Vinnan


Vinnan - 01.12.1948, Qupperneq 16

Vinnan - 01.12.1948, Qupperneq 16
JÓN SIGURÐSSON: Tuttugasta og fyrsta þing Alþýðusambands Islands Tuttugasta og fijrsta þing Alþýðusambands ís- lands var haldið dagana 14.—20. nóv. s. 1. Aðdragandi og undirbúningur þessa þings verka- lýðssamtakanna var með nokkuð öðrum hætti en undanfarið hefur verið. í nóvemher 1944 náðu kommúnistar meirihluta á 18. þingi sámbandsins með ýmsum bolabrögðum svo sem með því að gera afturreka fulltrúa frá félög- um er ekki náðu að kjósa á hinum tilsetta tíma o. s. frv. Þessum meirihluta héldu svo kommúnistar þar til nú, eða í fjögur ár, og notuðu sér aðstöðuna innan samtakanna óspart til áróðurs fyrir flokk sinn komm- únistaflokkinn, og til þess að útbreiða hina rúss- nesku einræðisstefnu. Á s. 1. sumri tókst samvinna milli allra lýðræðis- sinna innan samtakanna um það, að bjarga verka- lýðssamtökunum úr klóm kommúnista, og varð bar- áttan í kosningunum nú, harðari en nokkru sinni fyrr. Kosningunum lauk, eins og kunnugt er, með glæsilegum sigri lýðræðissinna er áttu 140 fulltrúa í þingbyrjun en kommúnistar aðeins 109 fulltrúa. Eftir skrifum kommúnista að dæma mátti búast við að reynt yrði að beita einhverjum ofbeldisráð- stöfunum af þeirra hálfu, til þess að halda sam- bandinu enda reyndist það svo, eins og nú verður að vikið. Þingið var sett kl. 2 e. h. sunnudaginn 14. nóv. eins og til stóð og voru þá flestir fulltrúar mættir. Gert hafði verið ráð fyrir því að fundi yrði haldið áfram eftir þingsetningu, en vegna þess að kjör- bréfanefnd hafði ekki unnist tími til að ljúka störf- um var að þingsetningu lokinni frestað fundi til kl. 9 um kvöldið. Þrátt fyrir það að lög Alþýðusambandsins og þingsköp mæli svo fyrir um, að kjörbréfanefnd sé skipuð þrem dögum fyrir þingbyrjun, var hún skip- uð miklu seinna og ekki kölluð saman til starfs fyr en aðeins þrem klst. áður en þing átti að hefjast. Jón SigurSsson í kjörbréfanefnd voru skipaðir: Lúðvík Jósefsson og Guðmundur Vigfússon af hálfu kommúnista og Jón Sigurðsson fyrir lýðræðissinna. Kærur lágu fyrir á 12 félög, þar af frá sambandsstjórn á 8 félög. Aðal kæruefni frá sambandsstjórn var, að félögin hefðu látið undir höfuð leggjast að senda meðlima- skrá til skrifstofu sambandsins og auk þess hefðu sum félög stórfalsað kjörskrá, að hennar dómi. Akærur J)essar höfðu við lítil og engin rök að styðjast, og því ógerningur að taka þær til greina. Fundur hófst að nýju kl. 9 um kvöldið og byrjaði með því að forseti skýrði frá því að samkomulag hefði ekki orðið í kjörbréfanefnd um afgreiðslu kjör- bréfa og kæmi því álit hennar í tvennu lagi. Lúðvík Jósefsson er hafði framsögu fyrir meiri- hluta nefndarinnar, þ. e.' kommúnista, lagði til, að kjörbréf allra fulltrúa væru tekin gild nema um 50 fulltrúa frá um 12 félögum, þar á meðal Sjómanna- félags Reykjavíkur, Bifreiðastjórafélagsins Hreyfill, Vlf. Akraness, Vlf. Baldur á ísafirði og Verkal,- og sjóm.fél. Keflavíkur. Jón Sigurðsson er var í minnihluta nefndarinnar og hafði framsögu fyrir lýðræðissinna mótmælti sak- aráburði á hin ýmsu félög sem algerlega ástæðulaus- 260 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.