Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.09.2003, Page 5

Bæjarins besta - 24.09.2003, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 5Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is nnað en vongóð“ að koma upp iðngörðum? „Við höfum skipt þessari vinnu upp í þrjá þætti. Það er bygging iðngarðanna sjálfra sem tekur þá til skipulags, lóðamála og grófs skipulags húsanna. Síðan er það rekstrar- form iðngarðanna en það tekur á hugsanlegri aðkomu rekstr- araðila að iðngörðunum, þar sem val stendur um hreina leigu, kaupleigu eða kaup á rými. Í þriðja lagi munum við beita okkur fyrir því að laða til okkar rekstraraðila til að staðsetja sig hér.“ – Stendur þá til að hreppur- inn taki að einhverju leyti þátt í byggingu húsanna? „Í dag sjáum við fyrir okkur að Súðavíkurhreppur þurfi að vera í forsvari fyrir uppbygg- ingunni þar sem þörf er fyrir slíkt húsnæði. Ekkert laust atvinnuhúsnæði er til staðar í Súðavík. Áhaldahús og slökkvistöðin eru á hættu- svæði í ytri byggðinni og síðast en ekki síst viljum við beita okkur fyrir uppbyggingu á atvinnustarfsemi með því að skapa hagstæð rekstrarskilyrði sem megi verða til þess að rekstraraðilar sjái sér hag í að setja hér upp rekstrareiningar. Til þess að það geti gengið eftir munum við skoða rekstrarumhverfið okkar hér sem er nú nokkuð fljótgert. Ætlunin er að meta rekstrar- umhverfi í nágrannasveitar- félögunum, bera það saman við stöðuna í Súðavík og finna lykilþætti þar sem við getum beitt okkur og skapað betra starfsumhverfi. Ef saman- burðinn leiðir af sér að okkur tekst að skapa betri rekstrar- skilyrði hér í Súðavík mun það ekki aðeins hafa jákvæð áhrif á okkar svæði heldur einnig smita út frá sér. Þetta er sú mynd sem við erum að vinna með í dag.“ Traust fyrirtæki verði með hluta starfsins í Súðavík – Hvaða fyrirtæki verða þarna? „Það er einn veigamesti þátturinn, að laða að rekstrar- aðila til að setja sig niður í iðngörðunum. Þar horfum við til rekstrarumhverfisins sem gulrótar en einnig ætlum við að móta okkur sýn á það hvernig starfsemi við sjáum falla vel hér inn. Ég get nefnt sem dæmi fyrstu hugmyndir okkar um það hvað eigi að einkenna slíkt fyrirtæki. Við teljum að stofn- kostnaður rekstrareiningar- innar megi ekki vera mjög hár. Þar erum við að tala um bilið u.þ.b. frá einni og upp í tíu milljónir. Hvað stærðina varð- ar sjáum við að eitt til þrjú stöðugildi geti verið við hverja rekstrareiningu. Eins teljum við að þróunarkostnaður til að setja þessar einingar á fót þurfi að vera í lágmarki. Einnig er mikilvægt að markaður sé til staðar fyrir vöru, að það þurfi ekki að setja mikinn tíma og fjármagn í markaðsetningu. Síðan þarf sérþekking fyrir starfsemina að vera til staðar á svæðinu og reksturinn má ekki krefjast of mikillar nálægðar við markaðssvæðið.“ – Hvernig fyrirtæki upp- fyllir þessar kröfur? „Innan þessa ramma má m.a. nefna ýmiskonar íhluta- framleiðslu fyrir stærri fyrir- tæki sem eru komin af frum- kvöðlastiginu og gætu séð hag sinn í því að taka þátt í eða reka lítil útibú sem væru að framleiða íhluti sem þeir þurfa á að halda til sinnar fram- leiðslu.“ – Má þá segja að ætlunin sé að bjóða fyrirtækjum að út- hýsa hluta sinnar starfsemi? „Já, meðal annars, og ég nefni sem dæmi einstakling á Dalvík sem keypti lítinn rekst- ur með vélum og búnaði frá Reykjavík og framleiðir tapp- ana í körin sem Sæplast fram- leiðir. Mér skilst að sá rekstur gangi vel. Einnig er vert að skoða mögulegan flutning á rekstrar- einingum til okkar samanber t.d. Alpan á Eyrarbakka. Þar var keypt verksmiðja sem var í rekstri í Danmörku og sett upp á Eyrarbakka en fyrrver- andi viðskiptavinir fylgdu með í kaupunum. Síðan voru fyrr- verandi starfsmenn verksmiðj- unnar fengnir til að þjálfa starfsfólk upp og þannig komst sá rekstur á fót. Þetta er spennandi og krefj- andi verkefni og við munum leggja okkar af mörkum til að hér megi fjölga litlum rekstrar- einingum”. Byggingafram- kvæmdir hefjist í vor – Má segja að þetta sé sá flötur sem þið sjáið vænleg- astan til að byrja á í ykkar atvinnuþróun? „Já, þetta er sá flötur sem við viljum skoða umfram aðra. Ég get sagt frá því að við erum að skoða tvær mögulegar rekstrareiningar nú þegar. Þar af gæti a.m.k. annað fyrirtækj- anna sett rekstur af stað strax næsta vor.“ – Myndi hreppurinn þá leiða vinnuna við að nálgast mögu- lega samstarfsaðila? „Já, við munum beita okkur fyrir því að halda þessari vinnu á lofti og fylgja úr hlaði. Síðan munum við leita til vissra aðila við að aðstoða okkur í þessu starfi. t.d. Atvinnuþróunar- félags Vestfjarða, Nýsköpun- arsjóðs, Iðntæknistofnunar og fleiri aðila sem hafa góða þekkingu og geta unnið að þessu með okkur.