Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.09.2003, Síða 2

Bæjarins besta - 24.09.2003, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is ÚTGÁFAN ISSN 1670 - 021X Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður Sími 456 4560, Fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is Blaðamenn: Kristinn Hermannsson sími 863 1623 kristinn@bb.is Halldór Jónsson sími 892 2132 hj@bb.is Ritstjóri netútgáfu: Hlynur Þór Magnússon sími 892 2240 hlynur@bb.is Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson sími 894 6125, halldor@bb.is Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson RITSTJÓRNARGREIN Samþjöppun valds og eigna fáum að skapi á milli Landsbanka og Íslandsbanka. Mörgum er brugðið. „Þær sviptingar, sem eru í viðskiptalífinu og hafa verið undanfarin misseri, eru ekki líklegar til að auka traust fólksins í landinu á fyrirtækjunum eða lögmálum hins frjálsa markaðar. Þeir sem eru umsvifamestir á þessum markaði bera mikla ábyrgð og verða að gæta að sér. Íslenzka þjóðin kann því illa ef of miklar eignir safnast á of fáar hendur.“ Undirtektir við þessi leiðaraskrif Morgunblaðsins virðast víðtækar. Spurningar vakna um réttmæti þess að bankar sitji beggja megin borðs, sem viðskiptabankar og lánardrottnar fyrirtækja sem þeir jafnframt eru hluthafar í. Slíkar kringumstæður leiða fyrr en síðar til hagsmunaárekstra. Hvað með bankaleyndina? Hver er staða viðskiptavinar sem á í samkeppni við fyrirtæki, sem „bankinn hans“ á og fjármagnar? Valda- og hagsmunabarátta bankanna er mörgum áhyggjuefni. Alvarlegast er þó að stjórnmálamennirnir, sem settu leikreglurnar fyrir fjármálamarkaðinn og söluna á ríkisbönkunum, sitja þögulir hjá og virðast ekki vita hvaðan á þá stendur veðrið. Úr þeirri átt er því vart mikils að vænta. s.h. Með hlutabréfamarkaðnum töldu margir að opnast hefði leið fyrir almenning til að ávaxta sitt pund með öðrum hætti en geymslu á hefðbundnum bankareikningum, sem skiluðu misjöfnum arði. Það var því eðlilegt að þeir, sem einhverjar krónur áttu umfram nauðþurftir, tækju þessu opnum örmum. Almenningur tók vel við sér og ríkisvaldið lagði sitt af mörkum með skattafslætti. Sérfræðingar fjármálastofnana voru á hverju strái með framréttar hendur, boðandi fólki fagnaðarerindið hvernig það gæti margfaldað með skjótum hætti ávöxtun þess fjármagns sem það hafði sparað til elliáranna. Er fram liðu stundir dró minnkandi skattafsláttur jafnt og þétt úr hlutabréfakaupum almennings. Fyrirtækjum á hlutabréfamarkaðnum hefur fækkað verulega og ætla má að „fjármálasérfræðingar“ tilheyri tegundum í útrýmingarhættu, ef hlédrægni þeirra í dag er borin saman við fyrri tíð. Margur á um sárt að binda eftir að hafa séð afrakstur ævistarfsins fuðra upp í fjárfestingum, sem áttu að tryggja áhyggjulaust ævikvöld. Í síðustu viku skráðu Landsbanki og Íslandsbanki sig með eftirminnilegum hætti á spjöld íslensks fjármálamarkaðar með hrókeringum á eignaraðild að nokkrum þekktustu og stærstu fyrirtækjum landsins. Á sögulegum næturfundi köstuðu stjórnendur bankanna fjöreggjum fyrirtækjanna sín á milli