Bæjarins besta - 06.02.2002, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002
Óskar Elíasson í hinu nýja húsnæði Víkurbúðarinnar í Súðavík.
Víkurbúðin í Súðavík komin í nýtt og glæsilegt húsnæði
Verslunarrýmið nær þrefaldast
Á fimmtudag flutti Víkur-
búðin í Súðavík í nýtt og
glæsilegt húsnæði í hinni nýju
þjónustumiðstöð Súðvíkinga
að Grundarstræti 3 - 5.
Að sögn Óskars Elíassonar,
eiganda Víkurbúðarinnar, er
þetta mikil breyting til batn-
aðar en verslunin var áður til
húsa í söluskála og bensínsölu
Skeljungs að Aðalgötu 1 í
Súðavík. Víkurbúðin selur að-
allega matvörur og aðrar vörur
til daglegra þarfa, en þar er
líka myndbandsleiga. Segir
Óskar að það hafi verið orðið
verulega þröngt um verslun-
ina á gamla staðnum en hún
var þar í um 95m2 húsnæði.
Nú er hún hins vegar komin í
250 m2 húsnæði og því orðið
öllu rýmra um vörurnar og
sömuleiðis hefur aðgengi við-
skiptavina batnað verulega.
Aðspurður um opnunartím-
ann, þá segir Óskar að opið
verði alla virka daga frá klukk-
an 10-18.00, á laugardögum
frá kl. 11-13 og frá kl. 17 til
19 en á sunnudögum frá kl.
17-19. Segir hann að þetta sé
sami afgreiðslutími og var á
sínum tíma þegar verslunin
var til húsa Kaupfélagshúsinu
en hann hafi reynst mjög vel
og virtist vera sá tími sem
fólk nýtti sér helst þjónustu
Víkurbúðarinnar. Um bensín-
söluna er það að segja að af-
greiðsla Skeljungs verður
áfram í söluskálanum við Að-
alstræti en Óskar segir vonir
standa til þess að hún verði
einnig flutt inn að nýju þjón-
ustumiðstöðinni þegar fram
líða stundir.
Eru nú flest þeirra fyrirtækja
og stofnana sem hugðust hafa
aðsetur í nýju þjónustumið-
stöðinni flutt inn, þ.e. spari-
sjóðurinn, Súðavíkurhreppur,
Íslandspóstur og nú Víkur-
búðin. Einnig er fyrirhugað
að heilsugæslan verði þarna
til húsa en ekki liggur fyrir
hvenær af því verður.
Nýr bandarískur skíðagönguþjálfari hjá Skíðafélagi Ísfirðinga
Finnst landslagið einstakt
Bandaríski skíðagöngu-
þjálfari, Mike McCarron, er
tekinn til starfa hjá Skíðafélag
Ísfirðinga. McCarron er 46 ára
gamall, hefur undanfarin ár
fengist við þjálfun skíða-
göngufólks, maraþonhlaupara
og fleiri íþróttamanna á
heimaslóðum sínum í ná-
grenni við Minneapolis í
Bandaríkjunum. Hann mun
sjá alfarið um þjálfun aldurs-
flokka 13 ára og eldri auk
þess að hafa yfirumsjón með
þjálfun yngri krakka en þar
munu þær Sandra Dís Stein-
þórsdóttir, Gerður Geirsdóttir
og Kristín Ólafsdóttir verða
honum til aðstoðar.
Aðspurður um hvernig hon-
um lítist á aðstæður hér fyrir
vestan, svarar Mike því til að
landslagið sé einstakt og stór-
brotið sé að horfa yfir fjörðinn
og á fjöllin ofan af Seljalands-
dal. Honum lýst líka vel á
skíðasvæðið og segist vera
óvanur svona miklu útsýni því
á þeim stað sem hann kemur
frá í Bandaríkjunum sé mikið
af trjám og þar sjái menn yfir-
leitt ekki neitt annað. Þetta
finnst honum tvímælalaust
vera kostur því auðvelt er að
fylgjast með því sem fram fer
á skíðasvæðinu og á æfingum
er hægt að hafa auga með
krökkunum í slóðinni jafnvel
kílómetra í burtu. Honum
sýnist allir vera mjög áhuga-
samir um að gera sitt besta og
segir að krakkarnir virðist
bæði kappsamir og duglegir.
