Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.09.2003, Side 3

Bæjarins besta - 24.09.2003, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 3Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Unnið að aðgerðaáætlun vegna ofanflóða á Ísafirði og í Hnífsdal Ríkar skyldur lagðar á sveit- arfélögin að bregðast við mæti húseignanna sé og hver kostnaðurinn við varnirnar yrði“, segir Halldór. Svæðin sem um ræðir eru Holtahverfi, Seljalandshverfi og byggðin neðan Gleiðar- hjalla á Ísafirði og sunnan- verður og norðanverður Hnífs- dalur. Á öllum þessum svæð- um eru einhver íbúðarhús innan svokallaðra hættumarka C og því er lagaskylda til að verja þau eða kaupa upp. „Lagagrunnurinn er mjög skýr í þessum málum og ríkar skyldur lagðar á sveitarfélögin að bregðast við, annað hvort með vörnum eða uppkaupum. Okkar mat er að það verði að verja sem víðast því við höfum víti til að varast sem er norðanverður Hnífsdalur“, segir Halldór. – kristinn@bb.is Á fundi bæjarráðs Ísa- fjarðarbæjar í síðustu viku kynnti Halldór Halldórsson bæjarstjóri drög að aðgerða- áætlun vegna ofanflóða á Ísafirði og í Hnífsdal. Hættu- mat fyrir áðurnefnd svæði var staðfest af umhverfisráðherra í maí en reglur kveða á um að sveitarfélög skuli leggja fram aðgerðaáætlun innan sex mán- aða frá staðfestingardegi. Halldór segir áætlunina fela í sér sýn sveitarfélagsins á varnaraðgerðir gegn ofanflóð- um og pólítískan vilja. „Í rauninni erum við að taka fyrir hvert svæði og segja hvernig varnir við viljum fara í og hvenær. Þetta er í sjálfu sér einfalt plagg en síðan taka sérfræðingarnir við og vinna málið áfram. Meðal annars þarf að reikna út hvert verð- Hættumatskort fyrir Hnífsdal. Hættumatskort fyrir Ísafjörð. Kristinn Jón Jónsson Brautarholti 13, Ísafirði sem lést aðfaranótt 19. september, verður jarðsunginn frá Ísafjarðar- kirkju laugardaginn 27. september kl. 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Sigurvon á Ísafirði. Ólafía Aradóttir Jón Guðni Kristinsson Ragnheiður Gunnarsdóttir Halldóra Kristinsdóttir Baldur Þ. Jónasson Hugrún Kristinsdóttir Gunnar Gaukur Magnússon og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi SJÓFARENDUR SEM LEIÐ EIGA UM ÍSAFJARÐARHÖFN ATHUGIÐ: Vegna framkvæmda við Ásgeirs- bakka skerðist viðlegupláss hafnar- innar. Þeir sem leið eiga um höfnina eru því vinsamlegast beðnir um að sýna aðgát og láta vita um ferðir sínar með góðum fyrirvara vegna niðurröð- unar í hafnarstæði. Hafnarstjóri Sjónvarps- og útvarpsleysi á Ísafirði Keðjuverkandi röð bilana Endurvarp sjónvarps og út- varps á norðanverðum Vest- fjörðum gekk brösulega á sunnudag og bitnaði það verst á íbúum Ísafjarðar. Að sögn Eggerts Stefánssonar, raf- eindavirkja hjá Landssíman- um, varð röð bilana í kjölfar rafmagnstruflana og raf- magnsleysis til þess að illa Hassflutningur til Ísafjarðar stöðvaður Lögreglan á Ísafirði fann síðdegis á laugardag tæp 90 grömm af hassi. Við venju- bundið eftirlit lögreglu voru þrjú ungmenni stöðvuð á Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði. Um var að ræða tvo unga menn, annan 20 ára og hinn 24 ára, og 16 ára gamla stúlku, sem voru að koma akandi frá Reykjavík. Mennirnir tveir höfðu farið akandi suður daginn áður og kom stúlkan með þeim vestur. Grunsemdir