Reginn - 01.02.1959, Blaðsíða 5
5
REGINN
getur því ekki starfað eins og vera ber. Maðurinn, sem
þarf fyrir heimili að sjá og er drykkjumaður hugsar
stundum lítið sem ekki neitt um konu sína og hörn,
heldur eyðir hverjum eyri sem hann vinnur sér inn fyrir
áfengi. Og börnin horfa á föður sinn dauðadrukkinn,
þann, sem ætti að vera fyrirmynd þeirra og hjá honum
fá þau oft ekki það, sem kalleð er hin mikla föðurblíða.
Þetta er ekki falleg sjón en því miður of algeng.
En hvers vegna drekka menn þá áfengi þegar þeir
vita hversu skaðlegt það er? Sumir segja til þess að iosna
við allar áhyggjur og kviíða. Það getur vel verið að þetta
sé satt. En ætli áhyggjurnar aukizt ekki aftur, þegar af
manninum rennur, og að „hann beri þess sár um ævilöng
ár, sem aðeins var stundarhlátur“.
Aðrir segja, að þeir drekki til þess að verða skemmti-
legir, til að eyða minnimáttarkennd, til þess að gleyma
smæð sinni og eymd, og svona mætti lengi telja.
En svo eru sumir, sem drekka af þeirri einföldu ástæðu,
að þeim finnst vínið gott.
Afengið hefur lamandi áhrif á starfsorku, getu og heilsu
allra, sem þess neyta. — Hversu nauðsynlegt er það t.d.
ekki fyrir íþróttamanninn að vera alger bindindismaður.
Hann verður að halda starfsorku sinni óskertri, en það
getur hann aðeins með því að neyta ekki áfengra drykkja.
Af áfenginu stafar mikil slysahætta. Maður, sem ekur
bíl, stjórnar flugvél eða einhvers konar farartæki, og er
undir áhrifum áfengis getur ótt það á hættu, að valda
slysi bæði á sér og öðrum . Og við rannsókn hefur komið
í ljós, að þau eru ekki svo fó slysin, sem eru bein afleið-
ing áfengisnautnar.
Nú ættu allir unglingar að „stíga á stokk og strengja
þess heit að neyta hvorki áfengis né tóbaks. Með því móti
fáum við sterka og framtakssama æsku, sem óhrædd
horfist í augu við það, sem framtíðin ber í skauti sínu.
IndriSi Jóhcinnsson
★
Hættur áfengisnautnar.
Áfengið hefur löngum verið mannkyninu hættulegt, og
hafa Islendingar, eigi siður en aðrar þjóðir, átt í miklum
brösum við Bakkus.
Á síðari árum hefur mönnum þó tekizt betur að skilja
hættuna, sem er samfara áfengisnautninni, og margur
maðurinn hefur lagt fram mikið og þakkarvert starf í
að bægja hættunni frá. Til dæmis hafa verið stofnuð sam-
tök og komið upp hælum fyrir ofdrykkjumenn, þar sem
reynt er að forða þeim frá áfengisbölinu og hjálpa þeim á
rétta braut. Nú heyrist æ oftar um slys sem koma fyrir
vegna ölvunar. Maður, sem ekur bifreið undir áhriifum
áfengis er stórhættulegur bæði sjálfum sér og öörum,
vegna þess, að dómgreind hans og sjónsviö hafa sljófgast,
og verður hann því ekki eins viðbragðsfljótur, ef eitthvað
óvænt kemur fyrir. En bifreiðastjórarnir eiga ekki alltaf
sökina á slysunum. 0,ft getur það verið ölvaður vegfarandi,
sem slangrar út á götuna í veg fyrir umferðina og veldur
þannig slysi. En slysin eru aðeins einn iþáttur í því böli,
sem áfengið veldur, þvi að hvarvetna eru heimili, sem
áfengisneyzla húsbóndans og jafnvel húsmóðurinnar líka
hefur lagt í rústir.
Margir strákar byrja að drekka vegna þess að þeir vilja
vera „kaldir" og sýna hvað þeir gera, þó iþeim í raun og
veru finnist vínið vera vont. Og þegar þeir eru á annað
borð byrjaðir er oft ekki svo auðvelt að hætta. Og svo
þegar þeir verða fullorðnir og eignast l)örn læra börnin
þetta ef til vill af þeim eða þau fá fyrirlitningu á full-
orðna fólkinu. Þess vegna ætti allt ungt fólk að ganga í
stúku og setja sér að bragða aldrei vín eða tóbak.
