Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.03.2002, Side 12

Bæjarins besta - 06.03.2002, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 Stakkur skrifar Út með svindlarana – nú er komið nóg Netspurningin Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Ertu ánægð(ur) með nýtt frum- varp sjávarút- vegsráðherra um breytingu á lög- um um stjórn fiskveiða? Alls svöruðu 348. Já sögðu 38 eða 10,92% Nei sögðu 278 eða 79,89% Óvissir voru 32 eða 9,20% Davíð Oddsson hefur með einkar hógværum hætti kynnt þjóðinni að hon- um hugnist ekki að forstöðumenn stofnana ríkisins, hverju nafni sem nefnast, maki krókinn við skyldustörf sín og ætli sér rýmri hlut en þeim er reiknaður samkvæmt lögum og reglum. Davíð á þakkir skilið fyrir að víkja Guðmundi Magnússyni úr starfi tímabundið sem forstöðumanni Þjóðmenningarhúss. Guðmundur sýndi reyndar af sér þá fádæma fávisku að skrifa í blöð og þakka forsætisráðherra traustið eftir að Davíð hafði umsvifalaust tekið upp skriffærin og ávítað hann fyrir hátternið, þótt með óformlegum hætti væri. Þjóðin las skrif forstöðumannsins agndofa og skildi hvorki upp né niður í neinu. Þjóðin vissi vart sitt rjúkandi ráð. En þá hafði Davíð engar vomur á og út skyldi Guðmundur Magnússon, sem hafði ekki einu sinni til að bera það skynbragð að þegja eftir ávíturnar, sem virtust eiga fullan rétt á sér. Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður og félagi Guðmundar í því að maka krókinn með útskrift reikninga, sagði af sér sem formaður stjórnar Þjóðmenn- ingarhúss, en þeir félagarnir unnu í verktöku hvor fyrir stofnun hins og munu ekki hafa skorið sjálfdæmd laun ekki við nögl. Auðvitað fær þjóðin nóg af þessu hátterni og sennilega hefur á þeim andartökum sem þetta mál og mál- efni Landsímans voru mest rædd í þjóðfélaginu verið hvað grynnst á þolinmæð- inni gagnvart Davíð Oddsyni forsætisráðherra og ríkisstjórninni. Almenningi var einfaldlega nóg boðið og reyndar miklu meira en svo. Í málefnum Landsímans hafa skilaboðin greinilega náð eyrum hins ágæta manns Friðriks Pálssonar, en afskipti hans og hegðan sem stjórnarformanns Landsímans hafa komið mörgum, sem töldu sig þekkja til hans, verulega á óvart. Nema Davíð hafi einfaldlega borið Friðriki eða látið bera honum þau skýru skilaboð sem hann tilkynnti þjóðinni um síðustu helgi, að þeir sem sætu í stjórn Landsímans yrðu að njóta trausts ríkisstjórnarinnar og hollast, eðlilegast, heilbrigðast og hreinlegast væri að skipta um alla stjórnina, þótt flestir og þar á meðal nefndur Friðrik hefðu reyndar gert eitthvað gott í stjórninni. Þórarinn er farinn þótt dýr reyndist hann. Með þessu er Davíð einfaldlega að segja að þeir menn sem ætli sér að njóta trausts hans skuli halda sig á mottunni og muna að eftir leikreglum skal farið. Þeir sem ekki treysta sér til þess verði hreint og beint látnir flakka. Vafalaust á eitthvað enn eftir að koma í ljós þegar sú ágæta og mjög svo þarfa og vaxandi stofnun Alþingis, Ríkisendurskoðun, fer að fletta upp ríkisteppinu víðar og kíkja undir það. Hætt er við að ekki séu öll kurl kom- in til grafar. Freistingin er greinilega mjög sterk og eins og gamli málshátturinn segir: Það þarf sterk bein til að þola góða daga. En boðskapurinn er skýr sem betur fer. Sjálftökumenn, sem ekki fara að reglum, skulu ekki sitja í skjóli Davíðs Oddssonar. Hafi hann þakkir fyrir. Fjölmargir hafa lýst áhuga á nýjum húsum sem Múrkraftur ehf. í Ísafjarð- arbæ hyggst reisa í nýju íbúðahverfi sem skipulagt hefur á Tunguskeiði á Ísa- firði. Hermann Þorsteins- son, annar eigenda Múr- krafts ehf. sagðist í samtali við blaðið vera bjartsýnn á að framkvæmdir gætu hafist um leið og búið væri að ganga frá sölu á fyrstu húsunum og frost væri farið úr jörðu. Hann sagði ennfremur að eftir ætti að hæðarmæla svæðið og þegar niðurstaða þar lægi fyrir, yrði hægt að gefa út endanlegt verð á húsunum. Um er að ræða átta, svo- kölluð kubbahús, en í þeim er steinsteypu rennt í mót þar sem einangrun er bæði að utan og