Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.03.2002, Side 2

Bæjarins besta - 06.03.2002, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 LEIÐARI Vestfirsk stóriðja Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan Ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Selma Rut Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími 456 8269. Frá útgefendum: Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson • Fréttastjóri: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sími 456 4448, netfang: gudfinna@bb.is. Blaðamenn: Haukur Magnússon, sími 695 8158, netfang: haukur@bb.is, Kristinn Jónsson, sími 456 3068, netfang: blm@bb.is• Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti Happdrætti Háskóla Ís- lands hefur fjarlægt alla spila- kassa „Gullnámu“ fyrirtæk- isins á Ísafirði í kjölfar „inn- brots“ í þá fyrir stuttu. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði voru spilakassarnir opnaðir með kúbeini eða álíka verk- færi og þeir fjármunir sem þar voru, teknir ófrjálsri hendi. Þrír spilakassar voru í Sjall- anum og tveir á veitingastað- num Á Eyrinni en „innbrotin“ munu hafa átt sér stað á opn- unartíma veitingastaðanna. Enginn hefur verið handtek- inn vegna málsins. Spilakassarnir voru fluttir til viðgerða í Reykjavík og að sögn Guðmundar Sigurbergs- sonar, umsjónarmanns Gull- námunnar, stendur ekki til að senda þá aftur til Ísafjarðar. Hann segir kassana ekki hafa verið nýtta sem skyldi á Ísa- firði og því hafi sú ákvörðun verið tekin að setja þá upp á öðrum stað þar sem fleiri komi til með að nýta sér þá. Spilakassar Gullnámunn- ar fjarlægðir Ísafjörður Framboðslisti Framsóknar- flokksins í Ísafjarðarbæ vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, verður kynntur á fundi félagsins fimmtudaginn 7. mars nk. í Holti í Önundar- firði. Að sögn Guðna Geirs Jó- hannessonar, oddvita flokks- ins, hefur uppstillingarnefnd verið að störfum í talsverðan tíma og nokkuð er síðan lokið var við uppröðun á listann. Endanleg ákvörðun verður þó ekki tekin fyrr á fundinum í Holti og í framhaldi af því má gera ráð fyrir að listinn verði birtur opinberlega. Ísafjarðarbær Framsóknar- menn kynna framboðslista Halldór Jónsson, fiskverkandi á Ísafirði Óskar eftir að fram fari opinber rannsókn á brottkasti á loðnu Halldór Jónsson, fiskverk- andi á Ísafirði, hefur snúið sér til Fiskistofu og embættis Rík- islögreglustjóra og óskað eftir því að fram fari opinber rann- sókn á brottkasti á loðnu nú á vertíðinni. Segir Halldór sög- ur vera á kreiki um umtalsvert brottkast um borð í loðnuskip- unum og staðfesting á því hafi fengist á myndum sem sýndar voru í sjónvarpinu á sunnu- dagskvöld. Bréf Halldórs, sem stílað er á Þórð Ásgeirs- son Fiskistofustjóra og Harald Johannessen Ríkislögreglu- stjóra, er svohljóðandi: ,,Heiðruðu embættismenn. Eins og yður mun kunnugt um hefur komist upp um nokkur mál er varða ólöglegt brottkast afla frá fiskiskipum. Hafa þau mál að sjálfsögðu gengið sína leið hjá embætt- um yðar. Svo virðist, að þrátt fyrir að komist hafi upp um mál af þessu tagi og hlutaðeigandi hafi verið refsað samkvæmt lögum, sé töluvert um að enn- þá séu framin brot af þessu tagi. Að undanförnu hafa gengið sögur af umtalsverðu brottkasti afla frá loðnuskip- um. Samkvæmt sögum þess- um er miklu magni af hrygn- ingarloðnu kastað þar frá borði á ýmsan hátt. Má þar nefna sem dæmi að skipin hafi fyllt nætur sínar svo mjög að ekki hafi nýst nema hluti afl- ans, þrátt fyrir að þau hafi gefið afla úr nótinni eins og heimilt er samkvæmt lögum. Einnig hafa heyrst sögur um að við