Bæjarins besta - 24.09.2003, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
maður vikunnar
Nafn: Óðinn Gestsson.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: 15. júní 1959 á Suðureyri
við Súgandafjörð, nánar tiltekið ofan við Sjöstjörnuna
þar sem Sæluhelgin fer fram.
Atvinna: Framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Íslands-
sögu hf.
Fjölskylda: Konan mín heitir Pálína Margrét Möller
Pálsdóttir og eigum við þrjár dætur, þær Tinnu, Töru
og Veru. Síðan fylgir elstu dóttur okkar tengdasonur
og einn afastrákur, hann Óðinn Freyr.
Helstu áhugamál: Golf og endurreisn Vestfjarða til
fyrri virðingar í íslensku samfélagi.
Bifreið: Mitsubishi Pajero árgerð 1998.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Sama.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Skipstjóri og það rættist.
Uppáhalds matur? Ég held að það sé kjúklingarétt-
urinn hennar Pálu minnar, en síðan svíkur lærið hjá
tengdamömmu aldrei.
Versti matur sem þú hefur smakkað? Svikinn héri
sem mágur minn hann Addi Högna pantaði sér á
matsölustað sem staðsettur er ofarlega í Eiffelturnin-
um í París. Það var skelfilegt.
Uppáhalds drykkur? Kaffi og kók.
Uppáhalds tónlist? Rokk.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? Manchester
United.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Vinir og enski boltinn.
Uppáhalds vefsíðan? mbl.is og bb.is
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Harry Potter
myndirnar. Við Vera dóttir mín höfum séð þær báðar
og haft ákaflega gaman af.
Fallegasti staður hérlendis? Vestfirðir séð frá hafi.
Fallegasti staður erlendis? Það er af mörgu að
taka en Barcelona-svæðið á Spáni hefur heillað mig.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Mátulega.
Uppáhalds heimilistækið? Kaffikannan.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Spila
golf.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Óstundvísi og óheilindi. Tími minn er jafn mikilvægur
og tími þinn. Ef maður segist ætla að gera eitthvað þá
á maður að standa við það.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Hugsa já-
kvætt og spila golf.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-
ast? Já.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Þegar ég var tólf ára gamall og á gangi með mömmu
niður Laugarveginn og gekk beint á ljósastaur og
varð hálfvankaður á eftir. Það var mjög niðurlægjandi
fannst mér, sérstaklega með tilliti til þess hver var
með mér og hvað ég var gamall.
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir
þú breyta? Ég myndi vinna að því að breyta hugs-
anagangi margra gagnvart bæjarfélaginu. Það er
ekki sjálfsagt að fá allt frá bænum. Það er ekki sjálf-
sagt að bæri geti bara borgað. Það er mikilvægt að
þeir sem stjórna bænum hafi aðhald en þeir verða þá
að geta treyst því að fá eitthvað á móti frá bæjarbúum.
Lífsmottó? Reyni alltaf að gera mitt besta.
Skemmti-
legast að
spila golf
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Hef til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Kristinn Jón Jónsson, fyrr-
um bæjarfulltrúi og um skeið
bæjarstjóri á Ísafirði, andað-
ist aðfaranótt síðastliðins
föstudags eftir tveggja daga
legu á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði, 68 ára að aldri.
Hann hafði átt við krabba-
mein og mikla vanheilsu að
stríða hátt á annað ár en
starfaði þó af fullum krafti
að hugðarefnum sínum fram
undir það síðasta. Þannig var
hann í undirbúningsnefnd
Unglingalandsmóts UMFÍ
sem haldið var á Ísafirði um
verslunarmannahelgina í
sumar og vann þar mikið og
gott starf. Hann var jafnframt Kristinn Jón Jónsson.
formaður Héraðssambands
Vestfirðinga til dauðadags.
Kristinn Jón vann lengst af
starfsævinni hjá Vegagerð-
inni, þar af sem rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar á Ísafirði í
tuttugu ár. Hann gegndi ótal-
mörgum trúnaðarstörfum um
dagana og vann að margvís-
legum félagsmálum. Meðal
annars var hann bæjarfulltrúi
á Ísafirði fyrir Framsóknar-
flokkinn í 12 ár. Þá var hann
löngum ýmist forseti bæjar-
stjórnar eða formaður bæjar-
ráðs og auk þess starfandi
bæjarstjóri um skeið. Hann
átti á sínum tíma sæti í stjórn-
um Orkubús Vestfjarða og
Fjórðungssambands Vestfirð-
inga og fjölmörgum öðrum
nefndum og ráðum.
Undirritaður hafði vegna
starfa sinna mikil samskipti
við Kristin Jón síðustu sautján
árin og mikil og góð kynni af
honum persónulega. Til hans
var gott að leita eftir hvers
konar upplýsingum og ein-
kenndust þau samskipti öll af
ljúfmennsku, greiðvikni og
trausti. Honum skulu fyrir
hönd Bæjarins besta og áður
Vestfirska fréttablaðsins færð-
ar einlægar þakkir að leiðar-
lokum og aðstandendum hans
vottuð samúð. Eftirlifandi
eiginkona Kristins Jóns Jóns-
sonar er Ólafía Aradóttir.
Þau eignuðust þrjú börn sem
öll lifa föður sinn.
– Hlynur Þór Magnússon.
Kristinn Jón Jónsson látinn
Sameining Íslandsbanka hf. og Sjóvár-Almennra hf.
