Börn og menning - 01.09.2004, Side 29
Leysti þetta ( eitt skipti fyrir öll með skótauið
27
eitthvað og skoða myndskreytingarnar. Ég
held það hafi frekar aukist í seinni tíð að ég
lesi barnabækur.
Barnabókaumhverfið
Mér finnst heilmikil samheldni núna á meðal
þeirra sem eru að vinna við barnabækur,
aðallega gegnum Síung. Fólk veit meira
hvert af öðru, hittist og ber saman bækur
slnar í eiginlegri og óeiginlegri merkingu.
Þetta finnst mér mjög fínt þó ég hafi
reyndar sjálf aldrei verið félagslega flink.
Mér er þó smá að fara fram með aldrinum.
Ég hef alltaf verið heppin með útgefendur.
í rauninni hef ég aldrei þurft að berjast fyrir
að koma mínu fram, það hefur allt gengið
Ijúflega. Flandritunum mínum hefur aldrei
verið hafnað og ég hef fengið að hafa
bækurnar í lit. Það var auðvitað áhættusamt
í fyrstu en núna hefur prenttæknin orðið
þess valdandi að áhætta útgefandans hefur
minnkað. Það eina sem ég gæti verið óhress
með er að illa gengur að koma bókunum
mínum út í öðrum löndum. Ótrúlegt hvað
þeir missa af miklu þessir útlendingar!
Einkenni...
Sögurnar byrja oftast bratt hjá mér, án
mikils inngangs og kynningar. Ég veit að
það skiptir miklu máli að fanga athygli
lesandans strax og man eftir því sjálf hvað
það gat verið leiðinlegt að byrja á bók sem
hófst á miklum málalengingum.
í Týndu augunum og Frosnu tánum
tók ég spennandi kafla út úr miðri sögu
og skellti honum fremst. Maður dettur
inn f miðja bók og veit varla hvaðan á
mann stendur veðrið. Svo skýrast málin
og eftir nokkurn lestur kemur aftur að
sama kaflanum, sem nú er á réttum stað í
sögunni. Frosnu tærnar, nýjasta bókin mín,
kom út núna í haust og er framhald af
Týndu augunum.
Bækur eftir Sigrúnu Eldjárn
Allt í plati 1980
Eins og í sögu 1981
Gleymérei, Ijóðskreytt af Þórarni Eldjárn 1981
Langafi drullumallar 1983
Langafi prakkari 1984
Bétveir 1986
Kuggur og fleiri fyrirbæri 1987
Kuggur til sjávar og sveita 1988
Kuggur, Mosi og mæðgurnar 1989
Axlabönd og bláberjasaft 1990
Stjörnustrákur, bók og jóladagatal Sjónvarpsins 1991
Sól skín á krakka 1992
Beinagrindin 1993
Stafrófskver, Ijóðskreytt af Þórarni Eldjárn 1993
Syngjandi Beinagrind 1994
Talnakver, Ijóðskreytt af Þórarni Eldjárn 1994
Skordýraþjónusta Málfríðar 1995
Beinagrind með gúmmíhanska 1996
Gleymmérei (endurbætt) 1996
Kynlegur kvistur á grænni grein 1997
Teitur tímaflakkari 1998
Málfríður og tölvuskrímslið 1998
Teitur í heimi gulu dýranna 1999
Drekastappan 2000
Geimeðlueggin, saga um Teit tímaflakkara 2001
Draugasúpan 2002
Týndu augun 2003
Frosnu tærnar 2004
... og vörumerki
Já, ég er í strigaskóm núna en ég er það
alls ekki alltaf. Margir hafa tekið eftir því
að allar persónur bókanna minna eru líka í
svona skóm. Ég leysti þetta bara í eitt skipti
fyrir öll og nú má segja að strigaskórnir séu
orðnir vörumerki á mínu fólki.
50 ára!
Mér finnst frábært að vera orðin fimmtug.
Ég tók einfaldlega þá stefnu að láta mér
finnast það fínt og segja öllum að þetta væri
þvílíkur munur. Loksins orðin fimmtug. Nei,
mér fannst ekkert erfitt við að eldast því inn
við beinið er ég alltaf sama smábarnið.
Guðlaug Richter