Gisp! - 01.06.1991, Síða 41
Myndasögur
bannaðarí
Bietlandi?
Nýlega var tíðindamaður Gisp! á
f erð í London og leit fyrir siðasakir inn
í myndasagnabúðina Forbidden Pla-
net við New Oxford Street. Þar blaðaði
hannm.a. íTheComicsJoumalograkst
á eftirfarandi klausu (úrdráttur):
„Seint í desember s.l. innkallaði Fleet-
way forlagið í Bretlandi öll eintök af
nýútkominni myndasögu eftir Garth
Ennis sem nefnist „True Faith" („Sönn
trú"). True Faith hafði áður birst sem
framhaldssaga í myndasögublaði Fleet-
way forlagsins„,Crisis". Sagan fjallarum
pípulagningamann sem sakar guð um
dauða konu sinnar og ræðst af offorsi á
kirkjur. Eigandi Fleetway, útgáfurisinn
Robert Maxwell, ákvað að innkalla
bókina eftir áköf og vel skipulögð mót-
mæli evangelísk kristinna trúarhópa. A
blaðamannafundi við það tækifæri sagði
útgáfustjórinn Jon Davidge: „Sagan
reyndist vinsæl og þótti vel heppnuð
sem framhaldssaga í tímariti, en í
bókarformi opnaðist markaður sem var
—
Hasarinn við Hlennn
Kannski hafa myndasögur náð að
skjóta rótum á Islandi. Ný deild í kjallara
Bókabúðar Eymundsson við Hlemm
virðist a.m.k. renna stoðum undir þann
grun því þar er eingöngu að finna
myndasögur, vísindaskáldsögur í kilju-
formi og ýmsa leiki sem flestir þekkja
undir nafninu “Dungeons & Dragons”.
Þessi samsetning er algeng í sérhæfðum
myndasögubúðum erlendis.
Aður hafa verið gerðar tilraunir,
árangurslitlar, með myndasögubúðir
hérlendis (man einhver eftir þeirri sem var
um túna íkjallaranum áLaugavegi?) en þetta
erífyrstaskipti semeinafstómbókabúðunum
sinnir þessu sérstaklega. Gísli Einarsson er
upphafsmaður og innkaupastjóri deildar-
innar. Iviðtah viðGisp! sagðihannaðnæstum
allt sem væri á boðstólum kæmi frá
dreifingaraðilum í Bandaríkjunum, m.a.s.
þau blöð og bækur sem gefnar em út í
Bretlandi. Evrópskar myndasögur berast í
breskum og bandarískum útgáfum en til
stendur að panta þær beint og þá á fmm-
málinu sem í flestum tilfellum er franska.
Alls sagðist Gísli vera með um 200 titla
sem koma út reglulega. Af þeim eiga hasar-
blaðarisamir Marvel og DC nær helming,
100 koma frá svo kölluðum “sjálfstæðum”
útgefendum sem er stór hópUr lítilla útgef-
enda og 15 em japanskar sögur í bandarískri
útgáfu. Það er helst á meðal “sjálfstæðu” út-
gefendanna sem finna má titla er bjóða upp á
annað söguefni og frásagnartækni en ofur-
mennissögumar. Viðþessa200titlaerráðgert
að bæta talsvert á næstunni. Fyrir utan blöðin
fást bækur af ýmsu tagi, t.d. “graphic novels”
(vandaðri og lengri hasarblöð) eftir Frank
Miller, Alan Moore/David Lloyd, Bill
Sienciewicz og Neil Gaiman, svo einhveijir
séu nefndir; bækur með endurprentunum á
gömlum og nýjum dagblaðaseríum (Krazy
Kat, L'il Abner, Cal vin& Hobbes); evrópsku
sögumar (Moebius, Forest); meistari Will
Eisner og gamli sýmhausinn Vaughn Bode.
Eina bók eftir krotarann Ralph Steadman er
að ftnna og nokkrar fræðimannabækur um
myndasöguna. Fagblöð eins og Comics In-
terview og Amazing Heroes em í góðu úr-
vali og einnig sögur eftir Simpson höfúndinn
Matt Groening.
Stóm útgefendumir Marvel og DC seljast
best en Gísli vildi meina að í heild væri salan
jöfn og vaxandi, helst að ýmis konar endur-
prentanir úr dagblöðum ættu erfitt updráttar.
Kaupendum færi fjölgandi og næsta ömggt
að deildin fengi þann tíma sem hún þarf til að
sanna sig en forráðamenn Eymundsson vom
í byrjun tortryggnir á að þessi tilraun gæti
heppnast.
I raun er úrvalið ótrúlega mikið þótt
auðvitað sé hlutur hasarblaðanna og ensku-
mælandi útgefenda of stór miðað við þann
fjölda góðra myndasagna sem geftnn er út í
öðmm löndum. En það er skysamlegt að
byggja á því sem kaupendur hér á landi
þekkja fyrir auk þess sem óneitanlega hefur
verið mikil gróska í bandarískri mynda-
söguútgáfu síðustu árin.
Aðkoma er ágæt en plássley si áberandi og
þörf á þægilegri rekkum fyrir blöðin.
B.H.
viðkvæmari fyrir inrúhaldinu. Öll inn-
kölluð eintök af bókinni voru eyðilögð
og sett í endurvinnslu. Garth Ennis mun
um þessar mundir vera að reyna að fá
útgáfuréttinn framseldan til annars
útgefanda.
í kjölfar „True Faith" uppþotsins
spunnust talsverðar umræður í bresk-
um fjölmiðlum um vanda fullorðins
myndasagna. Tlie Economist dró vand-
ann þannig saman í hnotskum: „Bresk-
ur lögreglumaður veit að ljósmynd af
reistum Iim er bönnuð, en ekki texti
sem lýsir sama fyrirbæri". Fívað þá um
teikningu af Irinu forboðna ásamt texta?
Til að vera alveg öruggir, gera breskir
tollþjónar nú upptækar allar mynda-
sögur sem nálgast „velsæmismörk",
þ.á.m. bækur eftir viðurkennda höfunda
á borð við Robert Crumb og Gilbert
Hemandez.
Þrátt fyrir þessi válegu tíðindi mun
útgáfa fullorðins myndasagna vera að
færast í aukana í Bretlandi. Penguin
hefur t.a.m. í undirbúningi 12 -16 bækur
undir umsjón Art Spiegelman, þess sem
sló í gegn með gyðingasögunni Maus."
Ó.E.
41