Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.09.2003, Qupperneq 11

Bæjarins besta - 24.09.2003, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 11Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is allan sinn rétt. En þeir eiga ekkert meiri rétt en aðrir. Það er gaman að þeim skuli ganga vel, það er ekki nokkur spurn- ing. Ég hef trú á því að vegna þessarar uppbótapólítíkur sem verið hefur í gangi, m.a. vegna kvótasetningar á ýsu og stein- bít, hafi menn verið komnir á vonarfyllirí. Strax og búið að var að negla þetta allt inn á bátana hjá þeim þótti sjálfsagt að biðja um það næsta. Þess vegna hafi þessi línuívilnun- arumræða komist af stað. Ég er ekki viss um að hún hafi verið mjög ígrunduð og ég er ekki viss um að allir séu henni sammála í hópnum.“ – Menn hafa gagnrýnt út- gerðina hjá þér fyrir að landa litlum afla í Bolungarík. Síð- ustu þrjú ár hefur allur afli frá þér komið að landi á Patreks- firði, í Súðavík og Bolungar- vík en mest á Flateyri. „Við höfum haldið okkur nær eingöngu innan Vest- fjarða. Eftir jarðgöng skiptir ekki máli hvort við löndum í Bolungarvík eða á Flateyri. Þaðan er gott að gera út og vel tekið á móti okkur. Hins vegar erum við ekkert meira bundnir þeim en við semjum um frá einum tíma til annars. Aðrir gætu komist þar inn ef þeir byðu betur. Rækjunni höfum við landað í Súðavík þegar við höfum sótt hana. Við höfð- um samband við nokkrar rækjuverksmiðjur á norðvest- urhorninu og báðum um verð í rækjuna. Af þeim sem svör- uðu mér bauð HG í Súðavík langhagstæðasta verðið. Strákarnir á bátnum hjá mér hafa verið þrír frá Þingeyri, tveir frá Súgandafirði, einn frá Ísafirði og þrír héðan frá Bol- ungarvík. Er ég vondur Vest- firðingur? Það er alveg ömur- legt að hlusta á sumt af þessu kjaftæði. Hvað hef ég gert? Ég er bara að reyna að lifa og bið bæjarstjórnina um að sinna sínum verkefnum en hvorki ráðast á mig né aðra. Ég er að biðja um að fá að vera í friði en síðan er byrjað að ráðast á mann og gera að einhverju viðundri.“ Tækifæri opnast fyrir unga Vestfirðinga – Síðustu ár hafa verið miklar deilur um sjávarútveg- inn, að einhverju leyti innan hans en kannski mest í kring- um hann, ef svo má að orði komast. Það sem meira er, það er engin niðurstaða í sjónmáli, þetta virðist engan enda ætla að taka. Hvað sjá menn í þinni stöðu fyrir sér í þessum mál- um? „Ég bíð hræddur. Fyrir kosningarnar í vor var ég dauð- hræddur. Mér finnst það með ólíkindum að stjórnmála- flokkar geti tekið þetta fjöregg okkar og leikið sér með það. Hvað verður eftir þegar búið er að prófa þessa hugmyndina og hina? Það er miklu betra að reyna að koma á friðsæld og rólegheitum í þessu kerfi og taka síðan fyrir það sem betur má fara en að ætla í einhverjar byltingar. Auðvitað er margt í þessu kerfi sem þyrfti að laga. Ég gæti haft langt mál um fleti sem ég vildi skoða betur og aðrir sjá eflaust enn aðra punkta sem mætti bæta. Að við tölum ekki um allt sögu- lega svekkelsið þegar verið var að koma kerfinu á, en við breytum ekki orðnum hlutum. Eins og kerfið er í dag er margt sem þyrfti að bæta og auðvitað útheimtir það heilmargar málamiðlanir, menn þyrftu að ræða sig niður á samkomulag milli suðurs og norðurs, aust- urs og vesturs. Ef það kæmist á friður og það væru ekki yfir- vofandi byltingar alla daga, þá gætu menn farið að laga þetta kerfi í sameiningu, ekki í sundrungu og vitleysu. Þessar útgerðir eins og hjá mér hefðu allar orðið gjald- þrota á nokkrum árum hefði þetta farið út í einhvern skatt- lagningarfasa eins og stefndi í. Það er voða einfalt að segja að það sé miklu betra að borga ríkinu 30 krónur en einhverj- um öðrum útgerðarmanni 60 krónur. Við erum bara ekki að borgar 60 krónur í leigu nema fyrir svo lítinn hluta af fiskin- um sem við veiðum. Hitt byggjum við á veiðiheimild- unum sem við höfum aflað okkur. Ég vona að það komist á friður og rólegheit þannig að menn geti unnið í kerfi sem er ekki alltaf að breytast.