Bæjarins besta - 24.09.2003, Blaðsíða 1
„Vona að það
fari að komast
ró á hlutina“
– sjá viðtal í miðopnu við Jón Guðbjartsson
útgerðarmann í Bolungarvík
Miðvikudagur 24. september 2003 • 38. tbl. • 20. árg.
ÓHÁÐ Á V E S T F J Ö R Ð U MFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Veffang: www.bb.is • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk
Víða á Vestfjörðum urðu
talsverðar rafmagnstruflanir
um liðna helgi þegar vonsku-
veður gekk yfir með snjó-
komu og hvassviðri.
Snemma á sunnudagsmorg-
un varð rafmagnslaust á öllu
orkuveitusvæði Mjólkár-
virkjunar vegna útsláttar á
Mjólkárlínu Landsvirkjunar.
Varaaflsstöðvar á þétt-
býlisstöðum voru ræstar en
nokkru síðar varð útsláttur í
Rafmagnstruflanir og talsverðar
skemmdir á línum á Vestfjörðum
Breiðadal á línunni til Bol-
ungarvíkur og Ísafjarðar. Við
þetta varð rafmagnslaust á
Ísafirði, í Bolungarvík, í
Súgandafirði og Súðavík.
Nokkrir samskonar útslættir
urðu fram til hádegis.
Samkvæmt upplýsingum
frá Orkubúi Vestfjarða má
rekja þessa útslætti til sam-
sláttar á línum og ísklepraðra
einangrara í tengivirkjum og á
línum.
Allmargir staurar brotnuðu
í sveitalínu frá Sveinseyri í
Tálknafirði og út að Sellátrum.
Þaðan er lína út í Ketildali og
urðu fjórir bæir rafmagns-
lausir. Heimtaugar slitnuðu á
Svarthamri og Dvergasteini í
Álftafirði og í Tröð í Önundar-
firði. Bæirnir urðu rafmagns-
lausir af þessum sökum. Raf-
magnslaust varð á Stranda-
svæði í stuttan tíma. Rafmagn
fór af víða í Ísafjarðardjúpi. Þannig var færðin á Ísafirði á mánudagsmorgun.
38.PM5 18.4.2017, 11:481