innan. Bílskúrar verða við hvert hús. Hér verður um fyrstu nýbyggingar íbúðar- húsnæðis í nýju hverfi á Ísa- firði um langt árabil. Slíkar lóðir hafa ekki verið fáanlegar á Ísafirði allt frá því nýja Selja- landshverfið dæmdist úr leik eftir snjóflóðið á Seljalands- dal um miðjan síðasta ára- tug. Að sögn Hermanns eru næg verkefni hjá Múrkrafti um þessar mundir og nefndi hann í því sambandi byggingu sjö bílskúra í Bolungarvík sem fyrirtæk- ið stæði fyrir. Framkvæmdir hefjast um leið og frost fer úr jörðu Styttist í byggingarframkvæmdir í nýju íbúðahverfi á Tunguskeiði Í grenndarkynningu sem nýlega var gerð vegna Hjalla- vegar 11 á Ísafirði komu ekki fram neinar athugasemdir við breytta notkun eignarinnar. Næstu nágrönnum hafði verið gefinn frestur til 15. febrúar sl. til að koma á framfæri at- hugasemdum við byggingar- fulltrúa Ísafjarðarbæjar við þá fyrirætlan Flísarinnar sf. að nýta húsið sem geymslu í tengslum við starfsemi sína en fyrirtækið keypti húsið fyrir skömmu af Björgunarfélagi Ísafjarðar. Eigendur sex húsa við Hjallaveg fengu sent bréf vegna málsins en engar at- hugasemdir bárust bygging- arfulltrúa utan þess að tveir húseigendur höfðu samband og tjáðu honum að þeir gerðu ekki athugasemd við þessa notkun hússins. Var grenndarkynningin framkvæmd í samræmi við bókun bæjarráðs Ísafjarðar- bæjar 14. janúar sl. þar sem ákveðið var að ósk Flísarinnar sf. um gerð lóðaleigusamn- ings vegna umræddrar lóðar, yrði sett í grenndarkynningu áður en að bæjarráð tæki af- stöðu til bókunar umhverfis- nefndar sem hafði lagt til að gerður yrði lóðarleigusamn- ingur við fyrirtækið. Áður hafði íbúi sem búsett- ur er í nágrenni við húsið gert athugasemd við að húsið skyldi hafa verið selt. Vísaði umræddur íbúi til þess að á þeim tíma þegar íbúðarhúsin við Hjallaveg voru byggð hafi bæjaryfirvöld lofað að húsið, sem þá var áhaldahús Vega- gerðarinnar, yrði keypt og rifið við fyrsta tækifæri. Ekki fund- ust nein skrifleg gögn sem studdu þessa fullyrðingu en hún var hins vegar studd af númerum lóða við götuna. Engar athugasemdir í grenndarkynningu Húseignin að Hjallavegi 11 á Ísafirði Húseignin að Hafnarstræti 17 á Ísafirði Ísafjarðarbær eignast húsið eftir áratuga bið Ísafjarðarbær hefur geng- ið að tilboði Halldóru Guð- mundsdóttur vegna sölu á eignarhluta hennar í Hafn- arstræti 17 á Ísafirði. Um er ræða íbúð á neðri hæð í tví- býlishúsi, ásamt bílskúr og tilheyrandi hlutfallslegri sameign og eignarlóð. Sölu- verð er kr. 6.500.000 og greiðist við undirritun kaup- samnings en afhending eignarinnar verður sam- kvæmt nánar samkomulagi. Tilboðið er samþykkt af Halldóri Halldórssyni, bæj- arstjóra, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Stefán Brynjólfsson, byggingafulltrúi á tækni- deild Ísafjarðarbæjar, segir að deiliskipulag fyrir þetta svæði sé komið nokkuð til ára sinna og áratugir síðan fyrst var farið að ræða um kaup á Hafnar- stræti 17. Árið 1971 keypti Ísafjarðarkaupstaður efri hæð hússins, hálfan kjallarann og helminginn í eignarlóðinni en ekki náðist samkomulag um kaup á eignarhluta Halldóru fyrr en nú í síðustu viku. Stef- án segir að skv. skipulagi hafi aldrei staðið neitt annað til en að húsið yrði fjarlægt enda sé þarna gert ráð fyrir byggingar- lóðum sem og annars staðar á svæðinu sunnan við Hafnar- stræti. Gatan verður þá lagfært þannig að hlykkurinn sem nú er vegna hússins hverfur og sömuleiðis er gert ráð fyrir að Mjallargatan nái alla leið niður að Pollgötunni þannig að gatnamót verða nokkurn veginn á þeim stað sem hús- ið stendur núna. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um framtíð hússins. Hins vegar hafi óformlega verið rætt um að bjóða það til sölu til flutn- ings en áður þurfi þó að liggja fyrir hvaða lóð sé hægt að bjóða viðkomandi kaupanda að flytja á. Húsið verði því vonandi ekki rifið enda eitt af þessum virðu- legu, húsum á Ísafirði sem eiga sér merka sögu. Auglýsingar og áskrift 456 4560

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.