Nýtt land-frjáls þjóð - 21.05.1971, Blaðsíða 2
2
NÝTT LAND
>
—
Framsóknarprinsinn
nr föður síns, skal ósagt lát-
ið.
Engum -dettur auSvitað í
hug, að hann hafi ekið um
kjördæmið. á ríkisstyrktum
bíl.
Vestfirðingar eru kunnir að
því að vilja bjarga sér sjálfir
og misnota ekki aðstöðu, sem
þeir kynnu að hafa, sér til
framdráttar á óheiðarlegan
hátt, og þeir myndu ekki kæra
sig um þingmann, sem gerði
sig sekan um slíkt.
Mönnum kemur því ákaf-
lega á óvart lesning, sem
stendur í 110. tbl. Morgun-
blaðsins þ. 12. þ. m. eftir dr.
Þorstein Sæmundsson, sem
nýtur mjög mikils álits og
engum dettur í hug, að fari
með fleipur.
Allir vita, að dr. Þorsteinn
er ekki með aðfinnslur við
Steingrím af pólitískum
ástæðum, en vill viðhafa heið
arleg vinnubrögð, sem sé þau,
að fjárreiður opinberra stofn-
ana séu ekki einkamál eða
leyndarmál forstjóra þeirra
og telur sig brjóta þann trún-
að er honum er sýndur, sem
rannsóknarráðsmanni, með
því að þegja yfir þeirri leynd,
er þarna er á ferðum.
Það verður að gera kröfu til
aHra forstjóra opinberra stofn
ana að reikningar þeirra séu
öllum til sýnis, en hér mun
nokkuð hafa á skort.
Virðist hlutur ráðherra,
Gylfa Þ. Gislasonar heldur
bágborinn í þessu máli og
verður að krefjast þess af
honum, að hann ljúki ekki
ráðherradómi sínum sem
hilmári yfir hugsanlegum
mistökum eða misnotkun á
opinberu fé.
Allsstaðar annarsstaðar en
á íslandi og ef til viil í Suður-
Ameríku og í hinni svörtu
Afríku myndi forstjóri opin-
bers fyrirtækis, sem einnig
hefði óskoruð yfirráð yfir svo
hárri upphæð, verða að víkja,
meðan rannsókn færi fram.
En hér virðist ráðherra hafa
til hneigingu til að koma í veg
fyrir rannsókn og af hverju,
ef allt er með felldu?
Er hér ekki komið eitt dæm
ið enn um samábyrgð stjórn-
málamannanna og gömlu
flokkanna, sem hafa eins-
konar ósýnilegt trygginga-
kerfi, þar sem þeir vernda
hvern annan, jafnvel þótt
pólitískir andstæðingar séu.
En meðal annarra orða.
Tómas Karlsson, ritstjóri
tímans hefir verið manna
skeleggastur að gagnrýna
hverskonar misferli og vangá
með opinbert fé.
Hvað segir hann nú í Tím-
anum? Það verður gaman að
sjá. Nýtt land þekkir ekki
svo þetta mál, að það vilji full
yrða neitt, en krefst þess, að
málið verði tekið föstum tök-
um af réttum aðilum. Vest-
firðingar ætlast líka til þess
að væntanlegur þingmaður
TILBOÐ
Tilboð óskast í 2 bogaskemmur, 10,0 m x 27,60 m
að stærð hvor. Skemmurnar eru niðurteknar og eru
til sýnis á lóð við Kleppsveg, austan við hús Eggerts
Kristjánssonar hf.
Tilboð óskast í skemmurríar í núverandi ástandi.
Heimilt er að bjóða í hvora um sig eða báðar
saman.
Nánari upplýsingar eru veittar í skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 21.
maí n.k. kl. 11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
þeirra verði hreinsaður af öll-
um grun í þessu máli — fyrir
kosningar, annars munu þeir
heldur kjósa að fá Halldór á
Kirkjubóli á þing.
ALÍSLENZK
STÓRIÐJA
7. maí s.l. boðaði stjórn fyr-
irtækisins Stálfélagið h.f.
blaðamenn á sinn fund að
Hótel Esju.
Formaður stjórnar, Svein-
björn Jónsson og fram-
kvæmdastj óri fyrirtækisins,
Haukur Sævaldsson, kynntu
fyrirtækið, en það var stofn-
að á síðastliðnU hausti og er
fyrirhugað, að það annist
alla brotajárnsvinnslu í land-
inu, þegar fram í sækir.
Reynt verður að hefja bygg
ingaframkvæmdir fljótlega
eftir næstu áramót og er áætl
að, að verksmiðjan geti tekið
til starfa sumarið 1973.
Staðseting verksmiðjunnar
hefur enn ekki verið ákveð-
in, en rætt hefur verið um
að staðsetja hana rétt við ál-
verksmiðj una í Straumsvík
og hafa fengizt góðar undir-
tektir hjá yfirvöldum í Hafn-
arfirði.
Starfslið verksmiðj unnar
mun telja um 60 manns og er
fyrirhugað að Stálfélagið
framleiði steypustyrktarjám
úr þvi, svo og úr innfluttu
hráefni, bæði til innanlands-
nota og til útflutnings.
Stofnkostnaður fyrirtækis-
ins er áætlaður 410 milljónir.
Væntanlega mun verulegur
gjaldeyrissparnaður hljótast
af rekstri fyrirtækisins og er
hér því á ferðinni hið mesta
þjóðþrifafyrirtæki og væri
æskilegt, að sem flestir gerð-
ust hluthafar til að styrkja
þessa nýju stóriðju á íslandi,
enda vonast stjórnendur Stál
félagsins h.f. til þess að hér
verði um að ræða alíslenzkt
fyrirtæki.
I BRIDGESTONE
BEZTU
DEKKIN Á
MARKAÐNUM
FLESTAR STÆRÐIR
OG GERÐIR ÁVALLT
FYRIRLIGGJANDI
mmmmwm eoamn
* *
FLUGFÉLAG ÍSLWDS
Jlfsláttarfargjöld innanlands
Samkvæmt ákveðnum reglum er fjöl-
skyldum, sem hefja ferð sína saman,
veittur afsláttur þannig að fjölskyldu-
faðir greiðir fullt fargjald, en aðrir í fjöl-
skyldunni hálft fargjald.
Fólki 67 ára og eldra er veittur afsláttur
af fargjaldi innanlands gegn framvís-
un nafnskírteinis.
Námsfólki er veittur 25% afsláttur af
fargjaldi á skólatímabili, gegn yfirlýs-
ingu frá skóla, á ferðum milli skóla og
, lögheimilis.
Unglingum á aldrinum 12—18 ára er
veittur 25% afsláttur af fargjaldi gegn
framvísun nafnskírteinis.
Hópum 10—15 manna og stærri,
veittur 10%—-20% afsláttur.
Skrifstofur flugfélagsins og
umboðsmenn um land aH* veita
nánari upplýsingar og fyrirgreiðslu.