Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.11.2003, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 26.11.2003, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Heimavistardvölin þrosk- andi ekkert síður en námið Arndís Björnsdóttir er vistarvörður, eins og það er kallað, við heimavist Menntaskólans á Ísafirði og kennir dönsku við skólann. Hún hefur tekið á móti þeirri fjölgun sem orðið hefur á íbúum heimavistarinnar en þeir voru þrefalt fleiri í haust en í byrjun skólaárs 2001. Hún hefur beitt sér fyrir að efla yfirbragð og orðspor heimavistarinnar sem hafði verið fremur fásótt. Tilvist heimavistarinnar þótti jafnvel á skjön við tíðarandann og sumir framsýnir menn brutu heilann um hvernig væri hægt að nýta þetta stóra hús þegar það tæmdist alveg. Þetta er annað ár Arndísar við M.Í. en áður hafði hún starfað sem unglingakennari í fimmtán ár og íþróttakennari enn lengur. Hún er margverðlaunaður íþróttamaður og á m.a. að baki Íslandsmeistaratitil í spjótkasti og landsliðsferil í handbolta. Að auki er hún liðtæk handavinnukona og hefur sérstakan áhuga á að endurnýta ýmsa muni sem aðrir teldu rusl og drasl. Sjálfsagt hafa margir veitt henni athygli á göngu um Ísafjörð og nágrenni en í tvær klukkustundir á dag þjálfar hún líkamann og endurnærir andann í göngu- ferðum. Hún segir Ísafjörð hafa tekið vel á móti sér og sérstaklega njóti hún um- hverfisins. Strax á fyrsta degi hafi verið ákveðið að á Ísafirði vildi hún áfram vera. „Þegar ég kom hingað í fyrrahaust voru einungis tveir dagar þangað til skól- inn hófst og íbúðin full af kössum og því hafði ég að- eins tvo daga til að setja mig inn í nýtt starf sem vistar- vörður og nýtt starf sem kennari auk þess að taka upp úr kössunum. Ég vissi nátt- úrlega ekkert hvernig það gekk fyrir sig að reka heima- vist en eftir síðasta vetur sá ég að hér væri hægt að laga ýmislegt og gera heilmikið með krökkunum. Þannig hef- ur róðurinn verið mun léttari í vetur en í fyrra.“ – Samt eru fleiri nemendur á vistinni nú en þá. „Þeir voru frá 18 og upp í 20 síðasta vetur en núna eru þeir 27. Við getum í raun ekki tekið við fleirum af því unnið verður að breytingum á hluta húsnæðisins í vetur. Í fyrsta skipti eru pör í tveim- ur herbergjum á vistinni en síðan eru hinir einstakling- ar.“ – Hvaða breytingar standa fyrir dyrum? „Í rauninni má segja að til standi að færa heimavistina nær nútímanum. Tímarnir eru alltaf að breytast og þar með kröfurnar. Sumir skólar bjóða upp á einstaklings- herbergi með bað- og salern- isaðstöðu auk nettengingar og jafnvel símatengingar. Við viljum standa okkur í samkeppni við aðra skóla og ætlum að bjóða upp á full- komna aðstöðu. Vonandi tekst síðan að fullnýta alla vistina.“ Læra að fötin fara ekki sjálf í þvott „Það þarf náttúrlega að sinni heimavistinni heilmik- ið. Ég hélt kannski fyrst að maður yrði aðallega á hlaup- um með lyklana til að opna og loka húsinu en starfið er mun víðtækara. Á vissan hátt er maður farinn að hugsa heilmikið um krakk- ana. Þau koma úr mismun- andi umhverfi og hafa mis- munandi bakgrunn – þannig er allt mögulegt í gangi og 47.PM5 18.4.2017, 13:064

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.