Reginn


Reginn - 21.09.1939, Blaðsíða 2

Reginn - 21.09.1939, Blaðsíða 2
2 öldum. Úr því sem komið er, væri óskandi, að þeir erfiðleikar, sem kunna að mæta þjóðinni á næstu árum, verði til þess að hún þekki betur sjálfa sig en áður, læri betur að meta það, sem varanlegt gildi hefur fyrir líf hennar, bæði frá sjónarmiði hinna daglegu lífsþarfa, og ekki síður frá sjónarmiði hins andlega lífs. í því trausti, að þjóð vorri tak- ist að sigrast á erfiðleikunum, horfum vér nú til framtíðarinnar, með þeim ásetningi að reynast trú í hverri raun, og styðja hvert annað í baráttunni og uppfylla þær skyldur, sem framtíðin kann að leggja oss á herðar. Ó. J. Þ. Merkur d a g u r. Þessi dagur, sem nú er að liða, er merkur dagur. — Það er dag- urinn þinn! Dagurinn sem leið í gær slapp úr höndum þér, — þú getur ekki kallað hann aftur til baka, hve feginn sem þú vildir. Hann er þér horfinn um tíma og eilífð, horfínn út í hið mikla úthaf liðna tímans, sem þú ræður ekk- ert við. Hvort sem þú í gær hefir mætt sorg eða gleði, brosum eðatárum, sigri eða ósigri, afundnu viðmóti eða lífsgleði — það er þér allt horfið, þér úr höndum horfið vald- ið til að setja annanblæ á viðburð- ina. Ekkert loforð hefirþúfyrir því, að morgundagurinn verði þinn. Ekki þekkir þú né veist nærdagar þínir eru taldir. Ekki veist þú hvort þér gefst þess nokkurt tæki- færi, að ráða nokkru um rás við burðanna þá, eða hafa á þá nokkur áhrif. En dagurinn í dag er þér í hönd- um. Þess ert þú vjs — annað veist þú ekki. Honum getur þú ráðið. Notaðu þetta tækifæri. Hagnýttu þér þennan rétt þinn, þetta vald þitt. í dag er þér innan handar að gleðja einhvern meðbróður þinn. j dag getur þú lagt niður einhvern R E G I N N ’ Iöst sem er í fari þínu. í dag get- ur þú bætt það, sem þú áðurkannt að hafa misgjört. í dag getur þú hrest og huggað þá, sem þú veist að þjást, andlega og likamlega. Þetta og margt fleira til góðs, er þér í lófa lagið að gera í dag. Ef til vill átíu þess engan kost á morgun. Og þó svo skyldi fara, að þér yrði gefinn kostur þessa alls á morgua, þá er tækifærið, er þú vanræktir í slag, gengið þér úr greipum fyrir fulltogallt. Hverjum degi bor sitt. Hikaðu því ekki. Geymdu þér ekkert! Gríptu tæki- færið — nú strax — í dag — í kvöld. Þú verður að vera við- bragðsíljótur þegar hið góða kallar á liðsinni þitt. Því dagurinn í dag er mikilvægasti dagurinn á æfi þinni — það er dagurinn þinn! Haustþankar. Sumarið er á förum. Síldarskip^- in cru hætt veiðum og farin heim. Síldarstúlkurnar eru líka farnar. Aðalgatan er tómleg á kvöldin, nú sést ekki lengur litfagur hópur kvenna á götunum, jazz-músikin er þögnuð á kaffihúsunum, straum- ar af fólki með rauðan og gulan ís í höndunum eru hséttir að renna um göturnar, allt er að verðaautt og snautt. Hið eina, sem minnir á sumarið, með öllum þess marg- háttuðu tilbreytingum, er það, að Svíarnir hópast ennþá á gatna- mótum. —o— Vorið og sumarið hefir verið það blíðasta og besta, sem menn muna eftir. Frá því í aprílmánuði hefir sú blíða staðið og eru því nytjar af landi ágætar. Grasspretta var þó sumstaðar á landinu með minna móti en nýting hin ákjósan- legasía. Garðar hafa sprottið ágæt- lega og kartöfluuppskera er mikil i landinu. Þótt tíðarfarið hafi verið gott, hefir síldveiðin þó verið minni en í fyrra. Fer hér á eftir skrá yfir síldveiðina eins og hún var 10. sept. árin 1937—’39. Bræðslusíld: * 1937 2162.770 hl. 1938 1519.370 — 1939 1158.850 — Söltuð sild: 1937 201.710 tn. 1938 309.239 — 1939 234.497 — Þess ber að gæta, þegar þessar tölur eru athugaðar, að skipafjöldi sá, er stundað hefir sildveiðar í sumar, er miklu meiri en hann hefir verið nokkru sinni áður og er veiðin því hlutfallslega minni en tölurnar sýna, samanborið við árin á undan. —o— Sökum þess, hve sildveiðin hefir verið lítil, koma sjómenn og síld- arfólk með lágan hlut frá sumrinu. Ástæður margra munu því verða erfiðar á komandi vetri, þegar litið er bæði til lítils fjárafla og hækk- andi vöruverðs. En hækkandi \ öru- verð stafar frá styrjöld þeirri er nú síendur yfir og ekki er fyrirsjáan- legt að létti af fljótlega. Engin þjóð, þótt hlutlaus sé og út á hjara ver- aldar eins og við íslendingar, get- ur sloppið við erfiðleika og þrengingaí, þegar styrjöld geysar í nálægum löndum. —o— Það er því eigi að ófyrirsynju, að ríkisstjórnin brýnir nú fyrir landsmönnum hinn ítrasta sparnað í hvívetna og nákvæma hirðingu alls þess, sem að gagni máverða. Má búast við að þjóðin skiijiþörf- ina á þessu tvennu og þá ekki síst þeir, sem muna ogþekkjasíð- asta ófrið, er á margvíslegan hátt þjakaði okkur. Má þó búast við að ástandið verði síst betra í þeim ófriði er nú stendur yfirenþávar. —o— Þegar minnst er á sparnað er vert að athuga það, að sparnaður þarf víðar að koma fram en í því, að minnka við sig daglegar nauð- synjar svo sem mat og drykk, fatnað, eldsneyti og annað, ertelja verður til hins allra nauðsynleg- asta. Það eru margskonar keipar og kröfur, sem hægt er að leggja á. hilluna og neyta sér um. Vín, tóbak og ýmiskonar óþarfar og kostnaðarsamar skemmtanir, má að minnsta kosti minnka og ætti helst að hverfa. Má vera að það skapaði fyrst nokkra þvingun og sjálfsafneitun en fljótt mundu menn venjast við að vera án þessa spill- andi óg eyðandi óþarfa og þá mundi vellíðan manna vaxa. o—

x

Reginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.