Fjarðarfréttir - 07.04.1969, Blaðsíða 5
Fjarðarfréttir
5
UM IÞROTTIR
Handknattleikur:
F.H.-ingar hafa tryggt sér
íslandsmeistaratitilinn 1969
Verða Haukar númer tvö?
Örn Hallsteinsson er einn af máttarstólpum F.H.-liðsins. — Ljósm. Kr. Ben.
F.H. SIGURVEGARI
Þegar F.H.-ingar unnu lið Vals
á dögunum, tryggðu þeir sér sigur-
inn í I. deildarkeppni Islandsmóts-
ins 1969, þrátt fyrir það, að liðið á
eftir að leika tvo leiki í mótinu.
Úrslit þeirra skipta ekki máli, sig-
urlaunin, hinn eftirsótti bikar,, flytzt
til Hafnarfjarðar innan skamms, a.
m. k. til ársdvalar.
Það eru flestir sammála um að
F.H. sé ekki aðeins bezta félagslið-
ið á íslandi í dag, heldur hafi liðið
á að skipa nokkrum sterkustu hand-
knattleiksmönnum landsins. A bak
við velgengni liðsins standa leik-
menn, sem myndu sóma sér vel í
hvaða handknattleiksliði sem er í
heiminum. Nægir í því sambandi
að nefna Geir Hallsteinsson, Hjalta
Einarsson og Orn Hallsteinsson.
Margir hafa talað um að F.H.-
liðið byggist upp á örfáum einstak-
lingum, aðrir leikmenn séu eins
konar „stadistar'. En þeir, sem bet-
íslenzk knattspyrnuforysta og ís-
lenzkir knattspyrnumenn hafa í
vetur sýnt, að þrátt fyrir stopult
tíðarfar er hægt að stunda hér
knattspyrnuíþróttina mestan hluta
ársins. I Hafnarfirði er knattspyrna
iðkuð á vegum Knattspyrnufélags-
ins Hauka og Fimleikafélags Hafn-
arfjarðar.
Til þess að fá upplýsingar um
hver áhrif framtakssemi stjórnar
K.S.I. hefur haft á hafnfirzka knatt-
spyrnumenn höfðum við samband
við formenn knattspyrnudeilda fé-
laganna hér.
Jóhann Larsen, formaður knatt-
spyrnudeildar Hauka, kvað knatt-
spyrnuáhugann hjá sínum félags-
mönnum mun meiri nú en oft áður,
sérstaklega hjá hinum yngri. Allir
ur þekkja til, eru alls ekki á sama
máli. I F.H.-liðinu eru margir af
sterkustu varnarleikmönnum lands-
ins, svo sem Auðunn Óskarsson,
Birgir Björnsson og Einar Sigurðs-
son. Enn fremur hafa menn nú í
tveimur síðustu leikjum fengið að
sjá nýja stórskyttu, Þorvald Karls-
son, sem hefur þann kost að vera
örvhentur. Slíkur maður er nauð-
synlegur hverju toppliði og F.H.
væntir mikils af Þorvaldi. Ekki
þurfa F.H.-ingar að kvíða framtíð-
inni, því að í yngri flokkum félags-
ins eru margir efnilegir hadnknatt-
leiksmenn, m. a. lék ungur F.H.-
ingur, Jónas Magnússon, með liði
Islands í Norðurlandakeppni ung-
linga fyrir skömmu.
KEPPNIN UM ANNAÐ SÆTIÐ
Þó að F.H. hafi nú þegar tryggt
sér sigurinn í Islandsmótinu, þá er
ekki hægt að segja að öll spenna sé
búin í mótinu. Fallbaráttan er hörð,
flokkar félagsins æfa reglulega og
kvað Jóhann Haukamenn bjartsýna
og ákveðna 1 að koma sterkir til
leiks á komandi sumri. Þjálfari
meistaraflokks og 2. flokks í sumar
verður Viðar Símonarson. Þjálfari
3. og 4. flokks er hinn gamalkunni
knattspyrnumaður Bergur Bergs-
son, en 5. fl. þjálfar Jakob J. Möller.
Ingvar Viktorsson, formaður
knattspymudeildar F.H., var einn-
ig bjartsýnn á frammistöðuna í
sumar. Reglulegar æfingar hófust
hjá F.H. um áramótin og nú æfa
allir flokkar félagsins af kappi.
Enginn þjálfari hefur enn verið ráð-
inn fyrir meistaraflokk og 2. flokk,
en 3., 4. og 5. flokk þjálfar Kjartan
Elíasson. — Taldi Ingvar yngri
flokka félagsins mjög sterka, eink-
um 3. flokkinn, sem hefur staðið
sig mjög vel í æfingaleikjum að
undanförnu.
og um annað sætið verður barizt
af hörku. Þótt undarlegt megi virð-
ast er það annað Hafnarfjarðarlið,
Haukar, sem þar á í höggi við
Islandsmeistarana frá fyrra ári,
Fram. Haukar eiga mjög góðu og
skemmtilegu liði á að skipa, en
hafa átt við ýmsa erfiðleika að etja
í vetur. Helzti kosturinn við Hauka-
liðið er sá, að í því eru einstakling-
ar, sem eru mjög jafnir að getu. Þó
er ekki hægt að ganga fram hjá
þeirri staðreynd, að einn af leik-
mönnum Hauka ber af hinum. Það
er hinn eldsnöggi og skemmtilegi
leikmaður Stefán Jónsson.
Engu er hægt að spá um úrslit
baráttunnar um annað sætið, en
Haukar eiga eftir að leika við erf-
iðustu andstæðingana, F.H. og
Fram.
Staðan í I. deild er nú þessi (öll
liðin hafa leikið 8 leiki):
1. F.H., sem hefur hlotið 16 stig.
2. Haukar, sem hafa hlotið 10 stig.
3. Fram, sem hefur hlotið 9 stig.
4. Valur, sem hefur hlotið 6 stig.
5. Í.R., sem hefur hlotið 4 stig.
6. K.R., sem hefur hlotið 3 stig.
Af þessu má sjá, að í handknatt-
leik eiga Hafnfirðingar mjög góð-
um liðum á að skipa, og er árangur
þeirra þeim mun glæsilegri, þegar
það er haft í huga, að í Hafnarfirði
er ekki til neitt húsnæði til að leika
eða æfa þessa íþrótt í.
riiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
1 Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra póska
! með þökk fyrir viðskiptin
Hrnunver
= Álfaskeiði 115 - Sími 52690.
llllllllllllllllllllllllllllllllllMllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltll
Knattspyrna:
Hafnfirzkir knattspyrnumenn
stórhuga
-IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII-