Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.03.2002, Síða 8

Bæjarins besta - 06.03.2002, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 „Mun alltaf bera hlýjan hug til Bolungarvíkur“ – segir Herbert Guðmundsson poppari og fyrrverandi Bolvíkingur Popparinn síungi, Herbert Guð- mundsson, sem nú starfar sem sölu- og markaðsstjóri hjá Íslensku vega- handbókinni var í viðskiptaerindum á Ísafirði fyrir stuttu. Blaðið hitt Her- bert að máli og féllst hann á að segja lesendum frá tónlistarferlinum, árun- um í Bolungarvík, aðdáendaklúbb- unum og fleiru. Herbert er fæddur í Reykjavík árið 1953. Sautján ára gekk hann til liðs við hljómsveitina Tilveru sem var ein vinsælasta hljóm- sveitin á þessum árum. Þá starfaði hann með ýmsum öðrum þekktum hljómsveitum s.s. Eik og Pelican. Hann dró sig út úr poppinu undir lok áttunda áratugarins, en hefur átt nokkrar eftirminnilegar endurkomur síðan, m.a. með bolvísku hljómsveit- inni Kan, sem gaf út plötuna „Í rækt- inni“. Árið 1996 sló hann síðan í gegn í annað sinn á rúmum tíu árum er lagið hans „Can´t Walk Away“ rauk upp vinsældalistana. Herbert var fyrst spurður út í nýjustu afurðina, diskinn „Ný spor á íslenskri tungu“ sem kom út fyrir síðustu jól. Með landsliðið til aðstoðar „Sú plata spannar ferilinn frá a til ö. Á henni tek ég lög sem ég hef sungið á íslensku á öllum tímum tónlistarferils míns. Ég tek t.d. tvö Kan lög á plötunni, lagið „Steypa og gler“ og smellinn „Megi sá draumur“ auk nýrra laga. Þessi plata endurspeglar því sjöunda, áttunda, níunda og tíunda áratuginn að ógleymdu því sem ég er að gera í dag. Öll eldri lögin eru unnin upp á nýtt en byggja þó á sömu tónsmíðum. Platan er vel unnin og þakka ég það einna helst samstarfs- mönnum mínum, þ.e.a.s. landsliðinu eins og ég vil kalla þá, þeim Jóa Ásmunds úr Mezzoforte, Ingólfi Sigurðs- syni úr SSSól, Jóni Elvari úr Stjórninni og Þóri Úlfarssyni sem er í hljómsveit Gunnars Þórðarsonar í þættinum „Milli himins og jarðar“ í Ríkissjón- varpinu.“ Sungið í pottinum Herbert segir nýju plötuna vera að gera góða hluti og þakkar það laginu „Svaraðu“ sem jafnt ungir krakkar og þeir eldri þekkja og syngja af hárri raust. „Ég lenti einmitt í skemmtilegu atviki varðandi það lag hér á Ísafirði í heim- sókn minni nú. Þannig var að ég var staddur hjá í Stúdíó Dan og sat frammi og las blað á meðan ég beið eftir Stefáni Dan. Allt í einu heyri ég tvær raddir syngja „Svaraðu! – Kallaðu!“ hárri raust og kom söngurinn frá nuddpottum líkamsræktarstöðvarinnar. Ég hafði gaman af þessu og ákvað að gera smá sprell í strákun- um, þannig að þegar viðlaginu lauk, gægðist ég inn í herberg- ið til þeirra og sagði: „Ég er kominn strákar!“ Undrunar- svipurinn á þeim var alveg óborganlegur, enda ekki á hverjum degi sem söngvari tekur undir þegar maður er að raula lögin hans í baði.“ Svaraði kallinu vestur –Þú fluttist til Bolungarvík- ur árið 1980, eftir að hafa verið fjarri sviðsljósinu í nokkurn tíma og bjóst þar í fjögur ár. Hvernig kom það til að fyrr- verandi poppstjarna og sjó- maður úr Reykjavík ákvað að flytja til Bolungarvíkur? „Á þessum tíma var verið að stofna hljómsveitina Kan og þá vantaði söngvara. Finn- bogi Kristinsson, bassaleikari sveitarinnar hafði frétt af því að ég væri nýskilinn, svo hann hringdi í mig og bauð mér söngvarastöðuna og sagðist einnig geta reddað mér vinnu og húsnæði. Mig langaði að reyna eitthvað nýtt eftir skiln- aðinn og ákvað því að fara vestur, fara að rokka á ný.“ Stofnendur Kan voru þeir Finnbogi Kristinsson bassa- leikari, Magnús Hávarðarson gítarleikari, Haukur Vagnsson trommuleikari og Kristinn Elíasson hljómborðsleikari. Haukur og Kristinn helltust fljótt úr lestinni og í þeirra stað komu Hilmar Valgarðs- son frá Skagaströnd og Alfreð Erlingsson frá Ísafirði. Her- bert segir Kan upphaflega hafa verið bílskúrshljómsveit sem spilaði „brennivínstónlist“ en það hafi fljótlega breyst eftir komu hans. „Ég hafði alið manninn í stærri böndum eins og Pelican og Eik þannig að ég gat ekki sætt mig við neinn hálfkæring. Við komu mína vestur hóf hljómsveitin að æfa meira, við keyptum söngkerfi og lögðum mun meiri metnað í allt, enda var það ætlunin hjá strákunum þegar þeir fengu mig til liðs við hljómsveitina, að setja meiri metnað í hlutina. Fólk vildi lifandi tónlist Spiluðu þið mikið á böll- um? „Vissulega, oftast tvö kvöld í viku. Ballmenningin á þess- um tíma var mun meiri en nú. Fólk vildi lifandi tónlist, það vildi gera sér glaðan dag og dansa. Pöbbarnir hafa breytt þessu mikið á síðustu árum, það er helst á menntaskóla- böllum sem maður er minntur á þessa gömlu góðu daga.“ – Á hvaða stöðum voru þið helst að spila? „ Við spiluðum mest í Bol- ungarvík og okkur tókst að halda uppi góðri ballmenn- ingu þar, lágmarkið var tvö böll á mánuði í Víkinni. Svo spiluðum við í öllum félags- heimilum s.s. í Hnífsdal, í Súðavík, á Flateyri, Þingeyri og á Suðureyri. Stútungsböllin á Flateyri voru fræg því svitinn lak niður veggina á þeim. Eins voru hestamannaböllin á Þingeyri árviss viðburður í spilamennsku okkar.“ Beðinn um að nefna eftir- minnilega atburði frá þessum tíma, nefnir Herbert tvo dans- leiki sem haldnir voru í Fé- lagsheimilinu í Hnífsdal. „Ég man vel eftir flottu hlöðuballi sem við héldum með hljóm- sveitinni Grafík. Satt best að segja er ég mjög hissa á því að ball sem þetta hafi verið leyft. Við fengum lánaða hey- bagga til að hafa á sviðinu af því að þetta átti að vera alvöru hlöðuball. Í dag áttar maður sig á því að það hefði vel getað gerst að einhver fullur krakki hefði í gríni borið eld að þessu eða rekið logandi sígarettu í heybaggana og þannig stefnt ballgestum í mikla hættu. Við spáðum nátt- úrlega ekkert í þetta, enda ung- ir og vitlausir. Sem betur fer gerðist ekkert þrátt fyrir að um 700 manns hefðu verið á ballinu. Reyndar var þessi góða mæting uppreisn æru fyrir mig, því sama kvöld var Pelican með ball í Sjallanum og þar varð hálfgert messufall. (Herbert skildi ekki sáttur við hljómsveitina á sínum tíma. Innsk blm). Í annað skipti áttum við að spila í Hnífsdal á Gamlárs- kvöld. Upp úr miðnætti héld- um við af stað til Hnífsdals og þegar við vorum búnir að keyra hálfa Óshlíðina, kemur stórt snjóflóð úr fjallinu og lokar veginum. Við gátum náttúrlega ekki verið þekktir fyrir að mæta ekki á okkar eigin ball og því urðum við að labba yfir flóðið, og setja okk- ur þar með í lífshættu fyrir eitt ball. Báðar þessar sögur tel ég vera til marks um hversu grænir við vorum í þá daga. En maður eldist sem betur fer.“ Fann ástina í Víkinni Herbert endurnýjaði ekki aðeins kynni sín af tónlistar- gyðjunni á meðan hann var í Bolungarvík, heldur komst hann einnig í kynni við annars konar gyðju. „Ég var svo gæfusamur að kynnast ungri stúlku fljótlega eftir að ég kom. Hún var úr Reykjavík eins og ég og við fórum fljót- lega að slá okkur upp. Innan skamms tíma vorum við búin að leigja okkur íbúð og þá var ekki aftur snúið. Nú er þetta konan mín til margra ára. Þess vegna ber ég alltaf hlýjar minningar til Bolungarvíkur, þar kynntist ég konunni minni sem ég elska innilega og á þrjú börn með.“ Draumur hverrar hljóm- sveitar er að setja mark sitt á heiminn með plötuútgáfu. Hljómsveitin Kan var þar eng- in undantekning og meðlimir hennar fóru fljótt að leggja inn á „plötusjóð“ ákveðna prósentu af innkomu hvers dansleiks. Ekki þurftu þeir að safna lengi og héldu þeir fljótt í hljóðver. Afrakstur þeirrar

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.