Bæjarins besta - 26.11.2003, Blaðsíða 12
1 2 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Vill flýta framkvæmd-
um við Stranddalaveg
Hreppsnefnd Hólmavíkur fagnar áhuga Leiðar ehf. á að
flýta undirbúningi veglagningar milli Hólmavíkur og
Gilsfjarðar um Arnkötludal og Gautsdal, svonefndan
Stranddalaveg. Þetta kom fram á fundi nefndarinnar í
síðustu viku. Hreppsnefndin hvetur til að þess að
ákvörðun vegarlagninguna verði tekin sem fyrst svo
hægt verði að setja framkvæmdina í umhverfismat strax
á árinu 2004 og framkvæmdir geti hafist um áramót
2004-2005. Var sveitarstjóra falið að koma sjónarmiðum
hreppsnefndar á framfæri við þingmenn. – kristinn@bb.is
Prentvillupúki á ferð:
Önundur ekki að hætta
Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
Ísafirði segist ekki vera að láta af störfum en fyrir nokk-
ru birtist auglýsing í dagblaði og á starfatorg.is um að
staða yfirlögregluþjóns á Ísafirði væri laus til umsóknar.
Önundur segir að þarna sé um prentvillu að ræða. Í
framhaldi af auglýsingunum hafa skapast nokkrar um-
ræður í bæjarfélaginu um hvað Önundur hyggist fyrir.
„Ég er síður en svo á förum úr mínu starfi“, sagði Ön-
undur sem hefur gegnt starfi yfirlögregluþjóns á Ísafirði
um árabil. – hj@bb.is
Ágúst og Flosi buðu
lægst í íþróttahúsið
Ágúst og Flosi ehf. á Ísafirði áttu lægsta tilboð í 2. áfanga
byggingar íþróttamiðstöðvar á Hólmavík. Tilboð þeirra
hljóðaði upp á tæpar 67,4 milljónir króna og er það 85
% af kostnaðaráætlun sem var rúmar 79 milljónir
króna. Önnur tilboð sem bárust komu frá Múrkrafti ehf.
á Ísafirði að upphæð 70,5 milljónir og Trésmiðju Guð-
mundar Friðrikssonar í Grundarfirði að upphæð 69,8
milljónir króna. Ákveðið hefur verið að ganga til við-
ræðna við Ágúst og Flosa ehf. á grundvelli tilboðs þeirra.
– hj@bb.is
Leikhúsgestir í Hömr-
um á Ísafirði á klöppuðu
aðstandendum einleiks-
ins Steins Steinarr lof í
lófa á frumsýningu
verksins á laugardags-
kvöld sem Kómedíuleik-
húsið á Ísafirði setur
upp. Var áhorfendum
boðið að skála með leik-
húsfólkinu að sýningu
lokinni enda ekki á hverj-
um degi sem atvinnuleik-
hús frumsýnir. Einleikur-
inn var saminn af þeim
Elfari Loga Hannessyni
sem fer með hlutverk
Steins og Guðjóni Sig-
valdasyni sem leikstýrði.
Eftirtekt vakti að nær allur
texti verksins eru eigin orð
Steins Steinarr en Guðjón
og Elfar logi unnu hand-
ritið upp úr viðtölum við
skáldið og verkum hans.
Næstu sýningar eru í
Hömrum í kvöld miðviku-
dagskvöld og á morgun,
fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Miðapantanir eru í síma
456 3022.
– kristinn@bb.is
Einleikurinn Steinn Steinarr frmsýndur í Hömrum
Frumsýningargestir
fögnuðu vel og lengi
Guðjón, Elvar Logi og Friðþjófur hneigja sig að sýningu lokinni.
Félag kennara við Menntaskólann á Ísafirði
Alfarið á móti styttingu
náms til stúdentsprófs
Félag kennara við
Menntaskólann á Ísafirði
lýsir yfir eindreginni and-
stöðu við tillögur mennta-
málaráðuneytisins og
menntamálaráðherra um
einhliða styttingu námstíma
til stúdentsprófs eins og þær
birtast í skýrslu um styttingu
námstíma til stúdentsprófs.
Ályktun þessa efnis var
samþykkt á fundi í félaginu
í síðustu viku.
Í ályktun félagsins segir
m.a: „Boðaður niðurskurður
er viðamesta breyting á ís-
lensku skólakerfi um áratuga
skeið. Slík grundvallarbreyt-
ing að frumkvæði yfirvalda
menntamála er ekki líkleg til
að skila árangri nema hún sé
gerð á faglegum grunni og í
sátt við nemendur og kennara.
Fundurinn lýsir yfir undrun
og andstöðu við skyndilega
stefnubreytingu ráðuneytisins
varðandi sérhæfingu náms og
námsbrauta. Í bæklingnum
Enn betri skóli. Þeirra réttur –
okkar skylda sem gefinn var
út m.a. til kynningar á skóla-
stefnu menntamálaráðuneytis-
ins, til að fylgja úr hlaði nýrri
aðalnámskrá, er skýrt kveðið
á um að auka beri val, fjöl-
breytni í námi og sérhæfingu.
Fundurinn telur mikilvægt
að horfa til reynslu annarra
þjóða varðandi undirbúning
ungmenna fyrir háskóla-
nám. Meirihluti nýstúdenta
í nágrannalöndunum taka
undirbúningsnám í eitt ár,
áður en þeir hefja háskóla-
nám. Duglegir og þroskaðir
nemendur hér á landi, hafa
möguleika á að ljúka námi í
framhaldsskóla á styttri tíma
í áfangakerfinu ef þeir vilja.
Fundurinn tekur eindregið
undir og lýsir fullum stuðn-
ingi við álit og ályktanir
Kennarasambands Íslands
og Félags framhaldsskóla-
kennara um tillögur mennta-
málaráðuneytisins um stytt-
ingu náms til stúdentsprófs.“
Upplesararnir Jón Páll Halldórsson, Sjón, Vigdís Grímsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson
og Guðmundur Steingrímsson.
Fjölsótt bókmenntavaka
í Edinborgarhúsinu
Þéttsetið var á bók-
menntavöku í Edinborgar-
húsinu á laugardag. Þar
lásu fjórir aðkomnir höf-
undar upp úr nýútkomn-
um verkum sínum, þau
Guðmundur Andri Thors-
son, Sjón, Guðmundur
Steingrímsson og Vigdís
Grímsdóttir, auk Jón Páls
Halldórssonar á Ísafirði
sem las upp úr bók sinni
„Fiskvinnsla í sextíu
ár“sem kom út fyrir stuttu.
Fisk- og rækjuvinnsla var
stunduð í Edinborgarhús-
inu á árum áður og vakti
athygli þegar Jón Páll las
upp kafla þar sem m.a. var
sagt frá saltfiskþurrkun í
salnum sem upplesturinn
fór fram í. Boðið var upp á
kaffi undir bóklestrinum.
Kom fram að tónlistar-
menn sem höfðu ætlað að
leika á upplestrinum voru
forfallaðir en Guðmundur
Steingrímsson brást vel við
beiðni forsvarmanna
menningarmiðstöðvar-
innar Edinborgar og hafði
harmónikuna með í för.
– kristinn@bb.is
Eggert Jónsson, Áslaug Alfreðsdóttir, Ólafur Ólafsson og Sigríður Kristjánsdóttir voru á
meðal gesta á kynningunni.
Herdís Hübner, Ásta Esradóttir, Guðmundur Kristjánsson, Rúna Esradóttir, Örn Elías
Guðmundsson og Eyvindur Eiríksson.
47.PM5 18.4.2017, 13:0612