Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Qupperneq 11
Hún kvaddi mig svo og sagði:
„vertu í bandi“.“
„Ég hugsaði bara, einmitt,“
bætir Ellý við, sem bjóst ekki
við að heyra í honum aftur.
Súkkulaðikakan
„Á sunnudeginum sendi ég
henni mynd af súkkulaðiköku
þegar ég er að loka Horninu
og skrifaði: viltu köku?“
Ellý brosir. „Mér fannst það
svolítið skemmtilegt. Hann
var ekki að spyrja í hverju ég
væri.“ Ellý sló til og var mætt
stuttu seinna.
„Ég kem inn, staðurinn er
lokaður og það eru kertaljós,
súkkulaðikaka og rjómi.“
„Svo fórstu og ég kyssti þig
á kinnina bless,“ segir Hlynur.
Á þessum tíma bjó Ellý í
herbergi fyrir ofan skemmti
staðinn Strawberries í Lækj
argötu. Ellý röltir heim með
vinkonu sína í símanum sem
er að fletta Hlyni upp á Goo
gle. „Ég vildi vita hver hann
væri.“
Á meðan er Hlynur heima að
velta sér upp úr því af hverju
hann hafi ekki boðið Ellýju
heim. Hugrekkið magnaðist
með fram eftirsjánni og hann
sendi henni skilaboð. „Ég
hefði átt að bjóða þér heim.“
Þau hlæja bæði innilega.
„Ég svaraði og sagði: viltu að
ég komi? Ég var ekki að fara
að leika neina leiki. Þú finnur
það á fyrstu 4 mínútunum ef
það er eitthvað við manneskj
una. Og það var eitthvað. Þú
bara finnur orkuna.“
Það eru þrjú ár síðan og
í dag eru þau alsæl í sam
búð, trúlofuð og bíða þess að
mamma Ellýjar sem býr í
Lúxemborg komi til landsins
svo þau geti gift sig. „Kjóllinn
er tilbúinn og allt,“ segir Ellý.
Skömmin að mistakast
„Ellý var mjög brotin þegar
við kynntumst. Hún ætlaði sér
alls ekki í neitt samband og
var alltaf tilbúin með töskuna
sína. Skyldi aldrei neitt eftir
hjá mér. En ég fattaði hana
strax. Ég þurfti að vanda mig
ef ég ætlaði ekki að missa
hana út um dyrnar.“
En hvernig líður þér núna?
„Mér líður vel. Börnunum
mínum þremur gengur vel,
ég er orðin amma og við erum
með ömmu og afabarnið einu
sinni í viku. Hlynur er rosa
lega góður afi,“ segir Ellý,
uppfull af ró. En það er ekki
langt síðan að taugakerfið
víbr aði og hún var á stöðug
um flótta. Flótta undan erfið
leikunum sem fylgja ljótum
skilnaði og því að missa ver
aldlegar eigur sínar.
„Það eru tvö ár eftir af
þessu gjaldþroti. Ég klára
þetta gjaldþrot og byrja nýtt
líf en ég ætla aldrei að eiga
neitt aftur,“ segir Ellý og segir
skömmina sem fylgir gjald
þroti mikla.
„Ég er enn að eiga við það.
Þetta er alveg glatað. Að mér
hafi mistekist. Af hverju gerði
ég þetta? Af hverju leyfði ég
það að allt væri sett á mitt
nafn?“
Hlynur horfir fast á hana.
„Manni mistekst alls konar.
Þér mistókst bara þetta – og
mér mistókst eitthvað annað.
Þetta er bara lífið.“
Ekki reyna að stjórna
Það er mikil ró inni á heimil
inu og ástin áþreifanleg. Val
entínusardagurinn er á sunnu
daginn og því gott að leyfa
sér að heiðra og veita ástinni
meiri athygli – og sérstaklega
því sem virkar.
Spurð um hvað þurfi til að
láta sambandið ganga svarar
Hlynur: „Það er ekkert sem
heitir að láta sambandið ganga
upp. Ef þú ert í lagi í hausnum,
ert ekki að stjórna, drekka, í
einhverju rugli, ert heiðar
legur og opinn með sjálfan
þig, þá er þetta ekkert mál.“
Foreldrar Hlyns giftust
á Valentínusardaginn og
mamma Hlyns, arkitekt ástar
þeirra, verður sjötug á Val
entínusardaginn svo ástin er
sannarlega í hávegum höfð
þar á bæ.
„Við tókum strax ákvörðun
um að tala alltaf fallega við
hvort annað. Ég hafði ein
hvern tíma sagt: æi, vertu ekki
svona stressuð,“ segir Hlynur
DV 12. FEBRÚAR 2021
Mér fannst ég ekki
nógu góð fyrir þig.
Mér fannst ég vera
í skítnum.
FRÉTTIR 11