Bæjarins besta - 08.08.2002, Blaðsíða 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
bb.is
– öflugur frétta- og
upplýsingamiðill!
Fyrrum framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækja „Rauða hersins“
Fékk skilorðsbundinn dóm
en var sýknaður að hluta
Ketill Helgason, fyrrum
framkvæmdastjóri vestfirsku
fiskvinnslufyrirtækjanna
Rauðsíðu ehf. og Bolfisks ehf.
og fleiri tengdra fyrirtækja
(„Rauða hersins“) var í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í síðustu
viku dæmdur í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
fjársvik. Hann var hins vegar
sýknaður af ákæru fyrir brot
gegn tollalögum. Bótakröfu
flutningafyrirtækis á hendur
honum var vísað frá dómi
vegna vanreifunar.
Ketill var ákærður og sak-
felldur fyrir að hafa í mars
1999 fengið framkvæmda-
stjóra Flutningamiðlunarinnar
Jóna hf. til að afhenda sér um
6,5 milljónir króna sem fyrir-
framgreiðslu fyrir 15 tonn af
þorskhnökkum, sem hann lof-
aði að Rauðsíða hf. myndi
afhenda skömmu síðar, án
þess að nokkrar efndir yrðu á
því loforði.
Einnig var hann ákærður
fyrir að hafa í fjögur skipti á
tímabilinu frá því í nóvember
1998 fram í ágúst 1999 sem
framkvæmdastjóri Rauðsíðu
ehf. og framkvæmdastjóri
Bolfisks ehf. flutt inn á ólög-
legan hátt frosið sjávarfang,
samtals liðlega eitt tonn af
ýsu og liðlega eitt þúsund tonn
af þorski, sem fjarlægt var úr
frystigeymslum og tekið ótoll-
afgreitt til vinnslu í fiskverk-
unum Rauðsíðu ehf. og Bol-
fisks ehf. án heimildar toll-
yfirvalda. Dómurinn sýknaði
Ketil af þeim atriðum ákær-
unnar, það eð ekki yrði á því
byggt að honum hafi átt að
vera það ljóst að honum væri
óheimilt að afhenda sjálfum
sér fiskinn til vinnslu úr eigin
geymslum, þótt tollmeðferð
hans væri ekki lokið.
Í málinu lá fyrir bótakrafa
Jóna-Transport hf. um að
ákærða yrði gert að greiða fyr-
irtækinu kr 6.496.722 auk
þóknunar lögmanns og drátt-
arvaxta. Var þar greint að það
félag hafi yfirtekið öll réttindi
og skyldur Jóna hf., en ekki
tilgreint með hvaða hætti það
hafi gerst og hvenær, og ekki
kennitala og heimili hins nýja
félags. Ákærði krafðist frávís-
unar bótakröfunnar við munn-
legan málflutning, með skír-
skotun til þess að yfirlýsing
um aðilaskipti að kröfunni
væri engum gögnum studd.
Á þetta féllst dómurinn og
vísaði bótakröfunni frá.
Í dómsorði segir að ákærði
skuli sæta sex mánaða fang-
elsi, en fresta skuli fullnustu
refsingarinnar og hún falla
niður að liðnum tveimur árum
frá uppsögu dómsins, haldi
ákærði almennt skilorð. Vísað
var frá dómi bótakröfu Jóna-
Transport hf. Ákærði greiði
helming sakarkostnaðar, þar
með talinn helming málsvarn-
arlauna skipaðs verjanda síns,
en að öðru leyti greiðist sak-
arkostnaður úr ríkissjóði.
Vestfirðir
1% atvinnu-
leysi í júlí
Í byrjun þessa mánaðar
voru 46 atvinnulausir
skráðir á Vestfjörðum utan
Reykhólahrepps, 18 karl-
menn og 28 konur. Um ör-
litla aukningu er að ræða
frá meðalatvinnuleysi í
júní og mældist það nú 1%
en var 0,9% í síðasta mán-
uði.
Að sögn starfsmanns hjá
Svæðisvinnumiðlun Vest-
fjarða má ekki búast við
mikilli hreyfingu á mann-
afla á þessum árstíma. Ekki
er von á mikilli breytingu
fyrr en seinna í ágúst þegar
nemendur fara af vinnu-
markaði.
