Bæjarins besta - 24.09.2003, Qupperneq 10
1 0 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
ur sem rigning á hálendinu og
kemur upp nokkur hundruð
árum seinna sem heitt vatn, í
holu sem þeir hafa borað í
jörðina mína uppi í Mosfells-
dal – á meðan þeir borga ekk-
ert fyrir það, þá á þetta fólk
ekkert að tala um auðlinda-
gjald því einhver mesta auð-
lind sem fólk nýtur í dag er
auðvitað þetta heita vatn sem
fólk nær upp úr jörðinni hér
og þar.“
Hringlið með
kvótakerfið
– En nú fær þessi hugmynd
um auðlindagjald byr undir
báða vængi á síðasta áratug
þegar kvótaverð hækkar mikið
og kvótinn verður að peninga-
legu verðmæti. Margir högn-
uðust verulega á þeirri þróun
og þurftu ekki endilega svo
mörg tonn til að ná í álitlega
upphæðir.
„Á sama tíma lækkuðu skip
niður úr öllu valdi og urðu
ekki eins mikils virði og kvót-
inn. Þarna var verið að fækka
skipum og í gangi lög sem
öllum fannst mjög skynsamleg
en Vatneyrardómurinn ógilti.
Markmiðið var að eyða út
hundruðum skipa sem voru
orðin gömul en þeir sem eftir
sátu hefðu þá átt að eiga nægan
kvóta í þeim niðurskurði sem
var í gangi.
Þá fer að stað samkeppni.
Hver um sig ætlaði að ná í
kvóta sem dygði til að lifa af.
Þegar tveir sækja í sama hlut-
inn, þá hækkar hann í verði.
Þetta gerðist aftur og aftur og
gerist enn þann dag í dag.
Þorskveiðiheimildir í króka-
aflahámarkskerfinu kostuðu
um 470 krónur á kílóið fyrir
einu og hálfu ári en hækkuðu
upp í 600 krónur á nokkrum
vikum. Núna er þessi kvóti, út
af talinu um línuívilnun, kom-
inn upp í 900 krónur.“
– Nú virðist þetta gerast aft-
ur og aftur að það eru tilfær-
ingar á milli útgerðarflokka
og á milli landshluta sem oft
bitna á þeim sem síst skyldi.
Er hægt að byggja framtíð á
því að menn séu að slást um
sömu bitana fram og til baka?
„Auðvitað hafa menn fund-
ið til hér og víða annars staðar
út af alls konar ósanngjörnum
gjörningum í gegnum tíðina
en hvorki ég né einhver annar
breytum orðnum hlutum. Ég
get ekki verið að skammast
yfir því í dag sem gerðist 1992,
1996 eða 1998. Ég hélt þegar
menn settu þetta kvótakerfi á
að verið væri að koma því á til
að vera. Þó það hafi ekki verið
sett á alla, ekki trillurnar fyrst,
þá myndi það einfaldlega vera
aðlögunartími sem þeir fengju
en þeir virðast vera að fá þenn-
an aðlögunartíma aftur og aft-
ur. Menn virðast ekki hafa tek-
ið kerfið alvarlega. Þess vegna
hafa öll þessi göt verið á því.
Núna hafa trillusjómenn
verið að hringja í mig alls stað-
ar af landinu og átta sig á að
auðvitað verður tekið af þeim
jafnt og öðrum ef farið verður
í línuívilnun. Þeir geta ekki
allir farið á línu. Þó ég tali um
þetta og mér finnist þetta, þá
er auðvitað verið að taka lang-
mest af stóru fyrirtækjunum.
En það er ekkert tekið meira
af hverjum manni hjá þeim en
af hverjum manni hjá mér eða
hverjum manni á trillu í Sand-
gerði. Ég hefði viljað að þetta
kerfi hefði verið sett á af meiri
festu og meiri ákveðni á sínum
tíma og væri orðið fast í sessi.