dælingu úr nótum skipa renni umtalsvert magn hrygn- ingarloðnu frá borði. Í kvöld- fréttatíma Ríkisútvarpsins í gærkvöldi (sunnudagskvöld) voru sýndar lifandi myndir úr veiðiferð loðnuskips þar sem glögglega sást að mikið magn loðnu rann frá skipinu. Ekki gat undirritaður komið auga á um hvaða skip var að ræða í þessu tilfelli. Þar sem undirrit- aður telur að áðurnefnt meint brottkast varði við lög óska ég þess hér með að embætti yðar rannsaki mál þessi og komi þannig í veg fyrir að lögbrot sem þessi séu stunduð við umgengni um auðlind sem er í sameign þjóðarinnar.” Magnús Þór Hafsteinsson fréttamaður Hafnar meintu loðnubrottkasti Magnús Þór Hafsteinsson fréttamaður hafði samband blaðið og bað fyrir fyrir birt- ingu á meðfylgjandi yfirlýs- ingu þar sem hann hafnar því alfarið að loðnu hafi verið hent í sjóinn á loðnuskipinu Grind- víkingi GK í lok síðustu viku. Yfirlýsing Magnúsar Þórs er tilkomin vegna kæru Halldórs Jónssonar, fiskverkanda á Ísa- firði og greint var frá á bb.is á mánudag sem og hér að ofan. Í yfirlýsingunni segir Magnús Þór Hafsteinsson: ,,Það er rangt að bendla myndskeið frá loðnuveiðum, sem birt voru í Ríkissjónvarp- inu sunnudaginn 3. mars, við brottkast á fiski á Íslandsmið- um. Þessar myndir voru teknar um borð í loðnuskipinu Grind- víking GK 606 að morgni fimmtudagsins 28. febrúar síðastliðinn. Ég fór í veiðiferð með þessu skipi ásamt Frið- þjófi Helgasyni myndatöku- manni. Við komum um borð að kvöldi 27. febrúar eftir að skipið hafði landað afla sínum í Helguvík og yfirgáfum það að kvöldi föstudagsins 1. mars þegar skipið hafði snúið til sömu hafnar til löndunar eftir mjög vel heppnaða veiðiferð. Öll vinnubrögð Rúnars Björgvinssonar skipsjóra og áhafnar hans á Grindvíkingi GK voru til mikillar fyrir- myndar. Þegar á miðin var komið varð ljóst að allt moraði í loðnu. Skipið var nánast fyllt í fjórum köstum, aðeins vant- aði nokkra tugi tonna upp á að ná algeru fullfermi. En Rúnar skipstjóri lét hjá líða að taka eitt kast enn. Ástæðan var einföld. Hann vissi að mjög líklega fengist miklu meiri afli í nótina en þurfti til að fylla skipið. Það hefði þýtt að áhöfnin hefði neyðst til að reyna að gefa afganginn eða hleypa niður úr nótinni ella. Rúnar kaus að láta vera að kasta upp á slíka valkosti en gaf mönnum sínum í stað þess skipun um að búast til heim- siglingar. Á meðan sú vinna fór fram, voru þau myndbrot tekin sem Halldór Jónsson og aðrir veiðina. Sú loðna sem sullað- ist niður á dekkið fór þangað fyrir slysni við erfiðar aðstæð- ur. Þetta var mjög óverulegt í kílóum talið. Það hvarflaði ekki að nein- um að tengja þetta við brott- kast á þeirri stundu. Hvorki okkur fjölmiðlamönnum né áhöfn. Hér voru menn að vinna sín verk eins og best varð á kosið miðað við ríkj- andi aðstæður. Að mínu mati komust sjómennirnir á Grind- víkingi GK frá sínum störfum með miklum sóma. Mér þykir bæði mjög miður og ósanngjarnt að þessar myndir, sem teknar voru um borð í Grindvíking á fimmtu- dag, skuli að ósekju tengdar umræðunni um brottkast á Ís- landsmiðum. Það vandamál snýst að mestu um þann vanda þar sem fiski er hent til að hámarka aflaverðmæti. Þetta átti alls ekki við í þessu tilviki sem menn voru að veiða í bræðslu og það að missa fisk í hafið var óhapp með eftirsjá. Umræðan um brottkasts- vandann á Íslandsmiðum er gríðarlega mikilvæg. Til að nálgast lausnir á þessum við- kvæma vanda verða menn að geta rætt málin af alvöru og á málefnalegan hátt. Að halda sjó, gæta landsýnar og varast illa ígrundaðar upphrópanir. En margir, sem ættu að vita betur, hafa villst af leið og farið í geitarhús