Reginn - 17.05.1938, Page 2
2
R E G I K N
helgidómum Reglunnar, er þeir
hafa náð efsfu stigum hennar.
Strax árið 1853 voru stofnsettar
og starfándi 100 stúkur. Samdi þá
læknirinn og háskólakennarinn
D. W. Bristol stjórnarskrá fyrir
Regluna og siðbók. Árið 1867, eft-
ir 15 ára baráttu, voru starfandi í
Ameríku 4432 stúkur og var með-
limatala þeirra um 300.000. Ári
síðar, eða 1868 var fyrsta stúkan
stofnuð hér í álfu. Stúka þessi var
stofnuð í Englandi af Joseph Malins
og ekki leið á löngu áður Reglan
væri útbreidd orðin um þvert og
endilangt Stórbretaland og þaðan
barst hún til annara landa álf-
unnar.
Árið 1876 klofnaðí Reglan í tvennt.
Var sú orsök til þess, að margir
Good-Templarar vildu ekki leyfa
svertingjum upptöku í Regluna. En
hinn flokkurinn var engu minni, er
hélt því fast fram, að bræðralags-
hugsjónir Reglunnar væru brotnar,
ef sliku ætti fram að fara. Fylgdi
þessum flokki stórmikill meirihluti
Norðurálfu-Templara og var Malins,
sá er fyr var nefndur, foringi þeirra,
enda voru þeir kallaðir Malins-
menn. Höfðu þeir jafnrétti allra
þjóðflokka til upptöku í Regluna
efst á sinni stefnuskrá.
Andstöðuflokknum stýrði Ameríku-
maðurinn Hickmann liðsforingi.
Hélt sá flokkur íast við það, að
ekki væri svertingium leyfð upp-
taka í stúkur hviíra manna, en
styrktir voru þeir eftir föngum að
stofna sérstakar svertingjastúkur.
Þetta stríð, um réttindi svertingj-
anna, varð til þess, að veikja svo
Regluna í Ameríku, að fádæmum
sættí, fór svo, að fullur 5|6 hluti
Templara þar sagði sig undan
merkjum Reglunnar, meðan barátt-
an stóð yfir. En eftir 10 ár létu
Ameríkumenn undan síga og
beygðu sig fyrir ákvæðum Evrópu-
Templara, sem þá voru orðnir
margfalt liðsterkari, því Reglan
hafði að sama skapi blómgast og
dafnað í Evrópu sem henni hafði
hnignað í Ameríku. Eins og fyr
segir voru Templarar orðnir 735.000
árið 1876 — eftir 25 ára starf. —
En við ósamlyndið út af svert-
ingjunum lá við sjálft að allt kæm-
ist á ringulreið. Árið 1911 voru
ekki eftir nema 55.000 af öllum
skaranum í Ameríku. En þá voru
lika Templarar í Evrópu orðnir yfir
580.000. Það gerði gæfumuninn.
Til Danmerkur fluttist Reglan
árið 1880. Þar greindist hún síðar
í fleiri flokka vegna þess, að sumir
meðlimir Reglunnar vildu fá að
neyta bindindisöls. Allar þessar
Reglur starfa þó eftir grundvallar-
atriðum I, O. G. T.
í Noregi var fyrsta stúka I.O. G. T.
stofnuð árið 1877 og hefir Reglan
haft þar mikinn viðgang.
í Svíþjóð var fyrsta stúkan stofn-
uð árið 1879 af prestinum O. Berg-
ström. Þar er félagatalan nú 125
þús. í 2032 undirstúkum og 65.555
í 1340 barnastúkum, eða samtals
190.555 meðlimir i 3372 st. Sænska
stórstúkan er langsamlega öflug-
asta stórstúkan innan I. O. G. T.
í Finnlandi erfyrstaGood-TempI-
arastúkan stofnuð árið 1914. Regl-
an starfar þar í tveimur stórstúk-
um, finnsku- og sænskumælandi.
Sænska stórstúkan telur 2168 fé-
laga í 25 undirstúkum, innan henn-
ar starfa engar barnastúkur. Finnska
stórstúkan telur 1677 félaga í barna-
og undirstúkum.