Þórður Júlíusson á Ísa-
firði greiðir langhæstan
eignarskatt og sérstakan
eignarskatt einstaklinga á
Vestfjörðum samkvæmt
álagningu 2002 eða liðlega
2,6 milljónir króna. Næst
á eftir koma Sigurbjörg
Halldórsdóttir og Friðgeir
Höskuldsson á Drangsnesi
með kr. 689 þúsund hvort.
Í fjórða sæti er Kristjana
Ólafsdóttir á Ísafirði með
kr. 621 þúsund en síðan
koma Sigríður Brynjólfs-
dóttir og Ásgeir Guðbjarts-
son á Ísafirði með kr. 615
þúsund krónur hvort. Han-
sína Einarsdóttir á Ísafirði
skal greiða kr. 525 þúsund,
Jón Gunnar Stefánsson á
Patreksfirði er næstur með
kr. 439 þúsund, en síðan
koma Ingibjörg Kristjáns-
dóttir og Hinrik Kristjáns-
son á Flateyri með kr. 403
þúsund hvort.
Þórður Júl-
íusson greið-
ir hæstan
eignaskatt
Vestfirðir
Þórður Júlíusson.
Gamall kunningi lögreglunnar að störfum á Ísafirði
Braust inn hjá Orkubúinu
strax eftir annað innbrot
Brotist var inn í höfuðstöðv-
ar Orkubús Vestfjarða á Ísa-
firði aðfaranótt fimmtudags-
ins í síðustu viku. Innbrots-
þjófurinn braut opnanlegan
glugga við bakinngang húss-
ins og fór þar inn. Við þetta
fór þjófavarnakerfi í gang og
hringdi bjalla á öðrum stað í
húsinu. Einnig gerði stjórn-
stöð Securitas lögreglu og
nokkrum starfsmönnum við-
vart. Þjófurinn fór að hringj-
andi bjöllunni og lamdi hana
sundur. Þá reif hann niður
stjórnstöð fyrir þjófavarna- og
brunavarnakerfi.
Að því loknu fór hann að
læstum og rammgerðum
skjalaskáp í tölvuherbergi.
Innbrotsþjófnum tókst að
opna skápinn sem innihélt þó
ekkert fé, heldur einungis
tölvugögn. Um svipað leyti
kom lögregla á staðinn og
kom hún að innbrotsþjófnum
á efri hæð hússins. Hélt hann
þá á tveimur töskum og sínum
innbrotstólum. Tjónið sem
hann olli í þessu innbroti mun
nema milljónum króna. Þjóf-
urinn gamall kunningi lög-
reglunnar og sá sami og braust
tvívegis inn í Vestrahúsið á
Ísafirði en fyrr í síðustu viku
upplýsti lögreglan á Ísafirði
þau mál.
Þau innbrot voru framin
með um hálfs árs millibili,
það fyrra í febrúar en það síð-
ara aðfaranótt mánudagsins í
síðustu viku. Í báðum inn-
brotunum var fjármunum stol-
ið sem og ýmiskonar varningi
sem í húsinu var geymdur. Í
kjölfar síðara innbrotsins
handtók lögreglan á Ísafirði
mann á fertugsaldri sem grun-
aður var um að hafa framið
innbrotin. Maðurinn sem hef-
ur alloft komið við sögu lög-
reglunnar vegna auðgunar- og
fíkniefnabrota viðurkenndi að
hafa framið bæði innbrotin og
vísaði auk þess lögreglu á þýf-
ið.
Fyrra innbrotið var framið
þann 22. febrúar sl. þegar brot-
ist var inn í fimm fyrirtæki og
stofnanir í Vestrahúsinu. Af
verksummerkjum mátti sjá að
innbrotsþjófurinn fór þá inn
hjá fyrirtækinu Vír og þaðan
inn í fyrirtækin Ellingsen-
Sandfell og Ísfang.
Sömuleiðis var brotist inn
hjá Rauða krossinum og inn á
skrifstofu útgerðarfélagsins
Ísfirðings. Þá var reynt að
brjótast inn í umboð Vífilfells
en viðkomandi varð frá að
hverfa. Þannig var umhorfs á vettvangi í Orkubúi Vestfjarða.