Varðandi fyrirkomulag
þjálfunarinnar þá segir Mike
að hann komi til með að nota
næstu vikur til að fylgjast með
krökkunum og meta getu
þeirra og færni. Síðan muni
hann bæta við þjálfunina eftir
því sem þarf. Hann segist ekki
vera með neinar töfralausnir í
farteskinu enda grundvallist
góður árangur á gönguskíðum
á úthaldi og réttri tækni en
jafnvægi og sveigjanleiki séu
líka þættir sem skipti miklu
máli og yfirleitt er hægt að
betrumbæta. Að sögn Mike
er þetta í fyrsta sinn sem hann
starfar sem þjálfari utan USA
og verður hann hér a.m.k.
fram í maí en þá verður tekin
ákvörðun um framhaldið. Mike McCarron, skíðagönguþjálfari.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 – Ísafirði
Símar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is
Fasteignaviðskipti
: : .
Einbýlishús / raðhús
Engjavegur 24: 126,4 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum. Frá-
bær sólbaðsaðstaða. Laust 1.
ágúst 2001. Áhv. ca. 4,6 m.kr.
Verð 7,5 m.kr.
Fagraholt 11: 140,6 m² fallegt
einbýlishús í góðu standi á einni
hæð ásamt bílskúr.
Verð 11,3 m.kr.
Hafraholt 50: 138,4 m² Hosby
einingahús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr.
Verð 12,9 m.kr.
Hjallavegur 4: 242 m² einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Fallegt útsýni. Skipti á
minni eign möguleg Tilboð
óskast
Hjallavegur 19: 242 m² einb.hús
á 2 hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Sér íbúð á n.h. Ýmis
skipti möguleg. Áhv. ca. 5 m.kr.
Verð 10,5 m.
Hlíðarvegur 21: 157,5 einbýl-
ishús á tveimur hæðum Tilboð
óskast
Hlíðarvegur 25: 152,6 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum. Húsið
er mikið uppgert. Áhv. ca. 6,4
m.kr. Verð 10,2 m.kr.
Hlíðarvegur 37: 185,9 m² rað-
hús á þremur hæðum ásamt
bílskúr og einstaklingsíbúð.
Skipti á minni eign koma til
greina. Verð 10,2 m.kr.
Hnífsdalsvegur 10: 120,9 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt grónum garði og eignar-
lóð Laust fljótlega.
Tilboð óskast
Hrannargata 1: 238,9 m² ein-
býlishús á 2 hæðum ásamt kjall-
ara, háalofti og ræktuðum garði
Tilboð óskast
Hrannargata 8a: 78,1 m² ein-
b.hús á tveimur hæðum ásamt
eignarlóð. Húsið er uppgert að
hluta. Verð 4,6 m.kr.
Lyngholt 10: 151,3 m² einb.hús
á einni hæð ásamt 55,2 m²
bílskúr. Verð 12,9 m.kr.
Seljalandsvegur 48: 188 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Skipti á minni eign
koma til greina. Áhv. ca. 2 m.kr.
Verð 12,7 m.kr.
Seljalandsvegur 72: 112 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum, góð-
ur sólpallur.
Verð 8,2 m.kr.
Urðarvegur 33: 306,3 m² glæsi-
legt einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt bílskúr.
Verð 16 m.kr.
Verð 7,1 m.kr.
Mjallargata 1: 82,8 m² íbúð á 2.
hæð í fjölbýlishúsi, sér inngang-
ur, sér geymsla.
Verð 6,8 m.kr.
Pólgata 6: 55 m² risibúð á 3ju
hæð í fjölbýlishúsi.
Verð 3,9 m.kr.
