Reginn - 22.12.1970, Síða 6
6
R E G I N N
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökli fyrir viðekiptin.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Sigluf jarðarumboð: EYÞÓR HALLSSON
Óskum öllu starfsfólki voru og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs
Hraðfrystihúsið ísafold
Bindindismenn
Það er hugsjón, og það er líka hagfræði að tryggja
hjá ÁBYRGÐ h. f. Þá gerið þið tvemit í senn: Þið
styðjið bindindi í landinu, og kaupið ódýrustu
tryggingu, sem völ er á.
Hjá ÁBYRGÐ h. f. er hægt að tryggja heimihð
fyrir óhöppum, eignatjóni og slysnm með
Allt-í-eitt-heimilistryggingu
Húseigendatryggingu
Brunatryggingu
Ferðatryggingu
Frjálsri ábyrgðartryggingu
Ábyrgðartryggingu bíla
Alkaskótryggingu bíla
Hálfkaskótryggingu bíla
og margar fleiri tryggingar. Leitið upplýsinga hjá
umboðsmönnum félagsins, en þeir eru um allt land
og veita fúslega allar upplýsingar og aðstoð.
Það er ódýrara fyrir bindindismenn að tryggja
hjá ÁBYRGÐ, en hjá öðrum tryggingafélögum, því
ÁBYRGÐ tryggir aðeins bindindismenn.
ÁBYRGÐ h. f.
Umboð Siglufjarðar
IHUGAÐU ÞETTA:
Áfengi er verulegur slysavaldur. Orsök margra óknytta og glæpa.
TJndirrót margs ills.
Hve margir hjónaskilnaðir eru tU komnir vegna áfengisnautnar?
Hve mörg börn þurfa að iíða fyrir drykkfeUda foreldra?
Þegar tóbakseitur er komið inn í Ukamann, er örðugt að hætta
að nota tóbak. Bezta ráðið er að byrja aldrei á notkun þess.
Hafið áhrif 2 upphæð útsvars
yðar 1971.
AÐEINS þau útsvör, álögð 1970, sem verða að
fullu greidd fyrir áramót n. k., fást dregin frá á-
lagningarskyldum tekjum viðkomenda á næsta ári.
Skilvísi kemur því fram í veruLega lægra útsvari,
en vanskil í hærra útsvari yðar á næsta ári. Það
er því beggja hagur, bæjarsjóðs og yðar, að þér
séuð skuldlaus við kaupstaðinn um áramót. Með
því móti hafið þér áhrif á upphæð væntanlegs út-
svars yðar til lækkunar.
GERH) ÞVl SKIL á útsvari yðar sem allra fyrst.
Siglufirði, 10. nóvember 1970.
Bæjarstjórinn í Siglufirði
TILKYNNING
Ákveðið hefur verið að gefa fólki kost á að lýsa
upp leiði í kirkjugarðinum um jólin. Þeir, sem
hafa áhuga á þessu hafi samband við Jóhann Krist-
jánsson, en hann gefur allar nánari upplýsingar.
Fólk er beðið að merkja krossana greinilega og
koma með þá sem fyrst.
RAFVEITA SIGLUFJARÐAR
SÓKNARNEFND SIGLUFJARÐAR
LÆKNASKIPTI
Þeir samlagsmenn, sem vilja hafa læknaskipti
frá næstu áramótum, snúi sér til skrifstofu sam-
lagsins 1. til 24. desember n. k. Sýna þarf samlags-
skírteini, þegar læknaskipti fara fram.
Siglufirði, 27. nóvember 1970.
Sjúkrasamlag Siglufjarðar.
Gleðileg jól!
Farsœlt komandi ár!
Þökk fyrir viðekiptm
EINCO
Gleðileg jól!
Farsœlt komandi ár!
Þökk fyrir viðskiptin
Siglufjarðarapótek