Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Blaðsíða 8
JÓN BALDVIN MÆTTI DÓTTUR SINNI Í RÉTTARSAL Mikill hiti var í dómsal í vikunni þegar skýrslutökur stóðu yfir í meiðyrðamáli Jóns Baldvins Hannibalssonar. Dómari þurfti ítrekað að hafa afskipti af málsaðilum og munaði litlu að upp úr syði. F yrri hluti aðalmeðferð-ar fór fram í vikunni í meiðyrðamáli Jóns Bald- vins Hannibalssonar, fyrrum sendiherra og utanríkisráð- herra, gegn dóttur sinni, Aldísi Schram, Sigmari Guðmunds- syni og RÚV. Málið varðar út- varpsviðtal Sigmars og kollega hans, Helga Seljan, við Aldísi, sem spilað var á Rás 2 þann 17. janúar 2019. Í þættinum sagði Aldís að Jón Baldvin, faðir hennar, hefði í fjölmörg skipti sigað lögreglu á hana og fengið hana nauðungarvistaða án þess að sú vistun færi rétta leið í rétt- arkerfinu. Þá kom einnig fram í þættinum að Jón Baldvin hefði framið sifjaspell þegar hún var fullorðin kona. Auk aðilanna þriggja í mál- inu gáfu fimm vitni skýrslur í málinu, þau Bryndís Schram, eiginkona Jóns, og dóttir þeirra, Kolfinna Baldvins- dóttir, Margrét Schram, systir Jóns Baldvins, dóttir Margrét- ar og loks vinkona Aldísar. Blaðamaður DV var á staðn- um þegar Jón Baldvin mætti í dómshúsið við Lækjargötu ásamt Kolfinnu. Í anddyri dómshússins mætti Kolfinna frænku sinni sem komin var til þess að vitna fyrir Aldísi og kallaði að henni yfir and- dyrið: „Ég veit ekki hvað í andskotanum þú ert að gera hér.“ Segja má að atvikið hafi lagt línurnar fyrir daginn. „Trúði varla mínum eigin eyrum“ Jón Baldvin hóf leik og sat undir svörum lögmanns í tvær klukkustundir. Hafði dómarinn þá orð á því að dag- skrá dómsins væri fokin út í veður og vind. Lýsti Jón upp- lifun sinni af viðtali Aldísar: „Ég var varnarlaus, orðlaus, ég trúði varla mínum eigin eyrum.“ Jón sagðist vanur árásum eftir langan feril í stjórnmálum, en ásakanirnar á Rás 2, „útvarpi allra lands- manna“, hafi komið aftan að honum. Jón þverneitaði fyrir að hafa staðið að baki frelsis- sviptingu Aldísar og sagðist aðeins hafa staðfest tillögur lækna. Það hafi hann gert í umboði Aldísar. Aldís Schram sagði fram- burð föður síns, sem hún kallar þó ekki föður sinn, alrangan. Flutti hún í löngu máli rök fyrir því, og vísaði til fjölmargra gagna um það, að Jón hefði vissulega átt frum- kvæðið að því að láta nauð- ungarvista hana. „Eldhúsréttarhöldin“ í sendiherrabústaðnum Mikið var rætt um meintan geðsjúkdóm Aldísar í tengsl- um við nauðungarvistanirnar, en Aldís sagði greiningar geð- lækna á sér rangar og illa að þeim staðið. Það hafi hún svo fengið staðfest með bréfi Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans, um að skýrslur lækna sem voru nýttar sem grundvöllur fyrir nauðungar- vistanir væru „ekki hafnar yfir allan vafa“. Aldís vísaði í þessu sam- bandi til uppgjörsins milli hennar og foreldra hennar árið 2002 í sendiherrabú- staðnum í Washington D.C. Hafði Aldís þá heimsótt for- eldra sína til borgarinnar með barnungri dóttur sinni og gistu þær á heimili Jóns og Bryndísar. Lýsti