Innan I. O. G. T. í Bandaríkj-
unum eru nú alls rúmlega 10 þús.
félagar í 289 stúkum.
Á Bretlandseyjum telur Reglan
alls 90.522 félaga í barna- og und-
irstúkum. —
Hin fyrsta stúka á íslandi var
stofnuð á Akureyri 10. jan. árið
1884 af Norðmanninum Ole Lied.
Hlaut sú stúka nafnið ísafold.
Stofnendur voru 12 og var þriðj-
ungur stofnendanna Norðmenn.
Þaðan breiddist svo Reglan út og
í ágústmánuði 1885 eru stúkurnar
þegar orðnar 10 á landinu. Fyrsta
stúka í Reykjavík, st. Verðandi,
var stofnuð árið 1885, af Birni
Pálssyni, en Stórstúka íslands var
stofnuð í Reykjavík í júní 1886.
í Siglufirði var st. Framsókú
stofnuð árið 1898, að tilhlutun st.
Gleym mér ei á Sauðárkrók. Mun
saga Reglunnar hér í Siglufirði
verða að nokkru rakin síðar hér í
blaðinu, ef tækifæri gefst.
Að undanskildum byrjunarárun-
um mun Reglan hér á landi hafa
haft fæsta meðlimi árið 1918. Þá
voru í Reglunni 1443 félagar í 28
undirstúkum og 1127 börn í 19
barnastúkum. Hæst komst félaga-
talan árið 1928. Þá voru í Regl-
unni 6749 félagar í 81 undirstúku
og 4625 börn í 52 barnastúkum.
Félagar í Reglunni nú, hér á
landi, munu vera nálægt 3900 í
undirstúkum og 3700 i barnastúk
Amatöralbum
8 teg., verð 1.00
tíl 6.25 nýkomin.
Hannes 3ónasson.
um. Á síðastliðnu stórstúkuári óx
félagatalan um 500 manns og á
stórstúkuárinu, sem nú er að enda,
má búast við að fjölgunin verði
um 600.
Það má því segja að Reglan sé
í hröðum vexti nú, og er vel að
svo er. Hver hugsandi maður hlýt-
ur að sjá og finna til þess hvílík
hörmung það er og ógæfa, fyrir
hina íslenzku þjóð, að fleygja milj-
ónum króna á miljónir ofan fyrir
það eitt, sem veikir þjóðina og
spillir henni fjárhagslega, andlega
og líkamlega. Hér þarf eigi að-
eins viðnám heldur og öfluga sókn
á hendur þeim skæðasta fjanda,
af öllum þeim mörgu, sem hafa
ofsótt þjóð vora, kúgað hana og
kvalið. En til þessa þarf öflugt
átak, mikla krafta og sterkan vilja.
Vér eigum þetta hvortveggja til,
íslendingar, vér höfum oft sýnt
það áður. Beinum nú atorku okk-
ar að útrýmingu áfengisins. Það
er göfugt hlutverk.
H. J.
Fermingarbörn
22. maí.
Drengir:
Aðalbjörn G. Þorsteinsson Hverfisg.
Ásgrímur Helgason Ránarg. 16.
Ástvaldur Kristinsson Norðurg. 23
Barði G. Ágústsson Lindarg. 14.
Björn Fr. Björnsson Aðalg. 8.
Daníel Heigason Hverfisg.
Einar Á. Þorvaldss. Vatnsenda Héð.f.
Friðrik Kjartansson Kirkjug.v. 6R
Gunnar H. Benónísson Túng. 33
Haraldur E. Pálsson Hlíðarv. 17A
Ingimar H. Þorláksson Lindarg. 32
Ingólfur Á. Guðmundsson Aðalg. 8
Jóhann Sigurðsson Efri-Höfn
Jónas Þ. Sigurðsson Vetrarbr. 14
Jón Guðjónsson Grundarg. 18.
Jón Kristinsson Eyrarg. 3.
Júlíus G. Gunnlaugsson Túng. 41
Ólafur Guðbrandsson Þormóðsg. 11