Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.09.2015, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 10.09.2015, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 10. SEPTEMBER 2015 Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Aukin framleiðsla Arnarlax á laxi í Arnarfirði um 7.000 tonn Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. Álit Skipulagsstofnunar og matsskýrslu Arnarlax ehf. er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.skipulagsstofnun.is. Þeir létu heldur ófriðlega víkingarnir á Vésteinsvöllum í Haukadal laugardaginn 5. sept­ ember, börðust illúðlega með allskyns atgeira og sverð, bitið var í skjaldarrendur og menn nánast höggnir í herðar niður. Ekki fóru þó allir með ófriði, einn bruggaði kjetsúpu af bestu gerð og annar hamraði járnið við Víkingahátíð á slóðum Gísla Súrssonar eldinn. Innandyra stóðu konur við handverkið og börnin rísluðu sér á gólfum. Nokkrir gengu um söguslóðir Gísla Súrsonar undir góðri leiðsögn Þóris Arnar Guðmundssonar enda er það nauðsynlegt að vita hvar haugar Vésteins og Þorgríms eru, hvar Sæból stóð til forna og hvernig þessu háttaði öllu til. Og á meðan sumir sátu við borð spákonunnar fóru aðrir á hestbak eða nutu náttúrufegurðarinnar í Haukadal. Að lokum var stiginn hringdans að víkingasið. Viðburðurinn er skipulagður af Elfari Loga og hans fólki en að baki stóð Menningarráð Vestfjarða. BS – Ert þú utan höfuðborgarsvæðisins? – Langar þig að ná fastari tökum á heilsunni með hjálp fagfólks? – Getur þú æft sjálfstætt en vantar stuðning til að komast af stað? – Viltu laga til í mataræðinu? - Þín brú til betri heilsu www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010 Nánari upplýsingar í síma 5601010 Fjarnám með stuðningi fagaðila - þrír mánuðir Hátt í 100 krakkar komu við í íþróttahúsinu á Torfnesi á laugardag þegar KFÍ hélt körfu­ boltadaginn og sjaldan hafa jafn margir krakkar komið á körfuboltadag. Rífandi stemmn­ ing var í salnum en það voru leikmenn meistaraflokks karla ásamt þjálfurum yngri flokka sem héldu utan um leiki og ýmsar boltastöðvar. Sumir iðkendur hrepptu veglega vinninga í sting­ er og 3. stiga keppnum og allir fóru heim með plakat af íslenska landsliðinu í körfubolta sem hóf einmitt leik gegn Þýskalandi rétt í þann mund sem körfuboltadeg­ inum lauk. Foreldrar og forráðamenn fjölmenntu með krökkunum og mörg ný andlit í þeim hópi. Það er von barna­ og unglingaráðs að sem flest áhugasöm börn láti verða af því að kíkja á æfingar hjá viðeigandi aldurshópum. Það kostar foreldra ekkert að leyfa yngstu krökkunum að æfa körfubolta og nýir iðkendur í minnibolta eldri og uppúr æfa gjaldfrjálst fyrstu tvo mánuðina. Farið verður á minniboltamót við hæfi hvers aldursflokks í vetur en krakkar í 7. flokki og eldri taka þátt í Íslandsmótum KKÍ. Barna­ og unglingaráð KFÍ vill koma á framfæri þakklæti til meistaraflokks fyrir aðstoðina á laugardaginn og sömuleið­ is þakkar ráið að þessu sinni sérstaklega tveimur dyggum styrktaraðilum yngri flokkanna en það eru Samkaup og H.V. umboðsverslun á Ísafirði. 100 krakkar á körfuboltadegi KFÍ

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.