Mér finnst það miður að menn
séu alltaf að takast á um sömu
hlutina, aftur og aftur. Mér
finnst það t.d. mjög furðulegt
að sjómenn skuli ekki geta
sest niður og rætt saman um
hvað sé skynsamlegast og best,
að það skuli ennþá koma upp
að trollin séu að eyðileggja
botninn í kringum landið þegar
bestu miðin eru þau sem búið
er að trolla á í hundrað ár.“
Menn eiga ekki að böl-
sótast hver út í annan
– Fyrir 20 árum gengu
klögumálin á víxl. Sunnlend-
ingar sökuðu Vestfirðinga um
smáfiskadráp og Vestfirðingar
brigsluðu þeim til baka um að
drepa allan hrygningarfiskinn.
Menn hafa í gegnum tíðina
reynt að halda því á lofti að
sumir stundi góðan sjávarút-
veg og aðrir slæman, en er
þetta nokkurn tíman svona
einfalt?
„Auðvitað þurftum við að
svara fyrir okkur á sínum tíma
en ég held að allir hafi eitthvað
fyrir sér í þessu. Það er svolítið
til í því að við vorum að drepa
smáfisk. Hér á Vestfjarðamið-
um er smár fiskur og ég veit
að togaramenn þurfa að passa
sig. Þeir þurfa að forðast vissar
slóðir á vissum tímum en auð-
vitað lærist það fljótt. Ég held
að Sunnlendingarnir séu farnir
að sjá það líka að það gengur
ekki að drepa eingöngu tíu
kílóa fisk.
Það alvitlausasta sem ég hef
heyrt í þessum anda í seinni
tíð er þegar mennirnir sem
voru á stærstu togurunum,
með stærstu trollin og stærstu
hlerana, eru farnir að tala hæst
um hversu agalegt það sé að
togarakarlarnir séu að eyði-
leggja botninn. Miðin í kring-
um Ísland eru yfirleitt öll á
yfir fjörutíu metra dýpi. Ég er
búinn að vera kafari mestalla
mína ævi og veit að það þrífst
enginn gróður á því dýpi. Þeg-
ar gruggugur sjórinn er farinn
að hamla sólarljósinu að kom-
ast niður á botninn, þá verður
enginn gróður. Það er sem er
þar fyrir neðan er ýmiskonar
dýraríki sem lifir í botninum,
við hann og á honum. Menn
eru þá að röfla um að þetta
dýraríki verði fyrir skaða af
trolli og snurvoð.
Mér finnst það alvarlegur
hlutur að þessir menn eins og
forystumenn Landssambands
smábátaeigenda sem eru að
reyna að koma því inn hjá
þjóðinni og ráðamönnum að
allt annað en kyrrstæð veiðar-
færi séu skaðleg, skuli þó ekki
taka mark á því sem vísinda-
menn eru búnir að gera. Það
var kortlagður botn sunnarlega
í Faxaflóanum og dregið yfir
hluta hans með einhverjum
dragveiðarfærum og lífríkið
kannað fyrir og eftir. Þegar
þessir reitir voru bornir saman
kom í ljós að langmesta lífið
var þar sem búið var að draga
yfir. Þar var búið að plægja
botninn, alveg eins og bóndinn
þarf að gera við jörðina hjá
sér.
Það eru til rannsóknir sem
segja að það sé enginn skand-
all þó troll séu dregin yfir botn.
Enda væri það fjandakornið
furðulegt að bestu miðin sem
oftast eru talin hér við Íslands-
strendur, Halamiðin, séu enn-
þá að gefa vel eftir 100 ára
trollveiðar. Það eina sem hefur
gerst er að það er að verða
minna og minna af grjóti. Tog-
ararnir hafa tekið upp grjót og
komið með í land. Auðvitað
eru til hraun hérna á Íslandi
sem togarakarlar hafa verið
að reyna að slétta til að fá búra
eða eitthvað slíkt. En var
einhver skaði skeður? Eftir tíu
til tuttugu ár hefði set sest í
þessi hraun og gert þau að
sléttum leðjubotni.