uns samkomulag náðist um á hvern hátt fyrirtækjasamsteypu þeirri, sem Eimskipafélag Íslands hefur verið kjarninn í, skyldi skipt bb.is pú lsi nn fy rir ve sta n Sölustaðir á Ísafirði: Hamraborg, Hafnarstræti 7, sími 456 3166. Flug- barinn, Ísafjarðarflugvelli, sími 456 4772. Bónus, Ljóninu, Skeiði, sími 456 3230. Bókhlaðan, Hafn- arstræti 2, sími 456 3123. Bensínstöðin, Hafnarstræti, sími 456 3574. Samkaup, Hafnarstræti 9-13, sími 456 5460. Krílið, Sindragata 6, sími 456 3556. Lausasöluverð er kr. 250 eintakið m.vsk. Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Umboðsaðilar BB: Eftirtaldir aðilar sjá um dreifingu á blaðinu á þétt- býlisstöðum utan Ísa- fjarðar: Bolungarvík: Sólveig Sigurðardóttir, Hlíðarstræti 3, sími 456 7305. Súðavík: Sólveig Gísladóttir, Arnarflöt 7, sími 456 4106. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðalgötu 20, sími 898 6328. Flateyri: Gunnhildur Brynjólfsdóttir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Anna Signý Magnúsdóttir, Hlíðargötu 14, sími 456 8233. Dæmdir fyrir líkamsárás á lögreglumenn í Bolungarvík Óskilorðsbundinn fangelsis- dómur í ljósi fyrri brota Tuttugu og fimm ára maður var í Héraðsdómi Vestfjarða í síðustu viku dæmdur í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fang- elsi fyrir líkamsárás á lög- reglumenn við skyldustörf. Þetta gerðist í október í fyrra og hófst atburðarásin skammt frá skemmtistaðnum Víkurbæ í Bolungarvík. Tvíburabróðir mannsins var ákærður í sama máli og hlaut tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Kona á sama aldri sem ákærð var fyrir að tálma lögreglumenn- ina við störf sín var hins vegar sýknuð af kröfum ákæruvalds- ins í þessu máli. Mennirnir tveir voru báðir sakfelldir fyrir að hafa brotið gegn þeirri grein almennra hegningarlaga sem segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann skuli sæta fangelsi allt að sex árum. Dómurinn taldi brot ákærðu ekki smáfelld þannig að til álita kæmi að beita sektarrefs- ingum. Málsatvik voru þau, að lögreglumenn í Bolungarvík, sem voru á eftirlitsferð að nóttu til, komu auga á mann- söfnuð við skemmtistaðinn Víkurbæ og sáu hvar mennirn- ir tveir lágu í jörðinni í átökum. Þegar lögreglumennirnir hugðust skakka leikinn urðu hörð átök þar sem lögreglan beitti táragasi og kylfu. Við handtöku mannanna og eftir hana veittu þeir lögreglu- mönnum talsverða áverka. Þannig var einn skallaður í Þjóðarátak um nýsköpun 2003 Verkefni frændsystkinanna Steinþórs Bragasonar og Örnu Láru Jónsdóttur hjá Vélsmiðju Ísafjarðar lenti í þriðja til sjöunda sæti í samkeppninni Þjóðarátak um nýsköpun 2003. Hundruð verkefna bár- ust í samkeppnina. Verðlaunin hlutu þau Steinþór og Arna Lára fyrir verkefnið „Hönnun og framleiðsla á slöngu- og rörafittings“. Í umsögn dóm- nefndar segir m.a. „Sú fram- leiðslutækni sem lýst er í áætl- uninni virkar mjög spennandi og reynsla og þekking eru auðsjáanlega til staðar.