Börn og menning - 01.09.2004, Blaðsíða 28

Börn og menning - 01.09.2004, Blaðsíða 28
26 Börn og menning JU, J<J, 66 (>EKKTÍ N3AL. A B6R6BÓRSHV0U 06 ££ VAR SKOTIN í ÓUNMARÍ Á HLÍÐAtfNPA, t>ÓTT ÖTVKTÍN HÖN HALL66RÐOR KRÆKTI í HaNM .... B1A....BIA.... 3Á éS- HEF LiFAfJ MARðAN MANNÍNN , BLA... BLA... BLA... ÉA KANNAíisr LÍKA VÍP ÚTÍLBSUHÍÓNÍAJ, KJALlA-EYVÍNP oe- HöllU... þAu voeu rAonaR dálÍtí© Uk ytcKoe..... ævíntVrafólk eiA _ BlA.... BlA, BLA....£6- VEir HVER. SKRiFA6>i N3ÁUJ .... HA-P LEyNÞÓ..... BLA....BLA.. ,.0lA... Eins og í sögu, 1981 stráka og stelpur og ég passa mig að hafa persónurnar af báðum kynjum. Svo finnst mér líka mikilvægt að hinum fullorðnu leiðist ekki þegar þeir lesa fyrir krakkana. Maður hefur nú oft lent í því að þurfa að lesa hundleiðinlega bók aftur og aftur. Það er ekki sérlega gefandi. Ég reyni því að skemmta fullorðna fólkinu líka, t.d. með vísunum sem börnin skilja ekki endilega, en það gerir heldur ekkert til - það kemur seinna. Boðskapur Ég er aldrei með neinn boðskap í huga, ef hann leynist þarna þá hefur hann laumað sér inn sjálfur. Það var ekki fyrr en ég hafði skrifað allmargar bækur að ég tók eftir að í ótrúlega mörgum þeirra eru persónurnar annars vegar krakkar og hins vegar gamalt fólk. Ég held þetta sé af því að það er einhvern veginn auðveldara og jafnframt fyndnara að láta gamla fólkið gera ýmislegt sem foreldrar geta síður leyft sér að gera. Foreldrakynslóðin er frekar svona óspennandi. Harpa kemur til sögunnar í Kynlegur Kvistur á grænni grein 1997. Hún er ásamt Hróa aðalpersónan í Drekastöppunni og Draugasúpunni. Hún er þeldökkur íslendingur. Það er ekki minnst neitt á það í textanum heldur einungis í myndunum. Mér fannst þetta bara sjálfsagt og óþarfi að segja neitt um það, við búum í fjölmenningarlegu samfélagi. Margir hafa haft orð á því við mig að þetta hafi verið ansi sniðugt en auðvitað er þetta bara fullkomlega eðlilegt. Bækur Ég les heilmikið, allt mögulegt en helst skáldsögur, er reyndar lítið fyrir ævisögur enn sem komið er... Ég les spennandi krimma af og til og auk þess ýmiss konar skáldsögur. Hef upp á síðkastið verið að lesa Paul Auster og líka Siri Hustvedt sem er víst eiginkona hans. Þau eru hvort öðru betra finnst mér. lan McEwan finnst mér líka frábær og margir fleiri auðvitað. Ég les dálítið af barnabókum en þyrfti kannski að gera meira af því. Ég hef lesið held ég tvær af Harry Potter bókunum, eina um Molly Moon og svo hef ég lesið bækurnar eftir Pullman sem eru alveg einstakar og ekkert síður fyrir fullorðna. Þegarég fertil útlanda ferég alltaf beinustu leið í barnabókabúðirnar, kaupi mér gjarnan Bétveir les og les. Hann les margar bækur og er eldfljótur með hverja. Ljósin á þreifurunum blikka öðru hverju og á sjónvarpsskerminum á maganum á honum eru alls konar Knur á hreyfingu. Öðru hverju hleypur hann inn með bókabunkann og kemur jafnskjótt út með annan. Og les og les. Bétveir, 1986

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.