Bæjarins besta - 24.09.2003, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Sara Pálmadóttir fær
styrk úr afrekssjóði
Bygging iðngarða á döfinni á Langeyri við Álftafjörð
„Getum ekki verið annað e
– segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík
Súðavíkurhreppur gekk fyrir skemmstu
frá kaupum á nærri eins hektara landareign
á Langeyri innan nýju íbúðabyggðarinnar í
Súðavík. Deiliskipulag svæðisins hefur verið
kynnt en þar er ætlunin að rísi iðngarðar.
Fyrirhugað er að sveitarstjórnin skipuleggi
ekki aðeins iðnaðarsvæðið heldur hafi for-
göngu um byggingu húsanna og hyggst
a.m.k. fyrst um sinn leiða vinnu við að laða
þangað atvinnustarfsemi. Ómar Már Jónss-
on, sveitarstjóri í Súðavík, segir þá vinnu
sem nú er í gangi byggja á stefnumörkun
sem sveitarstjórnin lagði upp fyrir rúmu ári,
fljótlega eftir að hann tók til starfa.
„Það má segja að þetta séu línur sem við lögðum okkur
síðasta haust. Þá var staðan sú
að flutningi byggðarinnar var
lokið eftir snjóflóðið 1995.
Aftur á móti hefur nánast
ekkert verið unnið í atvinnu-
málum hérna utan að í aðal-
skipulagi er gert ráð fyrir
iðnaðarsvæði á Langeyri.
Þegar ný hreppsnefnd tók við
var farið yfir staðsetningu
iðngarðanna samkvæmt aðal-
skipulagi og ákveðið að halda
sig við þá ákvörðun að hafa
iðngarðana á Langeyri.
Þá fór í gang ferli við að
kaupa landið því Hraðfrysti-
húsið-Gunnvör hf. átti alla
eyrina og hafði það land
tilheyrt gömlu vinnslustöðinni
og verbúðunum á Langeyri.
Landamerki voru óljós og til
að afmarka svæðið studdum
við okkur við efni úr dönsku
skjali frá árinu 1891 sem
fannst á Þjóðskjalasafninu. Í
því eru tilgreind landamerki
sem síðan tók nokkurn tíma
að staðsetja. Landið sem HG
átti reynist um 22 þúsund
fermetrar og við kaupum síðan
9 þúsund fermetra land af
þeim. Það er svæðið sem við
þurfum til að byrja á uppbygg-
ingu nú og hugsanlegum bygg-
ingum seinna.
Í skipulaginu eru fjögur af
sex húsunum staðsett uppi á
möninni milli Langeyrartjarn-
arinnar og húsanna sem áður
var í rækjuvinnsla, saltfisk-
verkun o.fl. Á síðasta hrepps-
nefndarfundi staðfestum við
síðan deiliskipulagið og sett-
um í kynningu.
Á sama tíma erum við að
fara í svipaða vinnu og hefur
nú verið unnin fyrir Ísafjarðar-
bæ, Bolungarvíkurkaupstað
og fleiri, þ.e. er að láta gera
hættumat fyrir svæðið sam-
kvæmt reglugerð frá árinu
2000 þar sem sveitarfélögum
er gert skylt að láta meta hættu
á ofanflóðum þar sem ofanflóð
hafa fallið á eða nærri byggð.
Við höfum sett það ferli af
stað fyrir bæði gömlu og nýju
byggðina í Súðavík, auk Lang-
eyrarsvæðisins. Við reiknum
með að niðurstöður úr því liggi
fyrir um mitt næsta sumar. Við
munum þá fá það staðfest að
Langeyrarsvæðið sé á öruggu
svæði, en samkvæmt forkönn-
un úttektaraðila er svæðið
byggingarhæft “
Munum ekki bara
að byggja hús og bíða
– Í hverju felst þetta framtak
KFÍ vann Vestra:
Hvernig fer í sundinu?
Sérstæð viðureign í körfu-knattleik átti sér stað á Ísa-
firði fyrir helgina þar sem Sundfélagið Vestri skoraði á
meistaraflokk KFÍ. Leiknar voru tvisvar sinn-um sjö
mínútur og mátti sjá mikil tilþrif. Útlending-arnir
spiluðu ekki með KFÍ að þessu sinni og aðal-hlutverkið
léku hinir yngri leikmenn í meistaraflokki. Leiknum
lauk með sigri KFÍ sem skoraði 40 stig á móti 12 stigum
Vestra. Nú hefur KFÍ skorað á Vestra að keppa við sig í
sundi. Óákveðið er hvenær sú viðureign verður.
– hlynur@bb.is
Lið KFÍ og Vestra sem áttust við í körfuboltanum.
Mynd: Þorsteinn J. Tómasson.
Stjórn afreks- og styrktarsjóðs
Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að veita
Söru Pálmadóttur styrk vegna
glæsilegs árangurs hennar í íþróttum
að undanförnu. Sara hefur eins og
kunnugt er leikið með landsliðinu í
körfuknattleik. Einnig sigraði hún í
kúluvarpi og spjótkasti á Unglinga-
landsmóti Ungmennafélags Íslands á
Ísafirði í sumar.
38.PM5 18.4.2017, 11:484