Óvíst um áhrif á
starfsemina á Ísafirði
Í kjölfar frétta af fyrirhug-
aðri sameiningu Íslands-
banka hf. og Sjóvár-Al-
mennra hf. vakna spurningar
um stöðu fyrirtækjanna á Ísa-
firði en bæði þessi fyrirtæki
halda þar úti starfsemi. Hjá
Sjóvá-Almennum eru fimm
starfsmenn vestra, þar af
einn í Bolungarvík. Að sögn
Torfa Einarssonar svæðis-
stjóra hefur hluti starfsem-
innar verið fjarvinnsla, þ.e.
störf sem ekki tengjast beint
starfseminni á svæðinu. Hann
segir að það hafi verið stefna
fyrirtækisins að undanförnu að
færa frekar störf til lands-
byggðarinnar eða í þeim til-
vikum þegar staðsetning skipt-
ir ekki máli.
Torfi hefur eðlilega ekki
fengið neinar upplýsingar um
hvaða breytingar sameiningin
kunni að hafa á starfsemina
vestra. Hins vegar vonar hann
að aukinn þungi verði færður
í flutning starfa út á land.
Í útibúi Íslandsbanka á
Ísafirði eru 9,7 stöðugildi, að
sögn H. Magnúsar Sigurjóns-
sonar útibússtjóra. Þeim hefur
fækkað nokkuð undanfarin ár.
Flestir voru starfsmenn útibús-
ins um átján fyrir nokkrum
árum. Magnús segir það hafa
verið stefnu bankans að hafa
eina bakvinnslu í Reykjavík.
Hann treystir sér ekki til þess
að spá um þróun mála nú þegar
fyrirtækin virðast stefna í
sameiningu. Tíminn einn geti
leitt það í ljós.
Tilviljanir geta verið
skondnar. Sjóvá-Almennar á
Ísafirði eru við Silfurtorg í því
húsnæði þar sem útibú Íslands-
banka var áður en það fluttist í
Stjórnsýsluhúsið hinum megin
við torgið.
– hj@bb.is
Dýrafjörður
Bleikir akrar
og slegin tún
Bændur og búalið frá nær-
liggjandi bæjum hafa komið
að skera korn fyrir hænur
sínar hjá þeim félögum. Fer
það þannig fram, að skorið er
niður við rót og stráin síðan
bundin í bundini eins og á
tímum Móse og hans fólks
og síðan hengt upp á þurrum
stað, í gömlun hlöðum eða
slíkum byggingum. Ekki eru
til staðar kornsigðir af skiljan-
legum ástæðum og nota menn
þá bara bredduna eða garð-
klippur.
Knútur bóndi á Kirkjubóli
kastaði einu hneppi fyrir
hænurnar í síðustu viku og
ætluðu þær vitlausar að verða
að fá svona íslenskt kornmeti.
Taldi Knútur að þeim hafi
fundist það miklu betra en
búðarkornið.
Nú vantar ekkert nema
kornþreskivél fyrir næsta
sumar, segja kornbændurnir
í Dýrafirði.
– thingeyri.com
Kornrækt tíðkaðist hér-
lendis í fornöld en er nú aftur
hafin á Íslandi eins og menn
vita. Svo er einnig í Dýra-
firði, t. d. á Sveinseyri, eins
og fram kom á Þingeyrar-
vefnum í síðustu viku. Þar
bylgjaðist kornakur í sumar
hjá þeim Hólabændum, Frið-
bert Kristjánssyni og Guð-
brandi Stefánssyni. Einnig
mun Kristján bóndi í Miðbæ
hafa komið þar eitthvað við
sögu. Um er að ræða tveggja
og sex raða bygg, en það
kallast svo eftir því hvernig
kornið raðar sér á stöngulinn.
Er skemmst frá því að
segja, að tvisvar hafa þeir
félagar slegið akurinn í
sumar og hefur hann borið
frag (fræ) í bæði skiptin og
var seinni vöxturinn meiri.
Sáð var 5. maí að sögn
Friðberts bónda og fyrri
sláttur viku af ágúst. Stefnir
í þriðju uppskeru ef fer sem
horfir.
– nærri sex þúsund tonn flutt milli ára
mikla kvóta sem færist milli
ára eru til ráðstöfunar tæp
26.000 tonn eða rúmlega allur
afli síðasta fiskveiðiárs.
Verð á leigukvóta liðins
fiskveiðiárs var mjög misjafnt
samkvæmt upplýsingum
kvótasala. Í upphafi var kíló-
verðið 10-12 krónur en fór síð-
an lækkandi er leið á fiski-
veiðiárið. Undir lokin voru
menn farnir að gefa kvóta.
Ekki er komin hreyfing á
leigukvótasölu í rækju á yfir-
standandi fiskveiðiári. Því er
ekki tímabært að segja hvert
verður upphafsverð á leigu-
kvóta. – hj@bb.is
Á liðnu fiskveiðiári sem
lauk 31. ágúst varð umtals-
verður kvóti úthafsrækju eftir
ónýttur. Samtals 30.000 tonn-
um var úthlutað og milli ára
voru flutt tæp 7.000 tonn. Voru
því tæp 37.000 tonn til ráðstöf-
unar á liðnu fiskveiðiári. Afl-
inn varð rúm 24.000 tonn. Til
yfirstandandi fiskveiðiárs
voru flutt tæp 6.000 tonn og
féllu því niður ónýtt tæp 7.000
tonn.
Á nýbyrjuðu fiskveiðiári
úthlutað í upphafi 20.000
tonnum sem er þriðjungs
minnkun frá endanlegri úthlut-
un síðasta árs. Vegna hins
Mikill rækju-
kvóti ónýttur
38.PM5 18.4.2017, 11:486