Aldís því þá hvernig hún hafi á föstudag- inn langa það ár „sprungið“ og sagði móður sinni frá því að hún vissi að Jón Baldvin hefði verið sakaður um kyn- ferðisofbeldi. „Ég bara spring þarna og bunaði þessu út úr mér og frú Bryndís brást við grátandi. Þetta var einn af eftirminnilegustu dögum lífs míns,“ sagði Aldís í vitna- stúkunni. Uppákomuna kallaði Jón Baldvin „eldhúsréttarhöldin“. Jón Baldvin var þá kall- aður heim úr vinnu. „Við förum upp á efri hæð í sendi- herrabústaðnum þar sem við áttum munnlegt einvígi þar sem hann ýmist sór fyrir þær sakir eða bar því við að hann hefði verið fullur.“ Aldís segir sannað að Jón hafi látið leggja sig inn Aldís og dóttir hennar flugu heim til Íslands þar sem við tók áreiti frá læknum á geð- deild. „Ég vakna svo við það að mér sé sagt að Jón Baldvin hefði kært mig til geðdeildar Jón Baldvin ásamt lög- manni sínum Vilhjálmi H. Vilhjálms- syni í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. MYND/ SIGTRYGGUR ARI Heimir Hannesson heimir@dv.is Jón Baldvin Hannibalsson Stefnandi Aldís Schram Stefnda Sigríður Hulda Richardsdóttir Vitni Bryndís Schram Vitni Kolfinna Baldvinsdóttir Vitni Margrét Schram Vitni Hildigunnur Fönn Hauksdóttir Vitni Sigmar Guðmundsson Stefndi SVONA TENGJAST VITNIN JÓNI BALDVINI vinkonur og félagsþjónustunnar,“ sagði Aldís. Að hennar sögn sanna sjúkraskýrslur, sem hún fékk síðar aðgang að, að Jón Bald- vin og Bryndís hefðu átt frum- kvæði að því að geðlæknar höfðu samband við hana. Í sjúkraskýrslunni kemur fram að veikindi Aldísar hafi hafist einmitt á föstudaginn langa. „Það er náttúrlega augljóst, herra virðulegur dómari, það er ekki geðlæknir og spítali sem hugsar með sér strax: „Best að nauðungarvista Al- dísi.“ Hann þarf að fá einhverj- ar upplýsingar. Atburðarásin er einmitt þannig að það er fyrst Jón Baldvin eða Bryndís sem hefur samband. Ég vissi þá ekki hvers lags foreldra ég ætti. Ég vissi ekki að þau væru að bera í mig gegndarlausa geðveiki,“ sagði Aldís. Spennuþrungið andrúmsloft í réttarsal Kolfinna Baldvinsdóttir hafði aðeins setið í vitnastúku í nokkrar mínútur þegar hún kallaði systur sína „djöfulinn í mannsmynd“. Nokkrum mín- útum síðar greip Aldís orðið af systur sinni og spurði dóm- arann hvort hann ætlaði að láta lygarnar í henni yfir sig ganga. Bað dómarinn Aldísi um að hafa sig hæga og leyfa vitninu að svara spurningum lögmanna í friði. Ljóst var að köldu andaði á milli systranna og má segja að soðið hafi upp úr þegar systurnar tóku báðar stefn- una á dyragætt réttarsalar- ins og rákust á hvor aðra af talsverðu afli. Kolfinna féll við og þurfti að grípa í hurð- ina til að halda jafnvæginu. Mátti heyra Aldísi kalla að systur sinni: „Þú ert svo við- bjóðsleg.“ Kolfinna svaraði um hæl: „Á ég að segja þér hvað þú ert?“ Síðari hluti aðalmeðferð- arinnar er á dagskrá í dag, föstudag. Málið verður svo dómtekið, eins og sagt er. Dóms er að vænta eftir að há- marki fjórar vikur. n systur 8 FRÉTTIR 12. FEBRÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.