Ég held að menn eigi ekki
að fara svona offari í að böl-
sótast í hinum. Ég get alveg
sagt á móti, hvað áhrif hefur
allt þetta blý haft sem er dreift
í botninn af skakkörlum? Þetta
eru bestu vinir mínir en ég sé
koma hingað flutningabíl eftir
flutningabíl af blýsökkum sem
menn eru að týna í botninn
hringinn í kringum landið.
Menn æða upp um fjöll af því
það er talið að þar sé rafgeyma
að finna sem innihaldi blý en
enginn segir neitt við þessu.“
Vestfirðingar með
önnur sjónarmið
– Er tilhneiging til að draga
menn í dilka, góða eða slæma?
„Mér finnst þetta allt vera
ágætis menn. Og það er svo
einkennilegt að mér finnast
sjómenn alltaf vera toppfólk,
eða betri en margir aðrir, skul-
um við segja. Margir af þess-
um mönnum sem eru ekki
endilega sammála mér um
línuívilnum eða kvótamál yfir-
leitt eru fínir menn og vinir
mínir. Enda ekkert að því þeir
mega hafa sína skoðun. En
það er alveg ástæðulaust að
gera mig að einhverju við-
undri.
– Má ekki segja að fólk sem
stundar útgerð eigi það sam-
eiginlegt að eiga mikið undir
afkomu fyrirtækja sinna,
stundum jafnvel aleiguna? Er
í því tilliti einhver munur á
Þorsteini Má í Samherja, þér
eða trillukarli? Eiga ekki allir
útgerðarmenn það sameigin-
legt að þurfa að gæta hags-
muna sinna mjög vandlega?
Stundum er talað eins og hér
séu ólíkar tegundir á ferðinni,
hjá sumum sé það lífsstíll að
yrkja náttúruna meðan aðrir
séu eingöngu drifnir áfram af
peningasjónarmiðum.
„Ég held að það sé munur
þarna á. Mér finnst eins og ég
hallist nær því að vera náttúru-
lega sinnaður í þessu. Ég er
bifvélavirki og fór að sjá eftir
því mjög fljótlega eftir að ég
byrjaði. Ég hef haldið mig al-
farið við það þar til sonurinn
minn kom og dreif mig með
sér í útgerðina. Ég var alltaf í
bátum og var alltaf blautur.
Við erum ekkert að reikna
út hvað við eigum mikið enda
erum við ekkert að selja frá
okkur kvóta heldur höfum við
verið að koma okkur inn í
þetta. Ef við höfum getað
haldið okkar hlut, borgað af
lánunum og rúllað áfram, þá
erum við mjög sáttir.
Þorsteinn Már er eflaust á
svipuðum nótum eftir því sem
manni skilst, alinn upp í fjör-
unni, sonur sjómanna og allt
það. Margir þeir sem eru með
honum í hinum stóra Samherja
eru hins vegar alfarið í bísnis,
þeir eru einfaldlega að kaupa
hlutabréf. Ég held að það sé
til fullt af útgerðarmönnum
sem ég reyndar þekki ekki sem
eru einfaldlega í bísnis. Vel-
flestir sem eru hérna í kring,
eins og sjómennirnir og út-
gerðarmennirnir hérna í Bol-
ungarvík, þeir eru það sem ég
held að megi kalla náttúru-
börn, hafa verið aldir upp við
þetta. Þeir vilja hafa í sig og á
og byggja upp blómlega út-
gerð en það skiptir þá ekki
öllu máli hvar gróðinn er.
Þannig held ég að sé með
velflesta Vestfirðinga. Ég
hugsa að margir þeirra fari og
setji niður kartöflur eða eitt-
hvað í þeim dúr þegar vel hefur
gengið.
