Vinnan


Vinnan - 01.02.1997, Page 9

Vinnan - 01.02.1997, Page 9
Dranmnrinn, veruleikinn og eilifa leitin Rafiðnaðarsambandið rekur, ásamt atvinnurekendum í rafiðnaði, skóla sem býður í senn upp á fagnám fyrir félagsmenn og tölvu- námskeið fyrir almenning. Uppgangur Rafiðnaðarskólans hefur verið með ólíkindum. Starfsemin hófst árið 1985 f 70 fermetra leiguhúsnæði en fer nú fram í 1000 fermetra húsnæði skólans sem varla dugir til. Vinnan leit inn f Rafiðnaðarskólann f Skeif- unni og bað skólastjórann, Jón Árna Rúnarsson, að kynna starf- semina. Jón Árni segir umsvif skólans stöðugt hafa verið að aukast, en að meðaltali sé aukning milli ára frá 1992 um 25-30%. Skólinn hafi árlega þurft að bæta við sig húsnæði en þrátt fyrir það séu sumar kennslustofumar nýttar 80 kennslustundir á viku, það er frá hálf níu á morgnana til hálf tíu á kvöldin. Sem dæmi um þessa miklu aukningu nefnir hann að árið 1995 vom fag- og fagtengd námskeið 107 og þátttakendur á þeim 1021, en árið 1996 voru þau orðin 164 og þátttak- endur 1687. Sömu sögu má segja um almennu tölvunámskeiðin. Árið 1995 voru haldin 130 námskeið og á þeim voru 1316 þátttakendur en árið 1996 vom námskeiðin 239 og þátttakendur 2145. Þess ber þó að geta að sumir sækja kannski fleiri en eitt námskeið. „Það sem er ánægjulegast,“ segir Jón Ámi, „er að eftir því sem fólkinu fjölgar sem kemur til okkar í skólann, þeim mun meira áberandi verður um- talið úti á vinnumarkaðinum um hvað raftðnaðurinn leggur mikla áherslu á menntun.“ Tölvuiðnaðurinn er hluti aí rafiðnaðarumhverfinu Jón Árni segir að námskeiðum skól- ans sé skipt í þrennt. I fyrsta lagi fag- og fagtengd námskeið, þá rekstur og stjómun og loks almenn tölvunám- skeið. „Við emm orðnir mjög sterkir í tölvunámskeiðunum,“ segir hann, „og ástæðan er sú að þeir sem stjórna skólanum álíta að tölvuiðnaðurinn sé hluti af rafiðnaðarumhverfi og eigi hvergi að vera vistaður annars staðar. Stefnan er því að gera Rafiðnaðar- skólann að stærsta tölvuskóla lands- ins. Til þess að styrkja þessa stefnu höfum við verið að taka upp nýjung- ar til að mæta þörfum fólks, svo sem stutt hagnýtt tölvunám. Við finnum að fólk sækir meira í stutt nám en námskeið. Mörgum finnst erfitt að taka eitt og eitt námskeið og sam- tvinna svo. Með heildstæðu námi er yfirfærsla milli þátta miklu betri.“ Jón Árni segir að rafiðnaðarmenn sem sæki fagnámskeið njóti mestrar ávöxtunar af þeirri ákvörðun skóla- stjómarinnar að vista tölvuiðnaðinn í skólanum. „Segja má að eftir að raf- iðnaðurinn fór að vista tölvuiðnaðinn höfum við getað lækkað námskeiðs- gjaldið á fagnámskeiðin um 100%. Það kostar nú 8.000 krónur með gögnum að sækja 40 stunda fagnám- skeið en miðað við verðlag hefði það átt að vera komið í 15.600. Skráð verð á almenn námskeið er 12.000 kr. en flest stéttarfélög hafa samið við okkur um afslátt svo félagsmenn þeirra greiða 8.000 kr. fyrir 20 kennslustunda námskeið.“ Menn verða að lylgjast með nýjungum „Þau fyrirtæki sem eru með mark- vissa menntastefnu senda sína menn reglulega í eftirmenntun, til að mynda erum við stöðugt með menn frá Landsvirkjun á námskeiðum,“ segir Jón Árni. „Mjög mörg fyrirtæki reka markvissa menntastefnu, en þau fyrirtæki sem senda menn á eitt og eitt námskeið eru kannski frekar að friða mannskapinn.