“ – Sérðu eitthvað eitt umfram annað sem hægt væri að breyta til að ná meiri sátt um kerfið? „Ég held að þeir séu engir vitleysingar, mennirnir sem hafa verið að smíða tillögurnar að þessu kerfi í gegnum tíðina, þetta er bara nokkuð gott. Ég hef ekki vit til að segja fiski- fræðingarnir séu asnar eða ráðuneytismennirnir séu ekki að gera sitt besta þegar þeir semja reglugerðirnar þó mér finnist þær alltaf verða of flóknar hjá þeim. Ég ætla mönnum ekki annað en að þeir séu að gera sitt besta. Það sem mér finnst verst er þegar ein- hverjir menn úti í bæ, ein- hverjir háskólakallar, koma með einhverjar nýjar og stór- kostlegar hugmyndir. Þá er iðulega verið að rugla í hlutun- um og ég tek öllu því með varúð. Ég vona bara að það fari að komast ró á hlutina. Mér finnst ekkert ótrúlegt þær breytingar sem hafa geng- ið yfir síðustu ár gangi að ein- hverju leyti til baka. Mennirnir með peningana vilja gera sem mest úr hverju kílói og það kæmi mér ekki á óvart að menn sæju meiri verðmæti í Samherja, Síldarvinnslunni eða Brimi með því að færa sig aftur niður í minni einingar.“ – Er kannski það eina sem hægt er að slá föstu að það ástand sem ríki í dag sé ekki komið til að vera? „Það er alveg klárt. Ég ætla rétt að vona að það verði áframhaldandi þróun og hún verði til batnaðar. Hvort hún verður á þá lund sem ég sé fyrir mér til batnaðar er ómögulegt að segja um. Að mínum dómi eru mörg þessara fyrirtækja í sjávarútvegi orðin of stór. Ég kann svosem ekki að reikna það út en ýmislegt bendir til þess að það sé ekki eins mikill arður af þessum fyrirtækjum og þyrfti að vera. Þá vilja menn náttúrlega hafa milljarðana sína einhvers staðar annars staðar. Þá getum við kannski kom- ist inn í pakkann aftur – ungir Vestfirðingar, ekki við gömlu mennirnir“, segir Jón Guð- bjartsson sem liggur ekki á skoðunum sínum þó þær kunni e.t.v. að vera að aðra lund en hjá nágranna hans. Vestfirðingar hafa í gegnum tíðina verið sagðir takast á um málefni af hispursleysi og sér ekki fyrir endann á því, sér- staklega þegar málefni sjávar- útvegsins eiga í hlut. – kristinn@bb.is Bandaríkin að opnast fyrir íslenskum dún? „Guð láti gott á vita“, segir Zófonías F. Þorvaldsson æðarbóndi á Læk í Dýrafirði við þeim tíðindum að bandarísk stjórnvöld séu væntanlega að opna á innflutn- ing á íslenskum æðardún. „Við höfum horft mjög til Bandaríkjamarkaðar þar sem sá evrópski hefur heldur verið að dragast saman. Því verður þetta kærkomin viðbót. Það komu amerískir agentar hingað í fyrra og skoðuðu aðstæður. Við reyndum að sannfæra þá um að fuglinum yrði ekki meint af dúntekjunni eins og sums staðar þar sem hann er aflífaður“, sagði Zófonías. Öryggi ýmissa vest- firskra hafna í ólagi Víða er pottur brotinn í öryggisbúnaði við hafnir Vestfjarða. Þetta kemur fram í úttekt sem Slysavarnar- félagið Landsbjörg lét gera. Að sögn úttektarmanns er ástandið best í Bolungarvík, Súðavík og á Bíldudal. Aðr- ar hafnir á svæðinu eru verr staddar. „Mér finnst hafn- aryfirvöld á Vestfjörðum ekki taka nægilegt tillit til út- tekta okkar og ábendinga. Það er skrítið að höfn eins og Ísafjarðarhöfn, sem er að markaðssetja sig sem álitlegur kostur fyrir skemmtiferðaskip, skuli ekki vera með hlutina í fullkomnu lagi en því fer fjarri.“ – hj@bb.is Undanfarið hefur verið unnið að uppsetningu vegriðs á Gemlufallsheiði milli Önundarfjarðar og Dýra- fjarðar. Áætlað er að ljúka við verkið í lok þessa mánaðar. Nánar tiltekið er vegriðið lagt upp Bjarnar- dal sem er Önundarfjarðarmegin á heiðinni. Hátt er fram af veginum á þessum kafla og liggur efsti hluti hans á gilbarmi. Á þessum hluta leiðarinnar er svipti- vindasamt og hafa vegfarendur lent í erfiðleikum þar í vetraraðstæðum. Alls er vegriðið um 2,6 km langt og áætlaður kostnaður við verkið 12 milljónir króna. Vegrið sett upp á Gemlufallsheiði 38.PM5 18.4.2017, 11:4811

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.