Vinnan


Vinnan - 01.02.1997, Blaðsíða 4

Vinnan - 01.02.1997, Blaðsíða 4
Tryggvi Þór Aflalsteinsson skrifar nm ]\icaragua Bluefields, bær við Atlantshaf Bærinn Bluef ields liggur við Atlantshafsströnd Nicaragua, einangraður frá öðrum hlutum landsins. Engir akfærir vegir liggja til bæjarins. Samgöngur á milli höfuðborgarinnar Mana- gua og Bluefields eru með flug- vélum eða bátum á skipgengum ám og vötnum. Vissulega skap- ar þetta vandamál fyrir íbúa Bluefields en sömuleiðis auð- veldar það íbúunum að halda sérstöðu sinni og eigin háttum. að var spennandi að koma í fyrsta skipti til Blufields, sem ég hafði bæði heyrt og lesið um. Ef til vill var það fyrst haustið 1988 sem ég heyrði talað um bæinn og þá í sambandi við fellibylinn sem nánast jafnaði Bluefi- elds við jörðu. Vindstyrkurinn var þvílíkur að flest húsin gjöreyðilögð- ust. Engu að síður hófst endurbygg- ingin og smám saman komst lífið í svipað horf og áður. Ibúamir eru um 17 þúsund, flestir afkomendur enskra sæfara og þræla þeirra sem settust að á þessum slóðum á 17. og 18. öld. Englendingamir höfðu með sér þræla frá Afríku sem ásamt Englendingun- um blönduðust misquitoindíánum og íbúum Nicaragua af spænskum upp- mna. Spánverjar höfðu lagt undir sig vesturhluta landsins nokkru fyrr eins og mestan hlut Mið- og Suður Amer- íku. Spænska er tungumál flestra og opinbert tungumál í Nicaragua eins og í öðrum löndum þesa heimshluta. En ekki í Bluefields, þar er það enska sem ríkir. Það er eitt ásamt öðru sem skapar sérstöðu Bluefields. Fólkið í Bluefields kallar sig costenos - strandbúana. Því finnst að það hafi löngum verið afskipt og stjómvöld í höfuðborginni Managua látið sig líf þess og aðstæður litlu skipta. Þó öðl- uðust íbúar austurstrandarinnar nokk- urt sjálfstæði árið 1985 þegar sam- þykkt voru lög um sjálfstjómarhéruð. Lögin hafa ekki enn breytt miklu en skapa aukna möguleika fyrir íbúana að ráða eigin málum. Félags- og menningarmiðstöð Erindi mitt til Nicaragua og Bluefi- elds var að ganga frá samningum milli ABF (sænska menningar- og fræðslusambandið) og nicaragu- anskra samtaka um lokaáfangann í enduruppbyggingu félags- og menn- ingarmiðstöðvar í Blufields. A síð- ustu tíu árum hafa samtökin opnað og rekið félags- og menningarmið- stöðvar víða í landinu, má með Bluefieldsmenn veiða fisk sem m.a. er seldur til Bandaríkjanna. stuðningi frá ABF og sænsku þróun- arsamvinnustofnuninni. I Bluefields gjöreyðilagðist menningarmiðstöðin í fellibylnum 1988 en fyrir nokkrum árum hófst enduruppbygging hennar og stefnt er að því að hún standi full- búin í árslok 1998. Auk endurbygg- ingar miðstöðvarinnar felst samstarf ABF og samtakanna í Nicaragua í námskeiðum fyrir starfsmenn hússins og þá sem leiða starfið sem þar fer fram. Ef kirkjunum tveimur er sleppt eru engin önnur hús í Bluefields þar sem fólk getur safnast saman til funda, námskeiða og stærri sam- Verðdæmi__________ Kaupmannahöfn Verðdæmi fyrir fjögurra manna fjölskyldu sem kaupir miða fyrir 8. mars (2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára): 23.480 kr. x 2 = 46.960 kr. fyrir tvo fullorðna 15.810 kr. x 2 = 31.620 kr. fyrir tvö börn Samtals: 78.580 kr. eða 19.645 kr. á mann að meðaltali, en það er innan við 2.000 kr. á mánuði á mann, miðað við 10 mánaða raðgreiðslur! Félagar í eftirtöldum félögum njóta þessara einstöku kjara: Alþýðusamband íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna, Samband íslenskra bankamanna, Landssamband aldraðra, Farmanna- og fiskimannasamband íslands, Kennarasamband íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Blaðamannafélag íslands, Vélstjórafélag íslands, Stéttarfélag verkfræðinga, Stéttarfélag tæknifræðinga, Félag bókagerðarmanna, Prestafélag íslands, Verkstjórasamband íslands, Félag ísl. lyfjafræðinga, Félag íslenskra stjórnunarstarfsmanna Keflavíkurflugvelli og Félag aðstoðarfólks tannlækna. Enn á ný gefst tækifæri til að tryggja sér utanlandsferð á sérstöku afsláttargjaldi samkvæmt þeim samningi sem Samvinnuferðir - Landsýn hefur gert við helstu launþegasamtök landsins. Samningurinn tekur til 5.000 sæta til nokkurra helstu áfangastaða Flugleiða á tímabilinu 8. maí til 15. september. • Miðarnir gilda frá einni viku upp í einn mánuð. • Fargjöldin gilda fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra (þ.e. þá sem halda heimili saman). • Sala farseðla fer eingöngu fram á söluskrifstofum og hjá umboðsmönnum Samvinnuferða - Landsýnar um land allt. Dragið ekki að kaupa miða! Verðið hækkar eftir 7. mars. Allar nánari upplýsinqar er að fá í síma 569 1010 FLUGLEIDIR 1 /k ve/ðii' / Sanivinniilerúir-Laiitlsýii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010 • Símbréf 552 7796 og 569 1095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 5691070 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbréf 562 2460 Hafnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 • Símbréf 565 5355 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400 • Símbréf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Simbréf 4311195 ■rsr OATIAS^ Akureyri: Ráðhúslorgi 1 • S. 462 7200 • Símbréf 461 1035 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Símbréf 481 2792 EUROCARD Einnig umboðsmenn um land allt

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.