Gisp! - 01.06.1991, Page 27

Gisp! - 01.06.1991, Page 27
 Samkvæmt dagbókarfærslum hins unga og leyni- Iega villutrúarmanns (með tegundaheiti heiðn- innar í hjarta sér) er ýmsum spumingum marg- faldlega ósvarað. Til dæmis og það er óskiljanlegt hvað varð um spegilinn sem síðast sýndi barnið á þessum endurheimtu blaðsíðum. Minn spegill er sameining bankanna; þeir sendu mér glataða bemsku mína sem lá gleymd í bankahólfinu. Og nú er eins og ég heyri suðrænan trompett blása til hinnar sífelldu ogóréttlátu yfirheyrslu. Hvað varð um lillabláa blóma- vasann, dægurlagið sem lá í Ioftinu? Og austur- lenska kokkteilhrist- arann, ógæfuna í h verri fjölskyldu? Var það Frank sem hjakkaði rispaður í gegnum hálfr- ar nætur svefn eða var það Herb og Tijuana Brass með Taste of Honey? Hver var það sem kippti nálinni af og raskaði ró nokkurra einstaklinga sem nauðsyn- Iega þurftu hvíld? Ó Kanaríeyjar, skilningsríku lönd! Þar sem amma fékk afgreiddan eldspýtna- stokk á íslensku. Hvað var það sem raunverulega gerðist! í dularfullri fyllingu tímans mun setjast fólk í sófa máðan af leiðindum skammdegisins og það mun standa upp aftur. Skál af merktum appelsínum verður óhrekjandi tákn um velmegun sem fær ekki staðist. Kemur fegurðin endalaust innan frá, er lyktarskyn hundsins tryggt? Ég er þess fullkomlega minnugur að hafa gengið eftir Rieberbahnen og velt þessu fyrir mér - hvar voru vinir mínir á meðan? Munu uppstöfluð dagblöðin - fimm ár í lífi manns - tapa merkingu sinni frammi fyrir korters sjónvarpsútsendingu í lit? Týnast frændur eða deyja þeir? Er áfengisneysla jóla- haldsins á einhvern hátt tengd mistökum í sálma- kveðskap? Verður svipur barna þinna fullorðins- legri þegar þau kvaka? Er aldrei neitt annað á boðstólum nema bjúgu og karamellubúðingur? Snúður og kaffi? Ætla útlínur hins rjómagula Chevrolets Impala aldrei að þurrkast úr minni manns? Halda skipin stöðugt áfram að fyll- ast af smygluðu áfengi þegar þau líða eftir sjóndeildarhringnum? Og hver er þessi Mad- ame X sem sögð er hafa legið undir þekktustu andlitum síðdegis- pressunnar og gengur svo langt að eiga vin- gott við mann sem fer reglulega í kirkju? Átti ég nokkurt erindi í kirkju? Ekki er ég hingað sendur til að rannsaka smáglæpi prestanna, ég er bara lítið bam sem skortir hugrekki til að kvarta undan sígarettureyknum í stofunni og er gabbað til að taka nokkra sopa af Martini Bianco. Ætlar fólkið aldrei að standa upp úr stólum sínum! Hverju má úða yfir hlandlykt ellinnar? Bragi Ólafsson 27

x

Gisp!

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.