vöknuðu um að ungmennin hefðu fíkniefni í fórum sínum og voru þau og bifreiðin færð á lögreglu- stöðina á Ísafirði. Þar var leitað í bifreiðinni og fannst þá hass- ið auk áhalds til fíkniefna- neyslu. Að auki var 17 ára gamall piltur handtekinn á Ísafirði á laugardag eftir að efnin fund- ust en hann hafði lánað bifreið- ina til ferðarinnar. Hann er grunaður um að eiga aðild að fíkniefnamisferlinu. Við leitina í bifreiðinni naut lögreglan á Ísafirði aðstoðar fíkniefnaleitarhundsins Dofra, sem er í eigu eins lögreglu- varðstjórans á Ísafirði. Þar sannaði Dofri, að mati lögregl- unnar á Ísafirði, að hann skipar sér í hóp fremstu fíkniefna- leitarhunda landsins. – hlynur@bb.is gekk að halda uppi útsending- um. Verst var ástandið síðdegis á sunnudag þegar allar út- varps- og sjónvarpsútsending- ar frá Arnarnesi lágu niðri. Þangað berast öll sjónvarps- og útvarpsmerki um ljósleið- ara og þeim er síðan endur- varpað þaðan. Þegar rafmagn fer tekur ljósavél við og hleður rafgeyma er sinna rafmagns- þörf endurvarpanna. Hleðslu- tæki rafgeymanna bilaði og sjálfvirk aðvörun um bilunina skilaði sér ekki. Því tæmdust rafgeymar og féllu allar sjón- varps- og útvarpsútsendingar niður í rúmlega einn og hálfan klukkutíma. Einnig bilaði Fíkniefnaleitarhundurinn Dofri á Ísafirði sannar getu sína spennugjafi fyrir magnara sem olli því að útsendingar Sýnar féllu niður í miðri útsendingu frá leik í ensku úrvalsdeildinni og olli það ýmsum hugarangri. Á Flateyri datt útsending Stöðvar 2 og Sýnar út um tíma þegar lekaliði sló út vegna tíðra rafmagnstruflana. – hj@bb.is Landsþing JC haldið á Ísafirði Fjöldi erlendra gesta kemur – heimsmethafinn í minnistækni flytur fyrirlestur og kennir list sína Um hundrað gestir eru væntanlegir á landsþing JC- hreyfingarinnar á Íslandi sem haldið verður á Hótel Ísafirði um næstu helgi. Gísli Elís Úlfarsson, forseti JC-Vest- fjarða, segir langt síðan svo margir erlendir gestir og fyrirlesarar hafi komið á landsþing en von er á lands- forsetum JC-hreyfinganna frá Norðurlöndum, Eystrasalts- löndunum og Skotlandi. Þrír erlendir gestir munu flytja fyrirlestra á þinginu. Skoski landsforsetinn Margaret Sheehan leiðbeinir um rök- ræðulist, breski sálfræðing- urinn Paul McGee fjallar um að ná árangri undir álagi og Guinness-methafinn David Thomas kennir minnistækni. Fjölmargt annað stendur JC-félögum til boða á þing- inu. „Fólk á ekki eftir að sofa mikið, bara vinna og skemmta sér“, segir Gísli. Þetta er í annað sinn sem JC-þing er haldið á Ísafirði. Hið fyrra var haldið árið 1975 en þá var starfandi félagið JC-Ísafjörður og var Heiðar Sigurðsson forseti þess. Gísli segir mikla eftirvænt- ingu meðal JC-manna vegna landsþingsins. Þetta sé helsti viðburður ársins hjá JC- hreyfingunni og mikil upp- skeruhátíð. Áðurnefndur David Thom- as er Guinness-heimsmethafi í minnisleikni. Hann ferðast um heiminn og heldur fyrir- lestra og námskeið í minnis- tækni. Guinness-metið setti Thomas árið 1998 þegar hann þuldi upp án þess að skeika 22.500 fyrstu aukastafina í pí. Á JC-þinginu á Ísafirði verður hann með ótrúleg en jafnframt skemmtileg dæmi um það hvað hann getur og hvað hann getur kennt öðrum í minnistækni. 38.PM5 18.4.2017, 11:483

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.