlutun lóðarinnar til Atlants- olíu staðfest í bæjarstjórn Ísa- fjarðarbæjar þann 5. nóvem- ber. Þegar umsókn félagsins var til umfjöllunar í bæjar- stjórn Ísafjarðarbæjar sagði einn af þeim aðilum sem unnu að málinu fyrir hönd Atlants- olíu að bensínstöð gæti opnað 90 dögum eftir að lóð væri úthlutað. – kristinn@bb.is Atlantsolía ræðir við verktak- ana eftir verslunarmannahelgi Lóð Atlantsolíu er við hlið Ljónsins á Skeiði þar sem Bónus er meðal annars til húsa. 30.PM5 6.4.2017, 09:4320

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.