Bæjarins besta - 24.09.2003, Side 12
1 2 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Forsetakosningar Fréttablaðsins
Miklar sviptingar eru í íslensku samfélagi um þessar mundir. Nægir að minna
á breytt eignarhald á Eimskipafélagi Íslands, Straumi og Sjóvá-Almennum.
Bankarnir láta æ meir til sín taka í viðskiptalífinu, mörgum til ama, jafnvel svo að
ýmsum stendur stuggur af. En þau eru fleiri sviðin í samfélaginu sem tekið hafa
miklum breytingum á undanförnum árum. Dagblöð hafa horfið. Alþýðublaðið,
Þjóðviljinn og Tíminn hafa orðið breytingum að bráð, sem og reyndar Dagur og
síðar Dagur-Tíminn sömuleiðis. Fjölmiðlun hefur gerbreyst þegar litið er til hins
prentaða orðs. Hin pólitísku málgögn stjórnmálaflokkanna hafa orðið undir í
dagblaðaútgáfunni. Arftaki frumherjans, Vísis, og keppinautar hans Dagblaðsins,
DV, á nú í erfiðleikum, endurfjármögnun er í gangi til að tryggja áframhaldandi
útgáfu hans. Landslag dagblaðanna er nú aðeins svipur hjá sjón miðað við það
sem var á áttunda áratugnum þegar út komu hvorki fleiri né færri en 6 dagblöð,
ekkert þó alla daga vikunnar. Þar hefur orðið framför til batnaðar.
Því er ekki að neita að útkoma Fréttablaðsins, sem dreift er ókeypis á
höfuðborgarsvæðinu, er sennilega afdrifamesta breyting nýliðinna ára. Auk þess
kemur Morgunblaðið nú út 7 daga vikunnar og telst því í raun fyrst orðið dagblað
árið 2003. Erfitt er að keppa við dagblað sem ekki er selt. Það er auðveldara að fá
eitthvað ókeypis en að greiða fyrir. Nú sjá þrjú dagblöð dagsins ljós, eitt aðeins
6 daga vikunnar. Margir velta því fyrir sér hversu gott það sé að hafa eingöngu
þrjú dagblöð og hvort ekki hafi mikil áhrif, að einu sé dreift án kostnaðar fyrir
viðtakendur í nágrenni Reykjavíkur og í höfuðborginni sjálfri. Því meiri ábyrgð
ætti að vera lögð á „ókeypis“ blaðið. Fréttablaðið hefur gert sumt gott og ef til
vill nálgast lesendur á nútímalegan hátt, sem sé að prenta mikið léttmeti, stuttar
fréttir og höfðað til löngunar fólks til að láta skemmta sér. Ekki er meiningin að
draga fréttamennsku blaðsins í efa, en sumt í framsetningu þess á efninu sem það
inniheldur á ekkert skylt við fréttir og hefur reyndar takmarkað skemmtanagildi,
að mati margra.
Á sunnudaginn var fjöllun um forsetakosningar árið 2004, bæði ótímabær og
mjög undarleg. Leitað var til nokkurra álitsgjafa um það hvern þeir vildu sjá sem
forseta lýðveldisins, færi svo að Ólafur Ragnar Grímsson myndi ekki bjóða sig
fram. Aðferðin er ófagleg, óvönduð og engan veginn sæmandi að fá nokkra
handvalda einstaklinga, sem virtust einnig einhliða valdir frá pólitísku sjónarhorni
séð, til að tjá sig. Að auki liggur afstaða sitjandi forseta ekki fyrir og því á þetta
uppátæki ekkert skylt við fréttir, sem eru aðall blaðsins, ef marka má heiti þess.
Fréttagildið er því minna en ekkert, einungis eru viðraðar einkaskoðanir örfárra
manna, sem ekki verður séð að séu nægilega margir til þess að mark sé takandi
á niðurstöðunni. Að auki blasir við, að samkvæmt þeim reglum sem gilda um
skoðanakannanir er ekki um þverskurð þýðis Íslendinga að ræða. Eftir stendur,
að Fréttablaðið sýnist hverfa í fótspor dánu flokksblaðanna og sé hreinlega að
hafa áhrif með ósmekklegum hætti á lesendur sína og gefa í skyn að þessi aðferð
sé „gild“. Þjóðinni og sitjandi forseta er óvirðing sýnd með þessari undarlegu
„fréttaþjónustu“.
STAKKUR SKRIFAR
smáar
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Til sölu
Toyota Hilux árgerð 1995, ekinn 130.000
km, á 33" dekkjum. Gormafjöðrun að aftan.
