Bæjarins besta - 24.09.2003, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 13Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Junior Chamber International
Gísli Úlfarsson forseti
JC Vestfirðir heiðraður
International að Gísli sé
eldhugi í félagsstarfi og
sannur leiðtogi. Undir
persónulegu kjörorði sínu,
Allt er hægt, hafi hann orðið
öðrum innblástur og jafn-
framt sé hann fyrirmynd fyrir
verðandi leiðtoga.
Gísli sat Heimsþing JC í
Las Vegas á síðasta ári og
Evrópuþing JC í Birming-
ham á þessu ári. Síðar í
þessum mánuði verður
Landsþing Junior Chamber
haldið á Ísafirði hjá Gísla og
klúbbi hans, Junior Chamber
Vestfirðir.
– hlynur@bb.is
Hið milda árferði síðustu misserin segir til sín
Fornir skaflar á Snæfjalla-
strönd láta undan síga
Snæfjallaströndin norðan Djúps var á þessu hausti svipdaufari vegna snjóleysis en elstu menn rekur minni til áður. Myndin
var tekin í síðustu viku áður en fyrsta mjöll vetrarins breytti ásýndinni.
Glöggir menn veittu því
athygli að skaflar á Snæfjalla-
strönd rýrnuðu mjög í sumar –
og þurfti raunar ekki mjög
glögga menn til. Fannirnar
sem eftir lifðu voru ekki lengur
snæhvítar heldur dökkleitar
enda kemur ýmiskonar gömul
drulla upp úr kafinu þegar
snjórinn bráðnar. Þannig var
sjálfsagt um að litast víða og
hafa kunnuglegir smájöklar
þurft að láta undan síga í mildu
tíðarfari síðustu misseri.
Gísli E. Úlfarsson.
Gísli Elís Úlfarsson fram-
kvæmdastjóri, sem jafnan er
kenndur við Hamraborg á Ísa-
firði, hefur hlotið heiðurs-
viðurkenningu forseta al-
þjóðasamtakanna Junior
Chamber fyrir hugmynda-
auðgi og frumkvæði í starfi
sínu innan JC. Frá þessu er
greint á vefsetri Junior
Chamber International.
Gísli hefur verið félags-
maður í klúbbnum Junior
Chamber Vestfirðir frá því að
hann var endurvakinn árið
1998. Hann er nú forseti
klúbbsins og segir á vef JC
International frá eldlegum
áhuga hans á starfseminni sem
hrífi aðra með. Þannig hafi
Junior Chamber Vestfirðir
eflst svo mjög undir stjórn
Gísla að klúbburinn sé nú hinn
fjölmennasti á Íslandi. Þegar
hafi hann hlotið viðurkenn-
ingu frá landsforseta JC á
Íslandi fyrir árangur sinn í
starfi forseta JC Vestfirðir.
Greint er frá því að Gísli og
Junior Chamber Vestfirðir hafi
gengist fyrir fjölbreyttum
námskeiðum og jafnframt
byggt upp tengsl við fyrirtæki
á svæðinu til þess að útbreiða
starfið. Sagt er á vef JC
Aðspurður hvort þessi snjór
sem nú blasti við kunni jafnvel
að vera ævaforn sagði Jón
Reynir Sigurvinsson, jarð-
fræðingur og fyrrum aðstoðar-
skólameistari Menntaskólans
á Ísafirði, að erfitt væri að
aldursgreina þessa smájökla
þar sem engin öskulög væru á
Vestfjörðum sem hægt væri
að miða við.
„Það hefur mikið verið leit-
að í jarðvegi á Vestfjörðum en
engin öskulög fundist. Hugs-
anlega væri hægt að segja til
um hvort snjórinn væri frá því
fyrir eða eftir árið 1955 þegar
vetnissprengjan var sprengd.“
Jón Reynir segir vel hugsan-
legt að elsti snjórinn í þessum
sköflum sé frá því um 1600.
„Þá hefst litla ísöldin. Eftir
1600 kólnar mikið og snjór
fer að safnast saman en það
nær hámarki um 1890.“
Hlýskeið síðustu aldar byrj-
aði upp úr 1925 og stóð fram
yfir 1960. Jón Reynir segir að
á þessu tímabili kunni megnið
af yngri hluta smájökla að hafa
bráðnað. „Árin 1939 og 1948
voru álíka hlý og núna en þetta
ár er vafalítið nálægt því að
slá metið“, sagði Jón Reynir
Sigurvinsson.
Skaflar sem jafnan hafa
haldist árið um kring á stöku
stað í fjöllunum við Skutuls-
fjörð sáust ekki lengur áður en
fyrstu snjóar haustsins komu
um liðna helgi. Elstu menn
segjast ekki muna slíkt.