Silfurgata 11: 56,2 m² (75m²
gólfflötur, mikið rými í risi) Björt
og glæsileg íbúð með frábæru
útsýni. Ótrúlega hagstæð í rekstri.
Áhv. ca. 3,4 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3ju
hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Áhv. ca. 2
m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 9: 80,9 m² góð íbúð á 1.
hæð í fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu og sameign. Áhv. ca.
2,4 m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á 3ju
hæð til hægri í fjölb.húsi ásamt
sér geymslu. Skoða öll tilboð.
Mögul. að taka bíl uppí. Áhv. ca.
3 m.kr.Verð 5,5 m.kr.
Tangagata 16: 66,9 m² íbúð á
neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Verð 4,5 m.kr.
Urðarvegur 49: 102,5 m² kjall-
araíbúð á neðri hæð í tvíbýlis-
húsi. Tilboð óskast
4-6 herb. íbúðir
Fjarðarstræti 14: 100 m² falleg
4ra herbergja íbúð á n.h. í
tvíbýlishúsi ásamt 60m² kjallara
og 27,8 m² geymsluskúr. Baklóð
fylgir neðri hæðinni. Áhv. ca.
1,5 m.kr.
Verð 5,8 m.kr.
Fjarðarstræti 38:3-4ra herb.
íbúð að hluta undir risi. Íbúðin er
í góðu standi. Tilboð óskast
Pólgata 5a: 121 m² 4ra herbergja
íbúð á n.h. í þríbýlishúsi ásmt
helm. kjallara og eignarlóð.
Íbúðin er öll endurnýjuð Verð
6,7 m.kr.
Sundstræti 30: 131,9 m² 5
herbergja íbúð á miðhæð í þrí-
býlishúsi ásamt bílskúr. Tilboð
óskast
3ja herb. íbúðir
Hlíðarvegur 33: 79,1 m² íbúð á
neðri hæð í fjórb.húsi ásamt góð-
um bílskúr. Verð 6,9 m.kr.
Hlíf II –Torfensi: 62,5 m² 2ja-
3ja herbergja íbúð á jarðhæði í
Dvalarheimili aldraðra.
2ja herb. íbúðir
Mjallargata 1: 67,9 m² íbúð í
góðu standi á 2. hæð í fjöl-
býlishúsi. Áhv. ca. 3,6 m.kr. Verð
6,5 m.kr.
Sundstræti 24: 69 m² skemmti-
leg og rúmgóð íbúð á jarðhæð í
fjórbýlishúsi.
Verð 4,5 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m² íbúð á 1.
hæð í nýlega uppgerðu fjölbýlis-
húsi ásamt sér geymslu. Verð 4
m.kr.
Súðavík
Álfabyggð 3: 130,2 m² nýtt og
glæsilegt einbýlishús á einni hæð
ásamt bílskúr, sólstofu og tveim-
ur sólpöllum.
Verð 11.5 m.kr.
Suðureyri
Hjallavegur 11: 138,2 m² ein-
býlishús á einni hæð.
Verð 3 m.kr.
Flateyri
Drafnargata 10: 158 m² hlaðið
einbýlishús á tveimur hæðum,
klætt með timbri og einangrað
ásamt bílskúr.
Verð 8 m.kr.
Ránargata 8: 130,9 m² einbýli á
einni hæð ásamt hjalli. Tilboð
óskast
Bolungarvík
Heiðarbrún 3: 224,6 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Tilboð óskast
Hlíðarstræti 6: 113 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bílskúr
Verð 7,9 m.kr.
Vitastígur 25b: 101 m² fjögurra
herbergja íbúð í fjölbýlishúsi. Sér
inngangur.
Tilboð óskast
Atvinnuhúsnæði
Mánagata 4 - (Herkastalinn):
Gistiheimili og/eða 6 leiguíbúð-
ir. Verðhugm. 10 m.kr.
Fasteignir í þessari
auglýsingu eru aðeins
brot af söluskránni.
Allar frekari uppl.
fást á skrifstofunni.