Fjarðarfréttir - 07.04.1969, Page 6
6
Fjarðarfréttir
- 105 kallar stöðina
(Framhald af bls. 8)
að málning er bannorð, það er eins
og veggirnir blygðist sín fyrir út-
litið. Okkur léttir, er við yfirgefum
fangaklefana.
• KAFFISTOFA
Næst komum við í kaffistofu lög-
regluþjónanna. I þessu herbergi,
sem er um það bil 7 m2, var rann-
sóknarlögreglan til húsa. Þegar
skrifstofur bæjarfógeta fluttu í hið
glæsilega húsnæði sitt, sem gjör-
breytt hefur allri starfsaðstöðu
embættisins, fékk rannsóknarlög-
reglan sæmilega aðstöðu annars
staðar í húsinu. Rættist þá loksins
langþráður draumur lögreglu-
mannanna í Hafnarfirði. Þeir fengu
þetta litla herbergi fyrir kaffistofu.
Settur var upp lítill vaskur og skáp-
ur, en þeir urðu þó að mála „stof-
una“ sjálfir.
• TALSTÖÐIN
Við heyrum óm af samtali og
skundum inn á varðstofuna. Eitt af
mikilvægustu tækjum við nútíma
löggæzlu er talstöðin, og hún er
mikið notuð hér. Umdæmi lögregl-
unnar í Hafnarfirði nær allt frá
Reykjanestá að Rotnsá í Hvalfirði.
Ætla má að lögreglustöðin geti
haft samband við lögreglubíl hvar
sem er á þessu svæði, en það er nú
öðru nær. Dæmi eru til þess að
lögreglan hefur orðið að leita til
leigubílstjóra til þess að flytja skila-
boð til lögreglustöðvarinnar.
Þegar komið er suður fyrir Kúa-
gerði má heita að sambandslaust
sé við lögreglubíl, sem þar er á
ferð. Ef árekstur verður í Mosfells-
sveit eða á Kjalarnesi rofna tengslin
milli lögreglubíls og stöðvarinnar
um það leyti sem farið er yfir Ell-
iðaárnar. En leigubílstjórar í Hafn-
arfirði geta með góðu móti talað
við „kollega" sína á Kjalarnesi og í
Keflavík. Hvers á Lögregla Hafn-
arfjarðar og íbúar umdæmisins að
gjalda?
• 500.000 KM
Bílar Hafnarfjarðarlögreglunnar
eru kafli út af fyrir sig. Þeir eru
tveir, annar af árgerð 1966 og í
sæmilegu lagi, en hinn af árgerð
1964 og má heita ónýtur, enda hef-
ur honum verið ekið yfir 500.000
km, og það að mestu á götum
Hafnarfjarðar.
Heimsókn okkar er senn lokið.
Við ætlum ekki að fara mörgum
orðum um atriði eins og þau, að
allar skýrslur lögreglunnar eru
skrifaðar á aflóga ritvélar frá skrif-
stofu bæjarfógeta og hvergi fæst
aðstaða fyrir lögregluþjóna, til að
halda við þeirri líkamlegu þjálfun,
sem hverjum lögreglumanni er
nauðsynleg.
Eðlilegt er, að fyrir hverja 500
íbúa í þéttbýli starfi einn lögreglu-
þjónn, og ættu samkvæmt því að
vera 18 lögregluþjónar í Hafnar-
firði einum, fyrir utan þá, sem ráðn-
ir eru á vegum Garðahrepps og
sýslunnar. Mikil bót var að stofn-
un rannsóknarlögregluembættis hér
í bæ, og hefur það komið skýrt í
ljós, hvað bætt starfsaðstaða má
sín mikils, en þó þyrfti að fjölga
þar um a. m. k. einn mann, ef vel
ætti að vera.
• NÝ LÖGREGLUSTÖÐ
Hver hugsandi maður, sem kynn-
,ir sér starfsaðstöðu lögreglunnar,
hlýtur að sjá, að hún er bæjarfélag-
inu og sýslunni ekki til sæmdar.
Margt má lagfæra nú þegar, en
auðvitað er framtíðarlausn þessara
mála aðeins ein, nýtt og veglegt
húsnæði fyrir löggæzluna. Nú þeg-
ar er tímabært að skipa nefnd til
að undirbúa byggingu slíks húss.
Við Hafnfirðingur eigum góðu
lögregluliði á að skipa. Starf þeirra
er erilsamt og oft hættulegt. Lág-
markskrafa þeirra til bæjarfélags-
ins er mannsæmandi starfsaðstaða.
Vafalaust mun okkar ágæti bæjar-
fógeti beita sér fyrir umbótum á
þessu sviði, og mun þá væntanlega
ekki standa á öðrum, sem til þarf
að leita vegna lausnar þessa máls.
EFLUM HAFNFIRZK
VIÐSKIPTI
EFLUM OKKAR EIGIN
^ LÁNASTOFNUN
lr=il SPAREJÓaUR
HAFNARFJAROAR
1^1111111 I ■■■■■■ !■■■ ■!!■!!■• !I!!llllllllllllliri!lllllllll!lllllll!llllllllllll!lllllllllllll:ll!IIIIIIlllllllllll!lllllllllllllllllllll'll>Mlllll!llili!l!ll ■ ■ ■■■■■■■■ 1 ■ 11■ 11■ 11■ I!■ 11 ■ 11■ 11■ 11■!!■ 11111 ■ 11IIIIII■ 11■ 11■ 11II!■■!II1111111■ H■!■■ ■ I■ I llll llllllllllllllIII■■■ I■!HM1
Sími 51666
Hafnfirðingar!
Garðhreppingar!
Reykvíkingar!
Opid ollon
NÆG BÍLASTÆÐI
Bílastöð Hafnarfjarðar
- Reykjavíkurvegi 58
I Sími 51666 Sími 51666
•f-
NÆTURSALAN
er hjá okkur. — Þar getið þið fengið ykkur
SAMLOKUR - PYLSUR - ÖL - GOSDRYKKI
SÆLGÆTI eða TÓBAK
því að Bílastöð Hafnarfjarðar hefur það sem yður vantar.
A-
Sími 51666
Bílastöð Hafnarfjarðar
veitir sömu fullkomnu þjónustuna allan sólarhringinn
Við höfum talstöðvarbíla um allan bœ
iiiiii
-iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii