Bæjarins besta - 24.09.2003, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 15Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Sælkerar vikunnar
eru Ingibjörg Sigfúsdóttir og
Jón Víðir Njálsson á Suðureyri
Steinbítskinnar,
humar og hreindýr
Okkur finnst við hæfi að koma með uppskrift af
hreindýrasteik þar sem Jón Víðir er nýkominn heim af
hreindýraveiðum. Í forrétt viljum við hafa grillaðar
steinbítskinnar og humar á spjóti en kinnarnar fáum við frá
Siggu systir Ingibjargar og Birni Gíslasyni sem reka JBG
fiskverkun í Hafnarfirði.
Grillaðar steinbítskinnar og humar á spjóti
500 g steinbítskinnar
2 dl sweet chili sósa
1 lítill ferskur chilipipar
1 msk sítrónusafi
12 stk humarhalar
24 stk sólþurrkaðir tómatar
12 grillpinnar eða sítrónugras
Steinbítskinnarnar eru marineraðar í chilisósu, söxuðum
ferskum chilipipar og sítrónusafa í u.þ.b. 6 klst. Síðan er
kinnin skorin í tvennt eða höfð heil eftir stærð og sett á
grillpinna ásamt humarhala og sólþurrkuðum tómötum (mjög
gott bragð kemur ef notað er sítrónugras í stað grillpinna).
Setjið fyrst kinn, síðan sólþurrkaðan tómat, næst humarhala,
aftur sólþurrkaðan tómat og loks aftur kinn. Þetta er síðan
sett á grillið í c.a 2-3 mínútur á hvora hlið.
Hreindýrasteik með einiberjasósu
2 kg hreindýrahryggur
1 ½ tsk salt
½ tsk pipar
2 tsk mulin einiber
Leggið hrygginn í ofnskúffu og kryddið hann með salti,
pipar og einiberjum. Hitið ofninn í 125 gráður og stingið
kjötmæli í þykkasta hluta vöðvans. Steikið þar til mælirinn
sýnir 77 gráður. Slökkvið á ofninum og útbúið sósuna.
Einiberjasósa
1 tsk einiber
2 msk smjör
3 msk hveiti
4 dl villikraftur (teningur eða viltfond í flösku og vatn)
3 tsk sojasósa
2 msk mysingur
1 msk rifsberjahlaup
2½ dl rjómi
Myljið einiberin, bræðið smjörið í potti og látið berin
krauma í 5 mínútur. Bakið upp sósuna með hveitinu og
þynnið út með kjötkraftinum. Bætið sojasósu út í og sigtið
sósuna yfir í annan pott. Hitið sósuna og setjið mysinginn
og rifsberjahlaupið út í. Látið suðuna koma upp og bætið
rjóma saman við.
Skerið hreindýrahrygginn í þunnar sneiðar og berið
fram með einiberjasósunni, léttsoðnu grænmeti og
rjómakartöflum.
Rjómakartöflur
600-800 g kartöflur
½ blaðlaukur
1 msk smjör
½ tsk tímían
salt og svartur pipar eftir smekk
3 dl matreiðslurjómi
½ dl mjólk
1 dl rifinn ostur
3 msk mulinn gráðostur
Flysjið kartöflurnar og skerið þær í 3-4 mm þykkar sneiðar.
Geymið kartöflurnar í köldu vatni á meðan rjómasósan er
útbúin. Saxið blaðlaukinn fínt og mýkið í smjörinu. Kryddið
laukblönduna og hellið rjómanum og mjólkinni yfir. Hitið
ofninn í 200 gráður. Takið kartöfluskífurnar úr vatninu og
setjið út í rjómablönduna og sjóðið í 10-15 mínútur við
meðalhita, hrærið í öðru hvoru á meðan. Bragðbætið með
meira kryddi ef þurfa þykir. Setjið rjómakartöflurnar í
smurt, eldfast mót og dreifið rifna ostinum og gráðostinum
yfir. Bakið í 10-12 mínútur.
Við skorum á Svanfríði Arnórsdóttur og Jóhann Sigfússon
að gefa okkur eitthvað girnilegt í næstu viku.
fyrsti bardagi Vargas frá því hann tapaði
fyrir Oscari de la Hoya.
00.50 Raven. (Hrafn) Erótísk kvikmynd.
02.10 Dagskrárlok og skjáleikur
Sunnudagur 28. september
11.30 Boltinn með Guðna Bergs. Enski
boltinn frá ýmsum hliðum. Sýnd verða
öll mörkin úr leikjum úrvalsdeildarinnar
frá deginum áður. Umdeild atvik eru
skoðuð og hugað að leikskipulagi lið-
anna. Spáð verður í sunnudagsleikina,
góðir gestir koma í heimsókn og leik-
menn úrvalsdeildarinnar teknir tali, svo
fátt eitt sé nefnt.
12.50 Enski boltinn. Bein útsending frá
leik Charlton Athletic og Liverpool.
14.50 Enski boltinn. Bein útsending frá
leik Manchester City og Tottenham.
