Fréttablaðið - 17.02.2021, Side 23
F jár fest var f y rir 228 milljónir dala, jafnvirði 29 milljarða króna, í sprotaf y r ir tækjum á árinu 2020. Til saman-burðar var meðaltal
áranna 2015 til 2019 167 milljónir
dala, jafnvirði 21 milljarðs króna.
Um var að ræða 26 f jármagn-
anir, samanborið við 29 árið 2019.
Þetta leiðir samantekt Nortstacks,
fréttavefs um nýsköpun, í ljós. Hún
horfir ekki til fjármögnunar sem er
minni en 50 milljónir króna. Þess
vegna gæti fjöldi sprotafyrirtækja
sem fékk fjármögnun á árinu verið
meiri.
„Þrátt fyrir að COVID-19 hafi
sett mark sitt á níu mánuði af árinu
2020 streymdu peningar í nýsköp-
un,“ segir Kristinn Árni Lár Hró-
bjartsson, ritstjóri North stacks, í
samtali við Markaðinn.
Hann dregur árið 2020 saman
þegar litið er til f járfestingar í
nýsköpunarfyrirtækjum á þessa
vegu: Mikið fjármagn streymdi í
nýsköpun en það hafi lítið verið
fjárfest í nýjum tækifærum heldur
hafi fénu verið varið í áframhald-
andi uppbyggingu sprotafyrirtækja
sem hafi áður fengið fjármagn. Vísi-
sjóðirnir hérlendis séu meira og
minna fullfjárfestir og hafi því ekki
fjármagn til að leggja í ný fyrirtæki.
„Það væri gott fyrir sprotaumhverf-
ið ef það tekst að safna í tvo sjóði á
þessu ári og tvo sjóði á því næsta,“
segir Kristinn Árni.
Hann segir að erlendir fjárfestar
hafi tekið þátt í um 70 prósentum af
fjármögnunarlotunum. Hlutfallið
var svipað árið 2019, að því er fram
kom í frétt í Markaðnum fyrir ári.
Ef horft er fram hjá einstaka fjár-
mögnun sem er yfir 30 milljónum
dala, jafnvirði 3,9 milljarða króna,
sem bjaga samanburð, má sjá að
umfang fjármögnunar sprota fer
vaxandi: Fjárfestingin nam 57
milljónum dala árið 2016, 35 millj-
ónum dala árið 2017, 84 milljónum
dala árið 2019 og 223 milljónum
dala í fyrra. Það var því slegið met
þegar litið er til fjármögnunarlota
sprotafyrirtækja sem eru minna en
30 milljónir dala.
Árið 2019 var fjárfest í sprotum
fyrir 84 milljónir dala, eða 62
prósentum minna en árið 2020.
Munurinn helgast, að sögn Krist-
ins Árna, af því að mun fleiri stórar
fjármagnanir hafi verið í fyrra og
mun færri litlar fjármagnanir.
Hann segir að met hafi verið
slegið í fjölda fjármögnunar sem
hafi verið á bilinu 10 til 30 milljón-
ir dala, 1,3 til 3,9 milljarðar króna.
Þær voru átta talsins. Flokka megi
þær sem vaxtarfjármögnun, það
er að fjármagnið sé nýtt til að
knýja áfram umtalsverðan vöxt
til dæmis með því að ráða f leira
starfsfólk.
Kristinn Árni bendir á að á
undanförnum tveimur til þremur
árum hafi nokkur fjöldi fyrirtækja
fengið minni fjármögnun. Hluti
þeirra hafi verið kominn á þann
stað í fyrra að þau geti sótt stóra
fjármögnun. Það gæti skýrt hvers
vegna met hafi verið slegið í fjár-
mögnunum sem liggja á bilinu 10
til 30 milljónir dala.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Búum í haginn
fyrir atvinnulíf
framtíðarinnar
arionbanki.is
Traustur fyrirtækjarekstur og öflug
nýsköpun kallar á samstarfsaðila sem
skilur þarfirnar.
Arion banki býður fyrirtækjum af öllum
stærðum og í öllum geirum alhliða
þjónustu með fagmennsku, innsæi
og þekkingu að leiðarljósi.
Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is,
við þjónustuver í síma 444 7000 eða í
netspjalli á arionbanki.is.
GRILLAÐUR – PÖNNUSTEIKTUR – OFNBAKAÐUR
Borinn fram með fersku salati, smælki, og citrus beurre blanc.
APOTEK Kitchen + Bar Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
FEBRÚAR TILBOÐ
1.990 kr. á mann
FRÁBÆR Í HÁDEGINU
FISKIVEISLA
3 tegundir af ferskasta fiski dagsins
29 milljarðar
streymdu í
nýsköpun
Mikið fé streymdi í áframhaldandi uppbyggingu
sprotafyrirtækja. Lítið var fjárfest í nýjum tæki-
færum en vísisjóðir eru mikið til fullfjárfestir.
300
250
200
150
100
50
0
2015 2016 2017 2018 2019 2020
Heimild: Northstack
✿ Fjármögnun sprota
Milljónir dala
MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 1