Reginn - 28.05.1943, Page 6

Reginn - 28.05.1943, Page 6
6 R E G I N N „EINING „Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér.“ Hvað er „Eining“? — „Eining“ er nýtt blað. IJtgef endur: Samvinnunef nd: , Stórstúku Islands, íþróttasambands íslands, Ungmennafélags Islands og Sambands bindindisfélaga í skólum. Drengilegur og fríður flokkur stendur því að blaðinu, og nafn þess táknar, að allir vilja starfa í einingu að áhugamálum sínum, en þau eru að vinna að öllu því, sem er siðbætandi o^ mannbætandi. Er þetta einhver merkilegasta samtakatilraunin, sem íslenzkir á- hugamenn í fjölmennustu félaga- samböndum landsins hafa gert til þessa. Þau sex blöð, er ég hef séð af „Einingu,“ eru hin ágætustu. Blað- ið vill láta sem flest félags- og menningarmál til sín taka, „upp- eldi, heimilislíf, hjúskap, ástalíf, heilbrigði, hreinlæti, íþróttir, list- ir, verkmenningu og daglegt líf manna“. Fjölbreytni er því ó- venjulega mikil, og leikur hress- andi blær og bjartur um blaðið, vermdur eldi áhuga og trúar á sig- urmátt góðs málstaðar. Mætti vel svo fara, að „Einingu“ auðnaðist að skapa nýtt, sterkt og heilbrigt almenningsálit í bindind- ismálunum og fleiri menningarmál um, er alltof mörgum virðist ganga yfrið seint að átta sig á. — „Reginn“ árnar „Einingu“ allra heilla og væntir þess, að gengi hennar og áhrif verði jafn víðtæk og mikil, sem málstaður hennar, tilgangur og málefni eru mikils- verð. — Ritstjóri „Einingar“ og ábyrgð- armaður er Pétur Sigurðsson, erindreki. Kaupið og lesið „Eininguna“. Hún er blað æskumannanna, blað áhugamanna, blað íþróttamanna, blað bindindismanna, blað allra hugsandi manna F. H. Gdrðstæði V tsæðiskartöflur Garðáburður PÉTUR BJÖRNSSON. \ Seljum nýjan jisk daglega frá kl. 10 til 12 á hád. H.f. HRÍMNIR. Tilkynning frá Sumardvalarnefnd. « • Sumardvalarheimilið að Barði í Fljótum verður starfrækt á þessu sumri á líkan hátt og síðastliðið sumar. Ætlunin er að heimilið taki til starfa um 20. júní. 50 börn á aldrinum 3—8 ára geta komizt í sum- ardvöl að Barði. Nefndin hefur ákveðið að hafa opna skrifstofu í Barnaskólanum dagana 31. maí til 2. júní (mánudag, þriðjudag og miðvikudag), kl. 4—6 e. h. Þeir foreldrar, sem hafa í hyggju að koma börnum sínum að Barði, mæti til viðtals á skrifstofunni einhvern þessara daga. Einnig þeir, sem þegar hafa talað við einhverja úr Sumardvalarnefnd, eru beðnir að koma til viðtals áðurgreinda daga. SUMARDVALARNEFND Gildaskáli. Gildaskáli í nýbyggingu Kjötbúðar Siglufjarðar er til leigu frá 1. júlí n. k. Lysthafendur sendi leigutilboð, sem miðist við eitt ár,. til skrif- stofu Kjötbúðarinnnar fyrir 12. júní n. k. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður. f. h. KJÖTBÚÐAR SIGLUFJARÐAR RAGNAR JÓHANNESSON. ÞEIR, sem undanfarið hafa haft garðstæði hjá mér, eru vinsamlega beðnir að láta mig vita hvort þeir þurfa þeirra í sumar, annars verða þau lánuð öðrum eða ráðstafað á annan hátt. N PÉTUR BJÖRNSSON.

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.