Stefnir - 01.02.1970, Blaðsíða 19

Stefnir - 01.02.1970, Blaðsíða 19
Efiirþankar Máltœkið segir a5 fjand- inn lesi biblíuna aftur á bak. Það er sagt að það máltceki sé mjög gamalt. Það sýnir og sannar eins og svo margt annað að ekkert er nýtt undir sólunni. Og það sannar líka að þeir gömlu vissu hvað þeir sungu, og að þeir kunnu að segja það sem þeir vissu í fám orðum, en um leið svo skýrt og skilmerkilega að ekki þurfti að geta sér til um merkinguna. í þann tíð var fjandinn erkióvinur mannsins. Og hann var hœttulegur óvin- ur sakir flestra eiginleika sinna, en þó fyrst og fremst fyrir slœgvizku sína, mœrð og undirferli. Aftur á móti fór því fjœrri að hann vœri alvitur eða svo slunginn að hann gœfi aldrei fœri á sér. Þegar eitthvert af brögðum hans misheppnaðist, átti hann það til dœmis til að reiðast svo heiptarlega, að hann gœtti sín ekki, enda þótt hann iðraðist þess jafn- an eftir á og reyndi þá að breiða yhr mistök sín með tungumýkt og smjaðri. Og þeir gömlu gerðu sér fulla grein fyrir því, að mikil- vœgust forsendan þess að geta séð við honum og ónýtt brögð hans, var að þekkja á hann, eins og þeir munda hafa orðað það — vita ekki einungis þá veik- leika hans í glímunni, sem orðið gátu til þess að hann félli á sjálfs sin bragði, heldur og miklu fremur bragðleik-i.i hans; hvemig hann undirbjó brögð sín og beitti þeim. Þetta kemur greinilega fram í sögunum, þar sem segir frá viðureign þeirra, Kö'ska og Sœmund- ar fróða. Sœmundur kynnti sér nrkvœm'ega hvemig Kölski fór að, þegar hann klófesti þann nemanda, sem síðastur gekk á brott þegar Svartaskóla var slitið hverju sinni, og hirti þannig kennslulaunin — og fyrir það haíði Kölski ekkert af Sœmundi nema skikkjulaf- ið. Sœmundur vissi líka að Kölski þoldi ekld neitt eins illa og helgan klukkna- hljóm, og þess vegna var klukkum oftar hringt en til tíoa í Odda meðan Sœ- mundur þjónaði því ka’li. Og — þótt undarlegt kunni að virðast — þá var það ekki hvað sízt mikils- virði í baráttunni við Kölska, að þekkja lestrarvenjur hans. Þegar þeir gömlu sögðu að fjandinn lœsi bib’íuna aftur á bak, þýddi það ekki að hann hœfi Iesturinn aft- ast í neðstu línu á öftustu síðu — heldur einfaldlega að hann legði öfuga merk- ingu í allt það, sem í bók- inni stœði, og umsneri þannig öllum kenningum herrnar sér í vil. Vitnaði svo í hið helga orð með mœrð- arsvip og sagði: ,Jú, þarna má sjá; þetta stend- ur í ykkar eigin trúarbók, en eins og þið vitið boðar hún eingöngu heilagan sannleika. . ." Ef fjandinn hefði til dœm- ist rekizt á orðið „frelsi" einhvers staðar í ritning- unni, þá mundi hann hafa lagt þann skilring í hug- takið, sem gekk þvert úr átt við upprunalega merk- ingu þess. Hann mundi hafa túlkað það sem skoðana- kúgun, njósnir um þanka- gang manna, hvers konar va’dbeitingu og ofbeldi af há'fu vald.hafan-'a, fanqe’s- amr oq fangabúðavist, af- tökur fyrir unn’ognar sakir — svo ^okknð sé nef~t. Og að þeirri túlkun lokinni. mundi hann hafa brosað því mjúka flœrðarbrosi, sem fjandanum einum er gefið og hann beitir þegar hon- um finnst sjálfum að sér hafi tekizt betur en nokkru sinni áróðurinn — þessi rök- semdarfœrsla, sem er nú einu sinni hans aðall. Og hann mundi hafa sagt: „Þama sjáið þið; þetta er hið fullkomna frelsi, hið eina og fullkomna svar við þeirri þrá, sem hverjum manri er meðfœdd. ..." Gömlu mennirnir mundu þó yfirleitt ekki hafa látið b’ekkjazt af þeirri röksemda- fœrs’u — ekki þeir, sem gerðu sér grein fyrir lestr- araðferðum, Kölska, sér í lagi þegar hann las bib'í- una. Og Sœmundur fróði mundi hafa svarað henni með því að hringja hinum vígðu k’ukkum að Odda- stað; að ómur sannleikans mœtti berast út yfir sand- inn, þessi ómur, sem Kö’ski þo’di ekki fyrir nokkum mun. En þótt gömlu menn- irnir œttu hei’briqða skyn- semi í ríkum mœli, er samt ekki að vita nema að ein- hvev’ir, infnvel í þeirra hóoi, hefðu ekki gert sér grein fwqr ’est'-arnðferðum Kö’ska. Á þá kynni að hafa komið nokkurt hik. . . harrn les þetta af himn helgu bók, svo að það h’ýtur að vera satt, þótt það láti óneit- anlega undar’ega í eyrum, kvnnu þeir að hafa hugsað. Og þeir hinir sömu mundu hafq snu’’t furðu lostnir: „Því í ósköpunum er séra Sœmundur eiginleqa að hringja k’ukkunum?" Iá, það er jafnvel ekki fortakandi, þótt það sé raun- ar ólíklegt, að í hópi þeirra áheyrenda hefði leynzt ein- hver, sem að vísu vissi lestrarvenjur Kölska, og gerði sér því Ijóst að túlk- un hans á orðinu var ekki annað en lœvísleg, tilgangs- bundin áróðursblekking, en hugsaði sem svo að með því að j' tast henm, mundi sér eflaust nokkur frami bú- inn — Kölski vœri jú valda- mikill, ekki fœri það á milli mála, og vafalaust mundi hann veita ríkulega umbun hverjum þeim, sem gengi í sveit með honum. Og þá mundi sá hinn sami hafa upphaíið raust sína segj- andi: „Þarna heyrið þið hina einu sönnu skilgrein- ingu á hugtakinu „frelsi" — því hugtaki, sem er feg- urra og sannara en nokkuð annað í vitund mannsins. Þama heyrið þið hina réttu túlkun þessa orðs, sem hverjum manni er heilagt, þetta eina orð, sem hann er fús að leggja allt í sölumar fyrir ef í harðbakka slœr. . . Ö, lof sé þeim, sem beita hverskyns kúgun og of- beldi. . . lof sé þeim, sem hneppa menn í fangelsi fyr- ir trú þeirra og skoðanir. . . lof sé þeim, sem taka þá af lífi, sem leggja aðra skoð- un í orðið frelsi. . ." Það er hœtt við, að þá hefði komið undarlegur svipur á gömlu mennina. Að þeir hefðu yppt öx’um með fyrirlitningu og snúið baki við þessum ófyrirleitna náunga, sem vissi betur en hann lét. Og þeir hefðu ekki þurft annars við en að virða fyrir sér brosið á mœrðarfullri ásjónu erki- óvinarins til að sannfœrast hefði komið undarlegur um, að nú var honum skemmt. Aftur á móti er það ekki ólík’.egt, að séra Sœmundur, sem af vizku sinni og lœr- c’ómi sá jafnan lengra en allur almenningur, hefði tal- ið góða og gilda ástœðu til að samhringja kirkjuklukk- unum að Odda. 19

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.