17.05 Trans World Sport
18.00 European PGA Tour 2003
19.00 Gillette-sportpakkinn
19.30 UEFA Champions League
20.00 Boltinn með Guðna Bergs
21.15 Under Heaven. (Undirmál)
Dramatísk ástarsaga. Cynthia og Buck
eru ung og ástfangin en samband þeirra
gengur ekki upp. Leiðir þeirra liggja aftur
saman þegar Cynthia er farin að starfa
fyrir sterkefnaða konu, Eleanor, sem berst
við krabbamein. Cynthia ákveður að taka
Buck aftur í sátt ef hann kemur sér í
mjúkinn hjá Eleanor og tryggir þeim
hlutdeild í auðæfum hennar. Aðalhlut-
verk: Joely Richardson, Aden Young,
Molly Parker.
22.45 Steel Sharks. (Stálhákarlar)
Bandarískum sérfræðingi í
eiturefnahern-aði er rænt og úrvalsdeild
flotans er send inn á óvinasvæði til að
bjarga honum. Þessum köppum tekst
undir dyggri stjórn Bills McKays að
frelsa vísindamanninn en þegar þeir snúa
aftur til kafbáts síns ganga þeir í gildru.
Þeir eru teknir um borð í óvinakafbát og
eru nú orðnir gíslar í milliríkjadeilum.
Aðalhlutverk: Gary Busey, Billy Dee
Williams, Billy Warlock.
00.20 Enski boltinn (E)
02.10 Dagskrárlok og skjáleikur
www.s1.is
Föstudagur 26. september
18:30 Popppunktur (e)
19:30 Malcolm in the Middle (e)
20:00 Guinness World Records
Heimsmetaþáttur Guinness er eins og
nafnið bendir til byggður á heims-
metabók Guinness og kennir þar margra
grasa. Þátturinn er spennandi, forvitni-
legur og stundum ákaflega undarlegur.
Ótrúleg afrek fólks af ólíku sauðahúsi
eða einfaldlega sauðheimskt fólk.
21:00 Dragnet
22:00 Djúpa laugin
Undanfarin tvö ár hefur verið auglýst
eftir nýju umsjónarfólki hins sívinsæla
stefnumótaþáttar með frábærum árangri.
Nokkur pör hafa fengið að spreyta sig í
beinni útsendingu og í sumar brá svo við
að ómögulegt var að gera upp á milli
þriggja efnilegra stjórnenda! Það verða
því þrír sundlaugarverðir sem skiptast á
að stefna fólki á óvissu-stefnumót í beinni
útsendingu í vetur og markmiðið er að
búa til fleiri börn!
23:00 Still Standing (e)
23:30 The King of Queens (e)
00:00 Fastlane (e)
00:50 Kingpin (e)
Laugardagur 27. september
14:00 Maður á mann (e)
15:00 Guinness World Records (e)
16:00 Djúpa laugin (e)
17:00 Survivor - Pearl Islands (e)
18:00 Fólk – með Sirrý (e)
19:00 According to Jim (e)
19:30 The King of Queens (e)
20:00 Malcolm in the Middle. Frá-
bærir þættir um ofvitann Malcolm og
snarklikkaða fjölskyldu hans.
20:30 Everybody Loves Raymond.
Bandarískur gamanþáttur um hinn
seinheppna fjölskylduföður Raymond,
Debru eiginkonu hans og foreldra sem
búa hinumegin við götuna. Hér er á
ferðinni allra fyrsta þáttaröðin um
Raymond og fjölskyldu.
21:00 Popppunktur
Spurninga- og skemmtiþátturinn Popp-
punktur sameinaði fjölskyldur landsins
fyrir framan viðtækin síðasta vetur. Þeir
dr. Gunni og Felix hafa setið sveittir við
að búa til enn fleiri og kvikindislegri
spurningar sem þeir ætla að leggja fyrir
þá fjölmörgu poppara sem ekki komust
að í fyrra. Bryddað verður upp á ýmsum
nýjum og umhverfið ,,poppað” upp. Það
má búast við gríðarlegri spennu í vetur.
22:00 Keen Eddie (e)
22:50 The Bachelor 3 (e)
23:40 Jay Leno (e)
00:30 Jay Leno (e)
Sunnudagur 28. september
12:30 Jay Leno (e)
13:15 Jay Leno (e)
14:00 Dateline (e)
15:00 Listin að lifa (e)
15:30 Listin að lifa (e)
16:00 Judging Amy (e)
17:00 Innlit/útlit (e)
18:00 The Bachelor 3 (e)
19:00 Popppunktur (e)
20:00 Keen Eddie
21:00 The Practice
22:00 Maður á mann. Sigmundur Ernir
Rúnarsson er einn reyndasti og fjölæfasti
fjölmiðlamaður landsins og kemur sterkur
til leiks á SKJÁEINUM. Maður á mann er
beinskeittur viðtalsþáttur þar sem Sig-
mundur Ernir fær til sín þjóðþekkta
einstaklinga í ítarlega yfirheyrslu um líf
þeirra og störf, viðhorf og skoðanir. Með
hnitmiðuðum innslögum kafar hann dýpra
en gert í ,,venjulegum” viðtalsþáttum og
sýnir áhorfendum nýjar hliðar af gestum
þáttarins.
23:00 Dragnet (e)
23:50 Atvinnumaðurinn (e)
38.PM5 18.4.2017, 11:4815