Á sínum tíma vann ég mikið
fyrir Jóakim heitinn Pálsson í
Hnífsdal. Hann sagði mér um
það bil einu sinni á ári hvað
hann ætti mikið í bankabók-
inni hjá Mjölvinnslunni. Það
var ekki til að spreða heldur
hafa í bakhöndinni ef eitthvað
skyldi bila. Hann masaði ekk-
ert um hagnað á þessum eða
hinum ársfjórðungnum en ef
skipta þyrfti um þurrkara, þá
var hann með allt á þurru í
bókinni. Ég man eftir því að
einu sinni stóðu yfir miklar
breytingar á Mjölvinnslunni
og fyrirtækið átti fyrir þeim
eins og þær voru hugsaðar í
upphafi. Síðan á lokasprettin-
um kom í ljós að það þurfti að
bæta einhverju við og breyta
heldur meira svo framkvæmd-
in varð dýrari en sem nam
innistæðunni í bókinni – þetta
var hann ekki ánægður með
kallinn. Þessi sjónarmið eru
allt önnur en stóru bankapúk-
arnir eru með í dag.“
„Sveitarfélag sem mis-
munar fólkinu sínu“
– Frægt bréf þitt til bæjar-
stjórnar Bolungarvíkur var
töluvert til umræðu fyrir
skemmstu og vakti fjölmiðla-
athygli á landsvísu. Áttirðu
von á þessum viðbrögðum?
„Nei, ég átti ekki von á
þessu. Ég sendi þetta bréf inn
af því að ég er í rauninni mjög
sár og fúll yfir því að bæjar-
yfirvöld skuli ekki átta sig á
því að þetta er ekki þeirra mál.
Ég var þarna í átta ár í bæjar-
stjórn og man ekki eftir að þar
kæmu upp mál sem væru af-
greidd þannig að við værum
að gera upp á milli manna,
eða frá einni útgerðartegund
til annarrar eða eitthvað því-
umlíkt. Enda getur maður ekki
ímyndað sér að borgarstjórn
Reykjavíkur myndi beita sér
fyrir því að beina leigubíla-
viðskiptum allra þeirra sem
fara um Reykjavíkurflugvöll
til Hreyfils en ekki BSR. Auka
kvótann hjá Hreyfli eða öfugt.
Hverjum dytti í hug að ræða
það inni á borgarstjórnar-
fundi?
Þannig var ég einfaldlega
að láta sveitarstjórnina hérna
vita að ég væri búinn að fá
nóg af þessu
Hér verða menn svo brjál-
aðir af því að ég fæ betra verð
fyrir fiskinn minn á Flateyri.
Aftur á móti hafa menn hring-
inn í kringum landið þakkað
mér fyrir að hafa opnað þetta
mál. Ég ætlaði nú ekki að opna
þetta mál svona á landsvísu
og það er auðvitað gamanmál
að ég sé að vinna fyrir LÍÚ.
Ég tilheyri ekki neinum félög-
um af þessu tagi.
Mér heyrist að ansi margir
útgerðarmenn séu í svipaðri
stöðu og ég. Ansi margir út-
gerðarmenn eru kannski með
um tvö hundruð tonn á bátun-
um sínum en hafa reiknað út
að þeir ættu að vera með um
150 tonn til viðbótar. Það eru
þau 150 tonn sem myndu gera
gæfumuninn. Sjálfsagt hugsa
margir að neyðarúrræðið verði
að fara á línu, verði þeir skornir
niður enn einu sinni. Þetta er
óhagkvæmt veiðarfæri sem
við erum búnir að leggja af
oftar en einu sinni en tökum
alltaf upp í einhverjum götum,
á trillunum og línutvöföldun-
inni sem var. Það þarf alltaf
einhvern bónus eða niður-
greiðslur til að fá menn til að
vinna svo óhagkvæma vinnu.
Þannig eru ansi margir bátar
þarna við röndina að stunda
undir rekstri vegna kvótastöð-
unnar. Margir þessara kalla
segja við mig að þeir hafi verið
á línu í mörg og aldrei fengið
krónu út úr því. Þess vegna
munu margir þeirra hætta ef
þeir eru skornir frekar niður.
