Reginn - 12.12.1978, Page 1

Reginn - 12.12.1978, Page 1
Gleðileg jól R ■: Gl M M BLAÐ TEMPLARA 4-5. tölublað. Þriðjudagurmn 12. des. 1978 41. árg Eru stúkurnar úreltar Sumir kunna að segja að það sé liðin tíð að stúkustarf templara eigi við og henti mönnum. Það sé ekki lengur í takt við tímann. Annað mál hafi verið fyrir og um aldamót. Þá var fátt um önnur félög, hvorki sjónvarp né útvarp o.s.frv. Við þessu er sitthvað að segja. Fyrst er nú það að Góðtemplarareglan er ekki óumbreytanleg. Nú er templ- urum í hverju landi í sjálfsvald sett hvernig þeir haga siðastarfi sínu. Félags- menn í hverju landi á hverjum tíma geta hagað því að vild sinni og gera það Annað er það að á öld hraðans, tækninnar og þéttbýlisins vex og magnast þörf manna fyrir félagslíf. I borgum lifir fjöldi manns án þess að mynda nokkur kynni að gagni við nágranna sína. Slík einangrun var óhugsandi í sveit og smáþorpi. Þar þekktu menn granna sína. Þessum ókynnum borgarlífsins reyna menn að mæta og verjast með ýmis- konar félagsskap. Það má minna á saumaklúbba og spilahópa. Það má minna á það að í stærri þorpum á landi hér eru víða a.m.k. sex klúbbar eða stúkur sem tilheyra alþjóðlegum samtökum. Allt er þetta vottur.um þörf samtímans fyrir náin félagskynni. Stúkur templara hafa öll skilyrði til þess að fullnægja þessari félagsþörf. En auk þess hafa þær þá mikilsverðu yfirburði að þar er áfenginu hafnað. Hinu er ekki hægt að neita að sumir klúbbarnir verða nánast drykkjuklúbbar í reynd. Þar er áfengi haft um hönd við öll hátíðleg tækifæri, þar ríkir drykkjutízkan og nær aukinni útbreiðslu þeirra vegna. Það má færa sterk rök að því að íslenzkt félagslíf og íslenzkt þjóðlíf hafi aldrei haft meiri þörf fyrir öflugt stúkulíf templara en einmitt nú. Aldrei hafi stúk- urnar haft meiri tækifæri til að bæta úr brýnni og bráðri þörf en einmitt nú. Hvers vegna gera þær það þá ekki betur en raun ber vitni? Einfaldlega af því að þeir eru svo margir sem standa hjá, eru ekki með. Það er öll skýringin. í þriðja lagi má svo vel minna á það sem æðsti maður Góð- templarareglunnar, Sven Elmgren, sagði í hátíðaræðu sinni á aldarafmæli reglunnar í Noregi. Hann ræddi um hinar miklu framfarir sem orðið hefðu á hundrað árum. Þrátt fyrir það hefði aldrei verið meiri þörf en einmitt nú fyrir samtök sem beittu sér fyrir bindindi. Á sama hátt mætti segja að aldrei hefði meira legið við að vel væri unnið að bræðralagi; allra manna og allra þjóða svo sem væri grundvallarhugsjón Góðtemplara. Þegar þessa er gætt hlýtur það að vekja furðu hversu veikur og fámennur félagsskapur templara er á Islandi. Það er furða vegna þess að bindindismenn eru langsamlega nógu margir til þess að hafa félagsskapinn miklu öflugri. Þó er einnig á það að líta að til er fjöldi manns sem eru bindindismenn í hugsun, óska þess að þjóðin sé bindindissöm og vilja að bindindi eflist, enda þótt þeir láti til leiðast að taka þátt í samdrykkjum fyrir siðasakir þegar svo ber undir. Meðfram stafar þetta af þreytu og vonleysi um að nokkur umtalsverður árangur náist í bindindisboðun. Er þó mála sannast að þeir varnarsigrar sem bindindishreyf- ingin hefur unnið á síðustu árum við hin erfiðustu skilyrði eru ómetanlegir. Okkur vantar nú fyrst og fremst betri samstöðu þeirra sem vilja eitt og hið sama, — þeirra sem vilja bindindissama þjóð. Halldór Kristjánsson. Stúkan Framför nr. 6 í Garði Stúkan Vík nr. 262 í Keflavík Stúkan Daníelsher nr. 4 í Hafnafirði Stúkan Morgunstjarnan nr. 11 í Hafnafirði Stúkan Verðandi nr. 9 í Reykjavík Stúkan Eining nr. 14 í Reykjavík Stúkan Víkingur nr. 104 í Reykjavík Stúkan Mínerva^ nr. 172 í Reykjavík Stúkan Framtíðin nr. 173 i Reykjavík Stúkan Freyja nr. 218 í Reykjavík Stúkan Frón nr. 227 í Reykja- vík Stúkan Andvari nr. 265 í Reykjavík Stúkan Akurblóm nr. 3 á Akranesi Stúkan Helgafell nr. 269 í Stykkishólmi Stúkan Isfirðingur nr. 116 á Isafirði Stúkan Norðurstjarnan nr. 276 á Dalvík Stúkan Ísafold-Fjallkonan m. 1 á Akureyri Stúkan Brynja nr. 99 á Akur- eyri Stúkan Akurlilja nr. 275 á Akureyri. senda landsmönnum öllum óskir um gleðileg jól og gott farsælt komandi ár. Ef bindindið bregst er hamingjan í hættu. Stórstúka íslands óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þeirri ósk og von að þjóðinni aukist skilningur á þeim megin- sjónarmiðum, sem grundvalla bindindisstarf allra þeirra aðila, er að þeim málum vinna meðal þjóðarinnar

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.