Jóhann Heióar Jóhannsson
★
BARNASKÓLINN
Bindindismál.
I öllum áfengum drykkjum er efni, sem heitir alkóhól.
Alkóhól er eitur. Áfengið lamar taugakerfið, og hefur
einkum áhrif á æðri starfsemi heilans. Þeir, sem drekka
áfengi verða fyrst mjög málgefnir, en þegar þeir fara að
drekka meira, l)yrja þeir að slaga og rugla. Áfengið
sljófgar minnið og skilning, viðbragðsflýtir minnkar og
þar af leiðandi vinna þeir öll störf miklu ver en þeir eru
vanir að gera. Samt eru fullir menn alltaf vissir um, að
þeir geri allt betur en aðrir. Menn, sem eru undir áhrif-
umvins og vinna við vélar eða stjórna farartækjum, stofna
sjálfum sér og öðrum í hættu. Maður sem ekur bíl og er
fullur, ekur með dauðann við stýrið. Og það er allt annað
en fallegt að sjá drukkinn mann veltast um göturnar, en
enn hryllilegra er að sjá kvenfólk, t.d. ungar stúlkur út úr
fullar. Og það er sárt að vita til þess, að sumir heimilis-
feður, sem eiga fyrir stóru heimili að sjá, drekka út hvern
eyri, sem þeir vinna sér inn, en kona og börn líða skort.
Áfengið er meira beimilisböl en flest annað. Og komið
hefur það fyrir að eiginmaðurinn hefur misþyrmt konu
sinni og börnum. Margt hefur verið gert til að bæta um
fyrir drykkjusjúklingum, þar má telja fyrst og fremst
stúkuna, sem unnið hefur mikilsvert og árangursríkt
starf í mannfélaginu, og einnig hafa AA-samtökin unnið
þarft verk. Margir hafa aðeins ætlað að fó sér einn lítinn,
en þessi eini litli vill oft verða stór, og bezt er að talca
aldrei fyrsta staupið, því að verra er að venja sig af en á.
Soffía FriSgeirsdóttir
★
Áfengi og tóbak.
Áfengi og tóbak er mikið þjóðarböl og hefur svo verið
i mörg hundruð ár. Áfengi er mjög skaðlegur drykkur,
og því miður eru alltof margir Islendingar, sem neyta
þess. Áfengi er mjög hættulegur drykkur fyrir neytend-
urna. Fyrst eru menn kótir og ræðnir, en þegar lengra
líður, verður maðurinn meir og meir utangátta, unz hann
sofnar alveg, og er það ljót sjón að sjá dauðadrukkinn
mann. — Áfengi dregur úr mótstöðuafli líkamans, veikir
alla tilfinningu, þannig að manninum er bráð hætta búin.
Mörg slys hljótast af þvií að sá sem stýrir t.d. bíl, er
undir áhrifum áfengis. Einnig gera menn margt, er þeir
eru drukknir, sem þeir aldrei mundu gera ef þeir væru
ódrukknir og svona mætti lengi telja. Og svo eru það
peningarnir. Margt fallegt gæti só maður keypt, sem tæki
andvirði hverrar flösku, sem hann annars mundi kaupa,
og notaði það til þarfra hluta. Nú á tímum fárast sumir
inenn yfir því hve skattarnir séu háir, en þeir tala ekki
um þá upphæð, sem þeir borga í áfengi og tóbak, jafnvel
þó hún sé ennþá hærri. Tóbak er ekki síður liættulegt
en vínið; það orsakar oft krabbamein í lungum og marga
aðra hættulega kvilla.
Oftast byrja menn á reykingum af því að þeir halda,
að þar með séu þeir orðnir „karlar í krapinu", en það er
versti misskilningur. Þeir eru ekkert meiri menn, en
aftur á móti eru þeir oft sjálfum sér til skammar og háð-
ungar. Og einnig fara miklir peningar fyrir tóbakið eins
og vínið. Oft vill það bera við, að frægir karlar eða konur
auglýsa tóbak og vín, ekki vegna þess, að þeim þyki það
gott, heldur aðeins vegna peninganna, og er það ljótur
vani. Að endingu vil ég skora á alla Islendinga að fylkja
sér undir merki Góðtemplarareglunnar, I.O.G.T., og halda
vel heit sín.
Fregsteinn Jóhannsson
★
Áfengisneyzlan er böl.
Enginn æskumaður eða kona ætti nokkurntíma að
byrja á að smakka áfengi, því að þó að það virðist skað-