Nota tækifærið meðan verðið
er hátt og selja sitt dót. Fyrir
mig er þetta of mikið af hinu
góða, ég læt þetta ekki yfir
mig ganga öllu lengur að sveit-
arfélagið mitt sé að berjast á
móti mér. Ég verð bara að taka
því sem misvitrir þingmenn
gera. En að hafa ekki frið frá
sínu sveitarfélagi er síðasta
sort.
Ef bæjarstjórnin heldur
þessum stuðningi sínum
áfram, þá fer ég héðan, ég er
ekkert að hóta því heldur ein-
faldlega segja mína meiningu.
Ég sé ekki skynsemina í því
að hóta einhverju sem síðan
er ekki staðið við. Ég hef ekki
áhuga á að búa í sveitarfélagi
sem mismunar fólkinu sínu
eins og mér finnst hafa verið í
gangi.“
Vill fá að vera í friði
– Má vera að mönnum hafi
e.t.v. hlaupið heldur mikið
kapp í kinn í þessari smábáta-
baráttu? Nú virðist sú útgerð
hafa verið blómleg í Bolung-
arvík og menn verið að byggja
upp sinn tækjakost.
„Veistu hvað, ég dáist að
þeim mönnum. Mér finnst al-
veg eðlilegur hlutur að hæla
þeim enda hafa þeir staðið sig
alveg frábærlega vel. Þetta eru
hörkuduglegir strákar og eiga
Opnuð hafa verið tilboð í niðurrekstur stálþils á Ásgeirs-
bakka í Ísafjarðarhöfn. Lægsta tilboð barst frá Guðlaugi
Einarssyni í Hafnarfirði að upphæð rúmar 37 milljónir
króna. Eru það 95,6% af kostnaðaráætlun Siglinga-
stofnunar Íslands. Tvö önnur tilboð bárust í verkið.
Annað sem var frá Íslenskum verktökum í Mosfellsbæ
var á kostnaðaráætlun. Hitt sem var frá Gáma- og
tækjaleigu Austurlands var rúmlega 12% yfir áætlun.
Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur til að gengið verði
að lægsta tilboði. Áætluð verklok eru 28. nóvember.
Ásgeirsbakki: Lægsta
tilboð úr Hafnarfirði
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sýslumaður á Ísafirði,
hefur óskað eftir því að stofnuð verði samráðsnefnd í
umdæminu. Tilgangurinn er, eins og segir í bréfi um
þetta mál, „að skapa vettvang fyrir samskipti og sam-
vinnu lögreglunnar og sveitarfélaga í umdæminu, m.a. til
að gera tillögur um úrbætur í málefnum sem varða lög-
gæslu í umdæmi hennar og að beita sér fyrir því að al-
menningi verði kynnt starfsemi lögreglunnar, sem og að
efla forvarnir til viðnáms gegn afbrotum og ýmsum öðr-
um félagslegum vandamálum í sveitarfélaginu.“
Stofnuð verði samráðs-
nefnd um löggæslumál
Ekki borgað með tón-
listarnámi í Reykjavík
Meirihluti bæjarráðs Ísafjarðarbæjar leggur til við
bæjarstjórn, að felld verði sú tillaga fræðslunefndar, að
bæjarfélagið greiði kostnað vegna nemenda úr sveitar-
félaginu sem stunda tónlistarskólanám í Reykjavík.
Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar lagði til, að „sveitarfélag-
ið greiði fyrir þá nemendur sem eiga lögheimili í Ísa-
fjarðarbæ og stunda tónlistarnám á framhaldsskólastigi
í Reykjavík.“ Meirihluti bæjarráðs telur að þetta eigi
„alfarið að vera á hendi ríkisins“ eins og segir í bókun
meirihluta ráðsins. – hj@bb.is
38.PM5 18.4.2017, 11:4810