Bæjarins besta - 06.03.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002
Byggðaáætlun – ómerkilegt plagg
Bryndís G. Friðgeirsdóttir, bæjar-
fulltrúi í Ísafjarðarbæ skrifar
,,Ríkisstjórnin hefur
setið alltof lengi við
völd án þess að
nenna því“
Um fátt er meira talað um
þessar mundir hér vestra en
þá byggðaáætlun sem nú ligg-
ur fyrir Alþingi og þau harka-
legu viðbrögð sem íbúar á
Vestfjörðum hafa sýnt við
henni. Ég varð ekki fyrir von-
brigðum, því til þess þarf
væntingar. Ég hafði engar
væntingar til stjórnvalda um
viðsnúning í óbyggðastefnu
þeirra. Þau sjö ár sem ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hefur setið
við völd, hafa ekki verið nýtt
til að styrkja búsetuskilyrði í
landinu. Þvert á móti hefur
verið stefnt að því með með-
vituðum aðgerðum á bak við
tjöldin að veikja byggð í land-
inu.
E.t.v. má fagna því að stefn-
an skuli sett á blað, svart á
hvítu, því þannig geta lands-
menn loks hætt að tala um að
þeir hafi það á tilfinningunni
að stjórnvöld ætli sér að láta
byggð eyðast af sjálfu sér
smám saman. Nú geta flokks-
félagar þeirra í sveitarstjórn-
um ekki lengur hlaupið í vörn
fyrir ríkisvaldið og úthrópað
þá vinstri menn sem gagnrýnt
hafa stjórnvöld fyrir athæfið.
Með því að leggja fram
þetta ómerkilega plagg sem á
að heita byggðaáætlun fyrir
landið allt, er hulunni svipt af
þeirri óbyggðaáætlun sem
unnið hefur verið eftir um ára-
bil. Nú er stefnan orðin sýni-
leg, grímulaus og undirrituð í
bak og fyrir, þótt sumir þing-
menn sem unnu að henni vilji
ekki kannast við hana þrátt
fyrir að nafn þeirra sé þar und-
irritað með feitu prentletri.
Okkur er jafnvel talin trú um
að plagginu hafi verið breytt á
lokasprettinum, e.t.v. í prent-
vélunum.
Vestfirskir sveitarstjórnar-
menn hafa loks séð ástæðu til
vinna saman og ákveðið að
semja sína eigin byggðaáætl-
un og færa stjórnvöldum vit-
rænar tilllögur til viðbótar í
byggðamálum. Það hefði ein-
hvern tímann þótt tíðindum
sæta að fulltrúar sveitarfélaga
á Vestfjörðum væru sammála
um einhver mál. En því hefur
verið haldið fram með réttu
að það sem þjappi mönnum
saman og geri þá sterkari sé
að eiga sameiginlegan óvin.
Nú hafa sveitarstjórnarmenn
loks komið auga á þennan
óvin sem í þessu tilfelli er
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. Sú rík-
isstjórn er orðin pirruð og lúin
á landsbyggðarnöldirnu og
þarf á því að halda að komast
í frí. Hún hefur setið allt of
lengi við völd án þess að
nenna því.
Byggðaáætlun Vestfirðinga
þarf því í raun aðeins að inni-
halda eina stutta setningu.
Skiptum um ríkisstjórn!
Bryndís Friðgeirsdóttir,
bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ.
Leikendur í Gísl ásamt leikstjóranum, Þórhildi Þorleifsdóttur.
Sólrisuhátíð Menntaskólans á Ísafirði
Leikritið Gísl frum-
sýnt fyrir fullu húsi
Leikfélag Menntaskólans á
Ísafirði frumsýndi á sunnudag
leikverkið Gísl eftir Brendan
Behan í leikstjórn Þórhildar
Þorleifsdóttur. Eins og við
mátti búast var fullur salur
áhorfenda og virtust þeir
skemmta sér hið besta við
leikræna tilburði nemend-
anna.
Á fjórða tug manna kom að
uppfærslu leikritsins á einn
eða annan hátt, en í ár var
bryddað upp á þeirri nýbreytni
að ráða sérstakan tónlistar-
stjóra til verksins, Tómas
Guðna Eggertsson, sem stýrði
tónflutningi á fagmannlegan
máta. Leikritið fjallar um hóp
undirmálsmanna sem hafa
aðsetur í pútnahúsi í Dyflinni
og viðbrögð þeirra þegar
komið er með enskan gísl til
vistunar þar. Frelsisstríð Íra
setur mark sitt mjög á verkið
og er nokkuð sungið af írskum
þjóðlögum í sýningunni sem
stendur á þriðju klukkustund.
Alls eru fyrirhugaðar þrjár
sýningar til viðbótar, í kvöld,
miðvikudagskvöld, á föstu-
dag og á sunnudag. Sýningar-
nar eru á sal Menntaskólans
en hægt er að panta miða á
leikritið á Kaffi Sól í síma
456 5700.
Úr einu atriða leikritsins.
Jón Gnarr á sviðinu í Ísafjarðarbíói.
Grínarinn Jón Gnarr í Ísafjarðarbíói
Fullur salur áhorf-
enda skemmti sér vel
Grínarinn landsþekkti
Jón Gnarr fór með gam-
anmál í Ísafjarðarbíói á
föstudagskvöld fyrir
rúmlega fullum sal
áhorfenda sem allir virt-
ust skemmta sér hið
besta. Var það almennt
álit að Jón hefði rifið af
sér brandarana og verið
betri en nokkru sinni
fyrr er hann sagði sögur
af rifnum augnalokum,
vangefnum vinnufélög-
um og vanfærum sænsk-
um lesbíum. Uppistand
Jóns var fyrsti dag-
skrárliðurinn af mörg-
um er eiga eftir að
skekja vestfirskt menn-
ingarlíf næstu daga, því
hin árlega Sólrisuhátíð
Menntaskólans á Ísa-
firði er gengin í garð enn
á ný með tilheyrandi
dýrð.
Áhorfendur skemmtu sér hið besta.