Smiðjan - 01.03.1934, Qupperneq 1
Reykjavík
KAFFISTOFAN.
Á síðastliðnu hausti var tekin upp
su nýbreytni á öllum stærri verkstæð-
um bæjarins, að ákveða 15 mín. kaffi-
hlé tvisvar á dag, og eru Þær dregn-
ar frá vinnutímanum, en dagvinnutím-
inn lengdur sem Því svarar. Áður var
Það svo að hver drakk kaffi bæði fyr-
ir miðdag og eftir miðdag Þegar best
stóð á, og engum tíma var skift. En
nú veröa menn að drekka á ákveðnum
tíma, hvernig s.em á stendur, við Þvx
er ekki mikið að segja út af fyrir
sig, en hvar er Þá kaffistofan? Hún
er engin, heldur verða menn að gera
sér að góðu að sitja innanum skít
og skran, á hverju Því sem hægt er
að gera s.ér sæti úr á hverjum tíma,
Þessi kaffihlé eru Því hreinasta
plága fyrir smiðina, í staðinn fyrir
að Þau eiga að vera hvíld og hress-
ing, ekki einungis líkamleg heldur
einnig andleg, Þar sem menn geta
hvílt hugann og heilann frá erfiöum
viöfangsefnum dagsins.
Við hljótum Því að gera kröfu til
Þess að fá sérstaka kaffistofu upp-
hitaða með borði og bekkjum. M*ö.o.
samboðna mönnum en ekki dýrum. Ef
Þetta er ekki fæst, verðtim við að
berjast fyrir Því aö kaffi tímámir
séu ekki dregnir frá.
Einn af Þeim óánægðu.
mars 1934,
KAFFISTOFA, ÞVOTTASIÚÁLi\R , FATASKÁPAR.
Fáir menn ganga eins óÞrifalegir
milli vinnustaðarins og heimilanna
eins og járnsmiðirnir. Ekki er Það
Þó vegna Þess að Þeir séu í eðli sínu
óÞrifalegri en aðrir.j verkamenn, held-
ur vegna Þess að vinnan. er óÞrifa-
legri en flest önnur vinna. Smiðim-
ir Þurfa Því að Þvo sér og skifta um
fÖt á vinnustaðnum, en hvar eru fata-
skápamir og Þvottaskálamar? Þao er
hvorugt til, en Það Þarf að koma liið
hráðasta, slíkt ómenningarástand, sem
átt hefir sér stað hingað til verður
að hverfa. Kostnaður er ekki mikill
við að koma Þessu í kring, sérstak-
lega ef Þetta yrði sameinað kaffi-
stofu, sem nauðsynlegt er að setja ......
upp. Það Þarf ekki að orsaka óhrein-
læti, Þótt Þetta tvennt sé sameinað.
Við getum hugsað okkur Þvottaskálarn-*-
ar eða rennu meðfram einum veggnum,
t.d. fyrir gaf li , en meðfram annari
hliðinni væru númeraðir fataskápar
fyrir hvern mann á viðkomandi verk-
stæði. Kaffistofa, Þvottas.kálar, fata-
skápar, Þaö er Þetta, sem alstaðar
er til staðar, Þar sem menning er
komin á hærra stig en hér er. Hversu
lengi eigum við aö vera eftirbátar
stéttabræðra okkar í öðrum löndum.