“ En þrátt fyrir síaukna áherslu fyrirtækja á menntun bendir Jón Árni á að könnun sem gerð var meðal þeirra sem sóttu námskeið hafi leitt í ljós að flestir komu af persónulegum áhuga og ávinningi til að geta verið með í umræðunni um nýtækni. „Menn gera sér grein fyrir að þeir detta út ef þeir fylgjast ekki með nýjungum,“ segir hann. „Tæknin í dag getur verið úrelt á morgun." Þönfin ep mesl fypin ppaktíska pekkingu Jón Árni bendir á að í fagi þar sem tæknibreytingar eru jafnörar séu menn í senn að taka ákvarðanir sem virðast draumsýnir, sinna námskeið- um sem eru til staðar og leita að nýjum tækifærum. „Stjómunaraðferð skólans skiptist þannig í þrennt,“ segir hann, „drauminn, veruleikann og eilífu leitina. Þegar ég kynni skól- ann segi ég að hann sé sá einn af fáum skólum, ef ekki sá eini hér á landi, sem notast við stefnumarkandi áætlanagerð. í henni felst framtíðar- sýn og hvaða leiðir skuli valdar. Það eru til þrjár leiðir, sóknarleið, örygg- isleið og varnarleið. Við veljum sóknarstefnuna hér, erum stöðugt að hugsa upp ný námskeið og bæta ofan á starfsemina. Margir aðilar, svo sem hótel og veitingagreinarnar, málm- og bílgreinarnar hafa tekið ákvörðun um að koma að framkvæmd kennslu á grunnnámsstigi. Við höfum valið þá leið að koma að skipulagningu grunnnámsins en láta aðra um fram- kvæmdina; við viljum vera með út- tektina sjálfir, það er samræmt próf, en að menntamálaráðuneytið sjái um eftirlit. í staðinn viljum við snúa okk- ur að eftirmenntun og framkvæmd hennar. Við erum með meistaraskóla innan Rafiðnaðarskólans og í undir- búningi er sérfræðinám sem verður að hluta til á háskólastigi. Þannig erum við að þróa eftirmenntunina yfir í tæknifræðilegt umhverfi. í framtíðarsýn okkar teljum við að vanti frekar mannskap með praktíska þekkingu en fræðilega þess vegna byggjum við ofan á grunnmenntun- Frá tölvunámskeiði í Rafiðnaðarskólanum. Stefna stjórnenda skólans er að gera hann að stœrsta tölvuskóla landsins. Takmark skólans er að rafiðnaðar- menn hafiþað að markmiði að vinna til sín öll ný störfsem skapast með tœknibreytingunum í raf- og tölvuumhverfinu. ina. Til að breyta rafiðnaðinum úr þjónustugrein í framleiðslugrein þarf meiri praktíska þekkingu. Að sögn Jóns Árna er verið að undirbúa sex sérfræðinámsbrautir. Þær eru á orkusviði, iðnaðarsviði, raflagnasviði, rafmagnssviði, raf- eindasviði og tölvusviði. „I raun erum við að flytja framhaldsnámið heim að einhverjum hluta,“ segir hann. „Ef heimild fæst og stuðningur frá menntamálaráðuneytinu er líklegt að við getum hafið einhverja kennslu í haust. Til að byrja með verður þetta kallað „Nám samhliða starfi“. Fólk getur unnið með náminu því aðeins verður kennt tvö kvöld í viku og á laugardagsmorgnum. Það er lykillinn að því að ntenn færi þekkingu inn í fyrirtækin og þurfi ekki að segja upp til að fara í framhaldsnám," segir Jón Ámi. Tæknibpeytingap tilheypa pafiðnaðinum „Við njótum góðs af því að rafiðnað- armenn vinni hjá einhverju fyrir- tæki,“ segir Jón Árni. „Stór hluti þeirra fyrirtækja sem eru með rafiðn- aðarmenn í vinnu láta okkur um að mennta aðra starfsmenn. Þannig komu 150 manns frá Islandsbanka á námskeið hjá okkur því þar vinna raf- eindavirkjar í tölvudeildinni. Ná- lægðin við tölvufyrirtækin er líka til góðs, en þar starfa margir raftðnaðar- menn. Þau fyrirtæki sem voru með tölvuskóla áður eru hætt og hafa tekið upp samstarf við Rafiðnaðar- skólann." Kostirnir við það hvað atvinnulíf- ið er orðið meðvitað um áherslu raf- iðnaðarmanna á menntamálin eru margir, að sögn Jóns Áma. „Rafiðn- aðarmenn eiga til dæmis auðvelt með að vinna ný vinnusvæði innan fyrir- tækjanna og það er auðvelt fyrir þá að fá frí úr vinnu til að fara á nám- skeið, oft vegna þess hafa einhverjir aðrir úr fyrirtækinu hafa farið á tölvu- námskeið hjá Raftðnaðarskólanum.“ Jón Árni segir að enn megi þó bæta um betur og uppgangi skólans sé síður en svo lokið. Árangurinn af því að taka tölvuiðnaðinn inn í skól- ann sé aðeins fyrsta skrefið. „Tak- mark skólans er að rafiðnaðarmenn hafi það að markmiði að vinna til sín öll ný störf sem skapast með tækni- breytingunum í raf- og tölvu- umhverfinu," segir Jón Árni Rúnars- son, skólastjóri Rafiðnaðarskólans, að lokum. RAFRUN Smiðjuvegi 11 e - 200 Kópavogur Sími 564 1012 Myndriti 5641021 Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI: 581 4670, FAX: 581 3882 Vinnðn 9

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.