að leita ullar þegar finna skal syndaseli í brottkastumræðunni. Í því fúla fjósi má finna bæði Árna M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra og Guðbrand Sig- urðsson forstjóra Útgerðarfé- lags Akureyringa. Og eru þá bara tveir af mörgum nefndir til bókar. Þeir fara að verða ófáir „sakamennirnir“ sem tyllt hef- ur verið upp í næsta ljósastaur án dóms og laga þegar brott- kastumræðan er annars vegar. Ég ætla ekki að horfa upp á saklausa áhöfn Grindvíkings GK festa upp á slíka gálga að ósekju fyrir meint brottkast sem aldrei átti sér stað,“ segir Magnús Þór. landsmenn sáu í fréttum á sunnudagskvöld. Þar mátti sjá smáræði af loðnu, sem hafði sullast niður á dekk Grind- víkings, skolast fyrir borð á meðan áhöfnin bjó skip sitt fyrir ferð til löndunar. Grind- víkingur GK var nánast drekk- hlaðinn með 1100 tonn um borð. Það var kaldaskítur á miðunum og þung velta á skipinu. Sjálfur stóð ég uppi á brúarþaki og fylgdist með vinnubrögðunum þegar mannskapurinn gekk frá eftir Magnús Þór Hafsteinsson. Um það leyti sem það fregnaðist að stjórnvöld hefðu séð að sér og strikað yfir þann erkibiskupsboðskap að ekki væri rétt að reikna með Vestfjörðum þegar horft væri til búsetu á Íslandi framtíðarinnar, þinguðu vísir menn úr öllum áttum á Ísafirði og komust að þeirri niðurstöðu að þorskeldi á Vestfjörðum væri ákjósan- legur kostur. Ánægjuleg tíðindi á tímum fullvissu um að ótakmarkað magn sjávarfangs verður ekki lengur sótt með hefðbundnum hætti. Meðal þeirra kosta sem Vestfirðir eru taldir hafa upp á að bjóða til þorskeldis eru nálægðin við ein bestu og gjöfulustu fiskimið landsins, skjólgóðir og djúpir firðir og viðunandi hitastig sjávar. Er þá ótalin sá dýrmæti og mikilvægi þáttur sem felst í þeirri reynslu og þekkingu sem Vestfirðingar hafa öðlast í gegnum átta ára markvissa þróun á áframeldi þorsks. Ef rétt er á málum haldið, áfram unnið á þeirri braut sem mörkuð hefur verið og stutt við bakið á þeim sem runnu á vaðið, bendir margt til að áframeldi á þorski, og hugsanlega fleiri fisktegundum, geti orðið stóriðja okkar Vestfirðinga er fram líða stundir. Hugmynd Kristjáns G. Jóakimssonar, sjávarútvegsfræðings og vinnslu- og mark- aðsstjóra Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. um miðstöð atferlis- og eldisrannskókna á Vestfjörðum, verður að hrinda í fram kvæmd. Að því ber að vinna með öllum til- tækum ráðum. Sjálfsagt er að frumkvæði Vestfirðinga fái að njóta sín heima í héraði. Að yfir 70% þess eldisþorsks sem komið hefur til slátrunar á síðustu þremur árum á landsvísu og 54 af um 70 tonnum á síðasta ári hafa komið frá eldisstöðvum á Vestfjörðum, segir allt sem segja þarf. Þungamiðjan er sú, að á þessu sviði eru Vestfirðingar til forustu fallnir ekki síður en þeir hafa verið á flestum sviðum er lýtur að útgerð og fiskvinnslu í gegnum aldir. Enda þótt við ölum þá von í brjósti að viðunandi stjórnun komist á hefðbundnar fiskveiðar og sú atvinnugrein komi til með að skipa stærri sess í atvinnulífi Vestfirð- inga en nú, er engum blöðum um það að fletta að á þeim vettvagni eigum við litla möguleika til jafns við þá sem felast í fiskeldinu. Fram hjá því verður ekki horft. Vestfirðingar hafa eftirlátið öðrum kapphlaupið um álverksmiðjur sem á engan hátt skal gert lítið úr. Þvert á móti er sjálfsagt að uppbygging slíkrar stóriðju sé liður í atvinnulífi landsmanna að ákveðnu marki. Við eigum hins vegar alla möguleika á annars konar stóriðju sem myndi auka möguleika fólks til búsetu á Vestfjörðum. Þá möguleika eigum við að nýta. s.h.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.