“ Að sögn Steinþórs hefur þessi framleiðsluaðferð í för með sér mikinn efnissparnað. Hann er bjartsýnn á að þessi aðferð geti náð fótfestu enda hafi fyrirtæki sýnt henni mikinn áhuga. Nú þegar er aðferð þessi notuð hjá Vél- Ísfirskt verkefni hlaut verðlaun smiðju Ísafjarðar. Steinþór Bragason er vél- tæknifræðingur að mennt og er í framhaldsnámi í Kaup- mannahöfn. Arna Lára Jóns- dóttir býr einnig í Kaupmanna- höfn og vinnur þar að lokarit- gerð í mastersnámi sínu í við- skiptafræði við Háskóla Ís- lands. Verkefni þeirra Steinþórs og Örnu Láru var einnig valið til þess að keppa fyrir Íslands hönd í evrópskri hugmynda- keppni sem haldin verður í Brussel síðar í haust í flokki sem svo er lýst af dómnefnd: „Í flokknum Vöxtur (Exp- ansion) koma fyrirtæki sem eru í vexti og lofa góðu. Möguleiki á að hagnast á „EUROWARDS network- ing“, opna tengsl við áhættu- fjárfesta og hagnast á kynn- ingu hér á landi og um alla Evrópu.“ Til íslensku keppninnar var stofnað af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Íslandsbanka, Byggðastofnun, Háskólanum í Reykjavík, Morgunblaðinu og KPMG. Markmið sam- keppninnar var að auka þekk- ingu á gerð viðskiptaáætlana annars vegar og laða fram áhugaverðar hugmyndir og verkefni hins vegar. Við mat á verkefnum var horft til hug- myndaauðgi, skipulegrar framsetningar og röksemda- færslu. Hin fjölmörgu verkefni sem send voru í keppnina fóru í gegnum mjög strangt ferli. Margir sérfræðingar fóru yfir verkefnin og að lokum stóðu eftir átján og urðu höfundar þeirra að verja þau fyrir dómnefnd sem síðan kvað upp sinn dóm. Vestfirðir Sú var tíðin að vestfirsk skip röðuðu sér á flesta lista yfir aflahæstu skip. Nú er öldin önnur eins og sjá má á aflatölum fyrir nýliðið fisk- veiðiár sem Fiskistofa hefur birt. Á lista yfir 10 aflahæstu togara og uppsjávarskip er ekkert skip á Vestfjörðum. Á lista yfir aflahæstu báta er Núpur BA í tíunda sæti. Aðeins í flokki smábáta komast Vestfirðingar ofar- lega en þar raða þeir vest- firsku sér í sjö af tíu efstu sætunum. Aflahæsti smábát- urinn er Kristinn SH með 622 tonn en vestfirskir smá- bátar í tíu efstu sætunum eru Guðbjörg ÍS, Einar Hálfdáns ÍS, Hermóður ÍS, Siggi Bjartar ÍS, Svanhvít ÍS, Hrönn ÍS og Kristrún ÍS. Aflahæsta uppsjávarskip- ið á síðasta fiskveiðiári var Hólmaborg SU með 80.189 tonn. Aflahæsti togarinn var Höfrungur III. AK með rúm 9.014 tonn. Aflahæsti bátur- inn er Drangavík með 3.570 tonn. Þar er Núpur BA í 10. sæti með 2.303 tonn. – hj@bb.is Af sem áður var Steinþór Bragason, véltæknifræðingur. Til að svala ættfræðiþorsta lesenda skal þess getið að Steinþór er sonur hjónanna Láru Steinþórsdóttur og Braga Magnússonar í Vélsmiðju Ísafjarðar. Arna Lára er dóttur- dóttir þeirra Láru og Braga, dóttir Sigríðar Bragadóttur og Jóns Veturliðasonar frá Úlfsá. – hj@bb.is andlit og annar bitinn í fingur, auk þess sem hnúum og hnef- um var beitt. Sá mannanna sem þyngri dóminn hlaut hafði áður hlotið tvo skilorðsbundna varðhalds- og fangelsisdóma fyrir of- beldisbrot. Hann rauf nú skilorð í annað sinn og var litið til þess við ákvörðun dómsins. Hinn maðurinn hafði áður hlotið sekt fyrir ofbeldis- brot. – hlynur@bb.is 38.PM5 18.4.2017, 11:482

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.