Bíll í toppstandi.
Uppl. gefur Halldór í síma 894 6125.
Til sölu
Bílaverkstæði í fullum rekstri ásamt 510m2
húsnæði að Þuríðarbraut 11 Bolungarvík.
Einnig til sölu íbúðarhúsið að Hjallastræti
34, sem er 120m2 á einni hæð ásamt 60 m2
kjallara með bílskúr.
Upplýsingar gefur Jón í símum 456 7440
og 456 7293.
KFÍ óskar eftir að fá gefins ísskáp.
Uppl. í síma 894 6125, Halldór.
Hringur týndur. Karlmanns
gullhringur með bláum steini og
áletrun að ínnan týndist. Hringur-
inn hefur mikið tilfinningalegt
gildi og er sárt saknað. Finnandi
vinsaml. hringi í síma 848 6007
eða 456 7725.
Miðillinn Valgarður Einarsson
verður á Ísafirði 1.-5. október.
Tímapantanir í síma 699 3645.
Óska eftir sófasetti. Þokkalega
útlítandi. Uppl. í síma 849 5039.
Til sölu tvöfaldur svefnsófi. Selst
ódýrt. Uppl. í síma 456 5298
eftir klukkan 15.
Til sölu 3ja herb. íbúð í Stórholti.
Uppl. í síma 456 5424.
Til sölu 4 nagladekk á felgum.
Boltar og koppar fylgja. Passa
undir Subaru Impreza. Uppl. í
síma 456 3769 eða 863 3069.
Samkoma á vegum Hjálpræðis-
hersins í Salem. Hópur frá
Hjálpræðish. í Reykjavík verður
með samkomu í Salem, miðviku-
daginn 24. sept. kl. 20.00.
Söngur og vitnisburðir. Samskot.
Allir hjartanlega vel-komnir!
Óska eftir liprum og góðum
barnahesti fyrir 11 ára stúlku
sem hefur talsverða reynslu.
Upplýsingar veitir Helga í síma
456 4562 og 867 9331.
Til sölu barnaskíði, sófi, ísskápar,
eldhúsborð, stólar, þvottavél,
þurrkari, lítil járnvaskur, örbylgju-
ofn, barna-klippistól og margt
fleira úr búslóð. Upplýsingar í
síma 863 1616.
Týnd kanína. Ég er lítið kanínukríli
sem villtist að heiman. Getur
einhver tekið mig í fóstur?
Upplýsingar í síma 899 3360
eða 895 0292.
Óska eftir að kaupa notað píanó.
Upplýsingar veitir Berglind í síma
456 4727 eða 849 0128.
Falleg blíð tík fæst gefins góðu
fólki. Uppl. í síma 845 1854.
Fjögurra til fimm herbergja íbúð
óskast á leigu. Upplýsingar í síma
847 8412 eða 847 1925.
Sunddeild Vestra óskar eftir
vídeótæki. Uppl. í s. 690 2303.
Atvinna óskast. 23 ára karlmaður
óskar eftir vinnu á Ísafirði eða í
nágrenni. Vanur verslunar- og
þjónustustörfum auk bolfisk-
vinnslu. Uppl. í síma 697 5642.
Þeir sem hafa áhuga á að koma í
göngur þá verður smalað á
Ingjaldssandi 27. og 28. septem-
ber. Farið að stað kl. 10 frá
Sæbóli II, gott ef landeigendur
gæfu sér tíma til að mæta.
Upplýsingar í síam 456 7782.
Rafmagnsgítar óskast. Upplýsing-
ar í síma 897 6795.
Óska eftir heilsársdekkjum eða
vetrardekjjum undir Landcruiser
90, 16" felga. Upplýsingar í
síma 456 7564.
Óska eftir barngóðri stelpu til að
gæta tveggja barna, eins og
fjögurra ára, frá kl. 18 til 22.
Upplýsingar í síma 822 0290
og 845 7665.
Til sölu rauður hestur undan
Anga frá Laugarvatni og hryssu
frá Skollagróf. Fimm vetra gamall,
ótaminn. Sanngjarnt verð.
Upplýsingar veitir Indriði í síma
456 3160 og 863 3801.
Vetrarmaður óskast á Melanes á
Rauðasandi. Þarf að vera vanur
dráttarvélum. Upplýsingar veitir
Skúli í síma 456 1594.
Óska eftir 14" felgum undir
Subaru, mega vera á nagladekkj-
um. Uppl. í síma 864 6551.
