Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Qupperneq 34
Það er ekki sjálfgefið að sambönd séu langlíf, hvað þá í litríkum heimi Hollywood. Það hefur þó nokkrum pörum tekist hið ótrú- lega og staðist tímans tönn. tímans tönn Stjörnupör sem hafa staðist 34 FÓKUS OPRAH WINFREY OG STEDMAN GRAHAM Í meira en 30 ár hafa Oprah Winfrey og Stedman Gra- ham verið eitt af uppáhaldsstjörnupörum Hollywood. Með ótrúlegum hætti hefur þeim tekist að halda sam- bandi sínu ágætlega leynilegu. Þau kynntust á góð- gerðarviðburði árið 1986. Stedman fór á skeljarnar árið 1992 en þau giftust aldrei. Oprah sagði í viðtali við Vogue að ef hún og Stedman hefðu gifst, þá væru þau ekki lengur saman. GOLDIE HAWN OG KURT RUSSELL Leikararnir kynntust við tökur á kvikmyndinni The One and Only, Genuine, Original Family Band árið 1966, en það liðu sautján ár þar til þau byrjuðu saman. Þegar þau kynntust var Goldie Hawn 21 árs og Kurt Russell 16 ára. En biðin var þess virði. Þau hafa verið saman í 37 ár og enn ógift. „Fyrir fólk eins og okkur þá var hjóna- bandsvottorð ekki að fara að gera neitt fyrir okkur,“ sagði Russell við People, um ástæðuna fyrir því að þau væru ekki gift. KEVIN BACON OG KYRA SEDGWICK Leikarahjónin hafa verið saman síðan árið 1988, til að byrja með hafði Kyra engan áhuga. „Hann var alls ekki mín týpa. Ég man eftir því að hafa horft á rassinn á honum þegar hann gekk í burtu og hugsað: Jæja, sum- um stelpum finnst þetta aðlaðandi,“ sagði Kyra í viðtali við Redbook um fyrsta samstarf hennar og Kevins við kvikmyndina Lemon Sky. En Kevin tókst að heilla hana upp úr skónum og þau giftust seinna sama ár. TOM HANKS OG RITA WILSON Tom og Rita kynntust árið 1981 við tökur á þættinum Bosom Buddies. Á þeim tíma var Tom giftur en gat ekki neitað neistanum sem hann fann á milli sín og Ritu. „Ég spurði hvort þetta væri líka raunverulegt fyrir hana og við gátum bara ekki neitað því,“ sagði Tom í viðtali við Good Housekeeping um byrjun sambands hans og Ritu. Það liðu þó nokkur ár þar til þau byrjuðu saman. Fjórum árum eftir að þau kynntust fyrst, árið 1985, léku þau saman í myndinni Volunteers. Þau byrjuðu í kjölfarið saman og opinberuðu sam- band sitt árið 1986. Þau giftust árið 1987 og eignuðust tvö börn saman. Tom á tvö börn úr fyrra sambandi. ELTON JOHN OG DAVID FURNISH Stórsöngvarinn sagði að þetta hefði verið ást við fyrstu sýn. Hann kynntist eiginmanni sínum, David Furnish, árið 1993. „Ég heillaðist strax af honum. Hann var vel klæddur, mjög feiminn. Við borðuðum saman næsta kvöld og urðum mjög fljótlega ástfangnir,“ sagði Elton í viðtali við Parade. TIM MCGRAW OG FAITH HILL Kántrístjörnuparið kynntist á tónleikaferðalagi árið 1996 og gekk í það heilaga sama ár. Nú 25 árum seinna eiga þau þrjár dætur saman og eru enn að semja tónlist saman. DENZEL WASHINGTON OG PAULETTA PEARSON Hjónin hafa verið saman í rúmlega fjóra áratugi og gift í 36 ár. Þau kynntust fyrst við tökur á sjónvarps- þættinum Wilma árið 1977. Fljótlega eftir tökur byrj- aði rómantíkin að blómstra og eftir sex ára samband gengu þau í það heilaga. Þau endurnýjuðu heitin sín árið 1995 og eiga saman fjögur börn. MYNDIR/GETTY 12. FEBRÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.