“ – Núna er þetta smám saman að mjakast af hugmynda- stiginu. Hvað eruð þið að sjá með tímasetningarnar á þess- ari vinnu? „Deiliskipulagið er í kynn- ingu núna og fljótlega munum við fara að skipuleggja gatna- og lagnakerfi. Á næstu vikum munum við byrja á að greina þetta rekstrarumhverfi okkar og ræða við þessa aðila sem ég nefndi áðan. Þessi vinna verður í gangi fram að áramót- um og eitthvað fram á nýtt ár. Síðan er hugmyndin að fara af stað með kynningarátak á rekstrarsvæðinu í mars og apríl 2004 og fyrirhugað er að bygging iðngarðana hefjist næsta vor. Samkvæmt deiliskipulagi er hvert hús 540 fermetrar, sem síðan er hægt að stúka niður. Það væri gott ef við gætum byrjað á tveimur slíkum hús- um strax næsta vor en í heildina gerir deiliskipulagið ráð fyrir sex húsum á svæð- inu.“ Ráðist í verkefnið af fullri bjartsýni – Hvernig er hljóðið mönn- um? Er hugur í Súðvíkingum? „Það er mikill hugur í Súðvíkingum. Við erum að sjá að atvinnuleysi hér er með minnsta móti. Stærsti vinnu- veitandinn á staðnum heldur sínu striki þótt árferðið í rekstrinum hafi verið erfitt fyrri hluta ársins. Hér er allt íbúðarhúsnæði fullnýtt, sem er bæði jákvætt og neikvætt. Sérstaklega er það sárt að hafa ekki laust húsnæði á staðnum þegar fólk spyr um húsnæði til leigu en við verðum að vonumst til að úr því leysist – m.a. eru horfur á að aðili hér muni ráðast í byggingu ein- býlishúss á staðnum innan tíðar. Við höfum nýlega lokið við fyrsta áfangann á glæsi- legu og vel útbúnu tjaldsvæði fyrir ofan félagsheimilið. Mér heyrist ekki annað en að Súðavíkingar fari sáttir inn í veturinn eftir mjög gott sum- ar.“ – Á stuttum tíma hefur Súðavík fengið á sig nokkurn ferðamannastaðarblæ. Mun tjaldsvæðið styrkja hann enn frekar? „Verulega, ferðamannabær- inn Súðavík er kominn til að vera. Útleiga á íbúðum Sumar- byggðar hefur verið að eflast með hverju árinu og við erum að sjá að allir þeir sem eiga eignir í gömlu byggðinni eru að fullnýta þær meira og minna. Súðavík virðist vera að koma sterk inn sem væn- legur ættarmótsstaður og voru í sumar haldin hér sex ættar- mót. Þau voru heilmikil lyfti- stöng fyrir þjónustufyrirtæki hér og settu mikinn svip á samfélagið okkar. Við bættum við nýjum viðburði í sumar undir heitinu Bryggjudagar í Súðavík. Sá viðburður tókst vonum framar, að ógleymdu Listasumri í Súðavík sem stendur ávallt fyrir sínu. Einnig höfum við verið að þróa ýmiskonar uppákomur og viðburði, svo sem tónleika- hald, pakkaferðir til Súða- víkur, hjónadaga og fleira sem verður áhugavert að fylgjast með hvernig rekur sig. Þannig held ég að við getum ekki verið annað en vongóð og tökumst á við áhugaverð og spennandi verkefni af fullri bjartsýni“, sagði Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík. – kristinn@bb.is Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi. Birkir og Matthías leika á EM í Litháen Lúkas Kostic, þjálfari íslenska U17-landsliðsins, hefur valið þá Birki Sverrisson og Matthías Vilhjálmsson, leikmenn þriðja flokks Boltafélags Ísafjarðar, til að leika fyrir Íslands hönd í undankeppni Evrópukeppni U17 landsliða karla sem fram fer í Litháen 24. til 28. september. Í sumar voru þeir valdir til að leika með U17-landsliðinu á opna Norðurlandamótinu sem haldið var í Noregi. – kristinn@bb.is Verktakafyrirtækið Kubbur ehf. átti lægsta tilboðið í fyrsta áfanga gatnagerðar í nýju íbúðahverfi á Tungu- skeiði í Skutulsfirði. Tilboð fyrirtækisins var tæpar tuttugu milljónir króna og var það 64% af kostnaðar- áætlun. Hólsvélar ehf. og Úlfar ehf. buðu einnig í verkið og voru þau tilboð bæði einnig nokkuð undir kostnaðar- áætlun. Á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að tilboði Kubbs ehf. í verkið yrði tekið. – hj@bb.is Kubbur með lægsta tilboðið í gatnagerð Knattspyrnumark fauk á bíl í Súgandafirði á sunnudag og var það eina málið sem kom inn á borð lögreglunnar á Ísafirði vegna veðurofsa um liðna helgi. Lögregla vill minna vegfarendur á að vara sig á hálku og fara varlega í umferðinni þegar snjór er á götum. Að sögn lögregl- unnar á Ísafirði var helgin að mestu róleg. Á föstudags- kvöld voru höfð afskipti af fjórum ungmennum á Ísafirði vegna ölvunar en þau höfðu ekki aldur til. Hald var lagt á áfengi hjá tveimur þeirra og einum var ekið heim. – kristinn@bb.is Veðurofsinn: Mark fauk á bíl 38.PM5 18.4.2017, 11:485

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.