Til sölu sólarlampi með nýlegum
perum. Uppl. í síma 868 9820.
Herbalife. Nú er rétti tíminn til
að ná af sér nokkrum kílóum og
bæta heilsuna fyrir jólin. Upplýs-
ingar veitir Jónína í síma 896
5063
Óska eftir að kaupa peysuföt.
Upplýsingar í síma 895 7422
(Inga Lára).
Meindýraeyðir Ísafjarðarbæjar stendur í ströngu við villikattaveiðar
Óska eftir atvinnu sem
allra fyrst. Er vanur skrif-
stofustörfum, m.a. er lýtur
að inn- og útflutningi, toll-
skýrslugerð og gerð út-
flutningsskýrslna, inn-
kaupum, sölu- og reikn-
ingsgerð ásamt bókhaldi
og mörgu öðru er viðkem-
ur skrifstofustörfum.
Auk þess er ég með meira-
próf og rútupróf. Annars
koma öll störf til greina. Get
hafið störf strax.
Uppl. gefur Þorsteinn J.
Tómasson í síma 894 8630.
Atvinna
óskast!Neitar að hafa fargað
heimilisköttum
Valur Richter meindýra-
eyðir á Ísafirði kveðst ekki
hafa fargað heimilisköttum við
Ölduna (Fjarðarstræti 38) á
Ísafirði heldur hafi þar verið
villikettir á ferð. Í Svæðisút-
varpi Vestfjarða sagði Hösk-
uldur Guðmundsson, sem
búsettur er í Öldunni, að tveir
kettir í hans eigu hefðu horfið
í förgunarherferð meindýra-
eyðisins..
„Ef þetta eru allt heimilis-
kettir sem eru haldnir þarna,
þá er tími til kominn að kalla á
– veiðir um helming villikatta á hverju ári við Ölduna á Ísafirði
andi að hafa villiketti í stórum
hópum í götunni. Ítrekað hafi
verið reynt að fá úrlausn á
vandanum en svo virðist sem
engar reglur taki nægilega á
málum af þessu tagi.
– kristinn@bb.is
aðeins í undantekningartilvik-
um og þá sé gætt ítrustu var-
kárni. „Það eina sem ég hef
getað gert er að veiða þá í búr
fyrir utan húsið en oft hefur
verið hleypt úr gildrunum.
Einstaka erfiða ketti hefur
þurft að skjóta. Ég hef reynt
að gæta fyllstu aðgátar en
óheppilega vildi til í þetta
skiptið. Svo virðist sem þetta
sé orðið einhvers konar pers-
ónulegt stríð við mig en ég er
sendur af stað af heilbrigðis-
eftirlitinu af því að kattafarg-
anið er enn á ný orðið yfir-
gengilegt. Nágrannarnir eru
orðnir sjóðandi vitlausir yfir
ástandinu.“
Á kjallara Öldunnar er búið
að smíða innganga fyrir kettina
að sögn Vals. „Þetta er bæði
götumegin og sjávarmegin á
húsinu svo kettirnir geti valsað
inn og út. Ég hef margoft tekið
upp kettlinga af götunni sem
búið er að keyra á. Það sér
hver maður að þetta gengur
ekki. Þegar komið er upp að
húsinu er lyktin svo megn að
það liggur við að fólk þurfi að
forða sér“, sagði Valur Richt-
er.
Íbúi við Fjarðarstræti sagði
fólk í nágrenninu margt hvert
afar ósátt við kattahaldið í
Öldunni, sérstaklega lyktina
og sóðaskapinn sem því fylgdi.
Rót vandans sagði hann vera
að opið væri fyrir kettina inn í
kjallara hússins. Hann sagði
íbúa við Fjarðarstræti alls ekki
hafa neitt á móti heimilis-
köttum og síst af öllu vilja
standa í nágrannaerjum. Hins
vegar væri algerlega óviðun-
dýraverndunaryfirvöld því að
þeir eru flestir mjög illa á sig
komnir. Þetta er kattagreni
þarna og búið að vera í mörg
ár. Um það bil helmingur
kattanna sem ég farga í bænum
á hverju ári eru fangaðir þarna
við Ölduna“, segir Valur.
Lögregla var kölluð til fyrir
skömmu þegar meindýraeyð-
irinn skaut kött á færi við
Ölduna. Þá fór kúla í gegnum
hurð á kjallara hússins og
hafnaði í teppastranga.
Valur segir ketti skotna
Valur Richter, meindýraeyðir og kattafangari Ísafjarðar-
bæjar.
38.PM5 18.4.2017, 11:4812