Fjáröflunartónleikar 10. bekkjar
60 þúsund komu
í hlut Sigurvonar
Sigurður Ólafsson, formað-
ur Krabbameinsfélagsins Sig-
urvonar á norðanverðum Vest-
fjörðum, veitti í síðustu viku
móttöku nærfellt 60 þúsund
krónum (kr. 59.210) sem
komu í hlut félagsins af ágóða
af góðgerðatónleikum 10.
bekkjar Grunnskólans á Ísa-
firði. Það var nemandinn
Gunnar Atli Gunnarsson sem
afhenti Sigurði féð. Á tónleik-
unum sem haldnir voru á sal
skólans komu fram ýmsar
vestfirskar hljómsveitir og
rann ágóðinn til Sigurvonar
og í ferðasjóð 10. bekkjar.
Sigurður afhenti Gunnari
Atla í þakklætisskyni viður-
kenningarskjal fyrir hönd Sig-
urvonar ásamt eftirfarandi
bréfi frá stjórn félagsins:
Krabbame ins f é l ag ið
Sigurvon vill færa öllum
þeim bestu þakkir, sem stóðu
að hljómleikum sem haldnir
voru í sal Grunnskólans á
Ísafirði 11 september. Það er
ánægjulegt til þess að vita,
að ungt fólk skuli taka það
upp hjá sjálfu sér að styrkja
félagasamtök sem þessi um
leð og það kemur saman og
skemmtir sér án vímuefna.
Peningaupphæð sem þessi
skiptir félagið miklu máli,
en ekki síður sá hugur sem
þarna býr að baki. Við viljum
ítreka þakklæti okkar og
megi ykkur vel farnast í
framtíðinni.
– hlynur@bb.is
Er mannfólkið búið að týna teygjunum?
Fékk ráðuneytisstyrk til
að þróa vinnustaðanudd
Sigríður María Gunnars-
dóttir (Sigga Maja), nuddari
og eigandi Sólar og fegurðar
við Túngötu á Ísafirði, vinnur
að þróun vinnustaðanudds og
fékk fyrir nokkru styrk til
verkefnisins frá félagsmála-
ráðuneytinu. Hún segir mark-
mið vinnustaðanuddsins að
hjálpa fólki að losa vöðva-
spennu úr líkamanum. Ætlun-
in sé að fræða fólk og leggur
hún áherslu á mikilvægi þess
að teygja á líkamanum.
„Ég er að byrja á þessu og
fæ styrk til að þróa vinnustaða-
nuddið. Síðan verð ég að sjá
hvernig best sé að taka á þessu,
hvort fólki komi til mín eða ég
fari inn á vinnustaðina. Ég er
þegar farin að kynna verk-
efnið.“
Sigríður segir að ætlunin
þróunarvinnu. En ég ætla að
halda þessu áfram og er byrjuð
á vinnustaðanuddinu. Stefnan
er að koma mér alfarið í það.
Hér eru miklir möguleikar.
Bæjarfélagið er að vaxa og
kemur til með að vera af því
að okkur líður svo vel hérna“,
sagði Sigríður María.
– kristinn@bb.is
með þessu sé að auka starfs-
orku fólks. „Manni líður betur
ef maður fær hjálp með blóð-
flæðið og getur skilað betra
verki. Hið grátlega er að við
erum búin að týna teygjunum.
Þegar við fæðumst erum við
alltaf að teygja okkur. Þegar
við vöknum er okkur eðilslægt
að teygja okkur en í hraðanum
í dag erum við löngu farin að
troða börnunum í fötin áður
en þau hafa teygt sig eða
vaknað almennilega. Við
eigum að byrja daginn á því
að vakna almennilega.“
Sigga Maja segist hafi notið
góðrar aðstoðar starfsfólks í
Þróunarsetri Vestfjarða við
umsóknina um styrkinn sem
hún fékk. Það sé mikill heiður
að hafa fengið þennan styrk
sem sé viðurkenning á þeim
hugmyndum sem hún hafi
unnið að. Hins vegar er hún
ósátt við form styrkjanna.
„Þetta er hundrað þúsund
króna styrkur. En ég þarf að
sýna fram á að hafa varið tvö
hundruð þúsundum í verkefnið
til að geta fengið styrkinn,
jafnvel þó að ég sé búin að
stofna fyrirtæki og standa í
Sigríður María Gunnarsdóttir.
Sigurður Ólafsson tekur við ávísun úr hendi Gunnars Atla
og afhendir honum jafnframt viðurkenningarskjal.
38.PM5 18.4.2017, 11:4813